blaðið - 04.11.2005, Page 14
blaóið
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
VOND LAGABREYTING
Hugmyndin bak við lög um fæðingarorlof var á sínum tíma ákaflega
góð og jafnvel má ganga svo langt að kalla hana göfuga. Einhvernvegin
hefur það verið þannig í okkar ágæta nútímaþjóðfélagi að börnin hafa
orðið útundan, en með nýjum lögum var reynt að tryggja að foreldrar
gætu tekið sér frí til að eyða dýrmætum tíma með nýfæddum börnum
sínum. Sú leið sem farin var í upphafi var að miða við tekjur fólks um
ár fyrir fæðingu barns, og greiða því svo 80% af þeim launum meðan á
fæðingarorlofi stæði. f raun má kannski segja að ofvel hafi tekist til, því
fljótlega kom í ljós að kostnaður vegna fæðingarorlofs var mun meiri
en gert hafði verið ráð fyrir. Ennfremur heyrðust háværar raddir sem
gagnrýndu þá einstaklinga sem hafa hæst laun í samfélaginu um að þeir
nýttu sér kerfið. Sú staðreynd að örfáir einstaklingar fengju greidda um
og jafnvel langt yfir eina milljón á mánuði í fæðingarorlof var eitthvað
sem margir einfaldlega þoldu ekki. Þessi staðreynd, sem og að í ljós kom
að margir nýttu glufur í kerfinu til að ýkja tekjur sínar til að fá hærri
greiðslu í fæðingarorlofi en þeir áttu raunverulega rétt á, varð til þess að
ákveðið var að breyta lögunum.
Breytingin var gerð um síðustu áramót og fólst í tvennu. Annars vegar
var sett 600.000 króna þak á greiðslu í fæðingarorlofi. Hin breytingin
snýr að því hvernig tekjur einstaklinga eru reiknaðar út, þ.e. þær tekjur
sem liggja til grundvallar greiðslum í fæðingarorlofi. I stað þess að skoða
síðustu 12 mánuði aftur í tímann, er nú horft á tvö síðustu framtalsár.
Á mannamáli þýðir það að ef par myndi eignast barn á morgun, yrðu
tekjur þeirra árin 2003 og 2004 lagðar til grundvallar fyrir fæðingar-
orlofi þeirra.
Hér framar í Blaðinu er sagt frá því að niðurstaðan sé að fólk fái í raun
aðeins 70% af launum sínum í fæðingarorlofi, en ekki 80% eins og upp-
haflega var gert ráð fyrir. Þeir einstaklingar sem hafa notið þess láns að
hækka talsvert í launum á þriggja ára tímabili geta ennfremur staðið
frammi fyrir því að fá jafnvel ennþá lægra hlutfall greitt. Miðað við sög-
ur foreldra hafa breytingar á umræddum lögum í einhverjum tilfellum
þýtt að ekkert fæðingarorlof er tekið. Slíkt er auðvitað í hrópandi and-
stöðu við upphaflegt markmið laganna, og verður vart liðið. Félagsmála-
ráðherra, og í raun ríkisstjórnin öll ætti að sjá sóma sinn í að endurskoða
lögin á ný, svo upphaflegt markmið þeirra nái fram að ganga.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
l éiÍHtf
R
B
V
N cMaf
D
:
N ,
N ISLENSK BLOM
Auglýsingar 510 3744
blaðió
14 I ÁLIT
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaði6
Sögulegt prófkjör
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins hefur
sett svip sinn á fjölmiðla síðustu vik-
ur. Tvennt kemur til; annars vegar
yfirburðafylgi Sjálfstæðisflokks í
könnunum og svo er þetta fyrsta
prófkjör flokksins í átta ár. R-list-
inn er horfinn og flokksbrotin sem
mynduðu hann hafa ekki náð áttum
sínum. Kjósendur hafa misst trú á
þeim og horft er til Sjálfstæðisflokks-
ins.
Tuttugu og fjórir hæfir einstak-
lingar bjóða sig fram og er fengur fyr-
ir borgarbúa að þessir einstaklingar
séu tilbúnir til starfa. Prófkjör geta
verið viðkvæm þegar samherjar tak-
ast á, en þau eru lýðræðisleg leið þar
sem tengsl við almenning eru hvað
mest.
Tveir ólíkir en sterkir frambjóð-
endur takast á um fyrsta sætið og
hefur það lyft prófkjörinu í hugum
fólks. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
gefur í fyrsta sinn kost á sér til að
leiða borgarstjórnarflokkinn í kosn-
ingum, en hann hefur aukið fylgið
úr 40% í 57% fylgi á sama tíma og
R-listinn gafst upp og dó. Framboð
Gísla Marteins hefur vakið mikla
og verðskuldaða athygli og hefur
hleypt ferskum anda í borgarpólítík-
ina. Hann hefur sannað það að hann
nær til fólks, enda er mjög mikill
fengur af honum í borgarmálin.
Um annað sæti keppa Hanna
Birna borgarfulltrúi og Júlíus Vífill
fyrrverandi borgarfulltrúi. Hanna
Birna hefur sannað sig sem skelegg-
ur stjórnmálamaður og Júlíus hefur
breidd sem söngvari og stjórnandi
úr atvinnulífinu, en bæði voru lengi
orðuð við fyrsta sæti listans.
Kjartan Magnússon borgarfull-
trúa hef ég þekkt frá barnæsku og er
hann einn að stefna á 3. sæti listans.
Traustari mann er ekki hægt að fá í
borgarstjórn og borgarráð.
Fjölmargir aðrir góðir frambjóð-
endur hafa gefið kost á sér og hefur
prófkjörið farið málefnalega fram.
Framsetning Þorbjargar Helgu
Vigfúsdóttur á skólamálum og
skemmtileg kosningabarátta hefur
Eyþór Arnalds
ekki farið fram hjá fólki. Þá er að
öðrum ólöstuðum tveir mjög góðir
kostir sem gefa kost á sér í 5. sætið,
þeir Bolli Thoroddsen formaður
Heimdallar og Ragnar Sær Ragnars-
son fyrrum sveitarstjóri. Báðir hafa
þeir vakið athygli fyrir skemmti-
lega kosningabaráttu. Þá eru þau
Kristján Guðmundsson og Jórunn
Frímannsdóttir varaborgarfulltrúar
og fleiri mætti nefna. Best væri að
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 24 borg-
arfulltrúa, eða alla vega 15, en það
mun víst ekki ganga að sinni. Það er
samt ljóst að meirihluti þessa góða
fólks verður hluti af öflugum borg-
arstjórnarflokki sem efalaust mun
sigra í vor, Reykjavík til heilla.
Flestir kjósa Sjálfstæðisflokkinn
í mínum huga er ekki eingöngu
verið að velja framboðslista, heldur
einnig þann hóp sem mun taka við
dánarbúi R-listans eftir 12 ára hnign-
un borgarinnar. Það er mikilvægt
að í þeim hópi fari saman bjartsýni,
áræðni og reynsla. Þegar litið er yfir
lista frambjóðenda er ekki annað að
sjá en þessi listi uppfylli allt það.
Borgin er breytt. Á sama tíma
og skuldir borgarinnar nálgast eitt
hundrað milljarða, er Kópavogur
að skila tveggja milljarða hagnaði!
14 einbýlishúsalóðum var úthlutað i
fyrra á meðan 830 íbúðir eru byggð-
ar í Reykjanesbæ! Skipulagsmálin
eru með þeim hætti að ekki einn ein-
asti maður hefur fundist sem mælir
þeim bót.
Ingibjörg Sólrún og Helgi Hjörv-
ar komu sér burt úr borgarstjórn
og berjast nú fyrir upptöku evrunn-
ar og skattahækkunum á Alþingi.
Eftir standa ótrúverðugir kostir
vinstri flokksbrota sem eiga það
eitt sameiginlegt að vera á móti Sjálf-
stæðisflokknum. Sumir einörðustu
stuðningsmenn R-listans munu án
efa skoða þann kost nú að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn í fyrsta sinn, enda
styðja 3 af hverjum 5 Reykvíking-
um Sjálfstæðisflokkinn samkvæmt
könnunum. Með sigri Sjálfstæðis-
flokksins í vor verður ráðdeild, skipu-
lag og valfrelsi að veruleika í stað
stöðnunar. Þetta vilja Sjálfstæðis-
menn. Þetta velja Reykvíkinga
Höfundur erframkvcemdastjóri.
Klippt & skoríð
Sú frétt að Bubbi Morthens hefði stefnt
365 prentmiðlum og fyrrverandi
ritstjóra Hér
og nú vegna sérkenni-
legrar umfjöllunar um
sig hefur vitaskuld vak-
ið nokkra athygli, enda
hefur Bubbi talsvert
unnið fyrir 365. Eins
hefur mönnum orðið
starsýnt á bótakröfuna,
þvíhún nemur20 milljónum króna, en lögmað-
ur Bubba, Sigríður Rut Júlíusdóttir, segir að
minna dugi ekki til ef 365 miðlar eigi að láta
dóminn sér að kenningu verða. Hugmyndin
kann að vera rétt, en aðrir benda á að 365 hafi
látið sér stórfellt tap ýmissa miðla sinna í léttu
rúmi liggja.
Wi
Bubbamálið á sér þó ýmsar birting-
armyndir. Þegar Stöð 2 greindi frá
þessari frétt (fyrrakvöld brá mörgum
í brún þegar þeir sáu mynd-
skreytinguna. Að baki frétta-
manninum mátti nefnilega sjá
Bubba... á forsíðu Séðs og
heyrðs! Nú er það svo að sumir systurmiðlar
Stöðvar 2 þykja ekki par fínir á þeim bæ, en
það hlýtur þó að mega sýna þau óhreinu börn
þegar fréttin snýst um þá, frekar en að klína
þessu á samkeppnina.
Guðmundur Magnússon fjallar í Frétta-
blaðinu í gær um sfmhringingar
frambjóðenda í prófkjöri sjálfstæðis-
manna. Þarminnist hann á ómarkvissar„blindar
hringingar"frá kosningaskrifstofum þeirraGísla
Marteins Baldurssonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálms-
klipptogskorid@vbl.is
sonar, þar sem bláókunnugt fólk hringir til þess
að kynna sinn mann á fremur
vélrænan hátt. Hins vegar hrós-
ar hann Júlíusi Vífli Ingvarssyni,
sem hringi sjálfur í sem flesta
til þess að kynna sig. (þessu
samhengi má svo minna á
eina glæsilegustu úthringiherferð stjórnmála-
sögunnar, en það var þegar Bill Clinton bauð sig
fram í síðara skiptið. Þá var kynnt að herferðin
væri að hefjast og að Bill sjálfur myndi taka
þátt (henni. Síðan var farið að hringja. I hvert
sinn, sem símsvari eða talhólf varð fyrir svörum,
drógu sjálfboðaliðarnir sig í hlé en settu segul-
band af stað: „Hæ, þetta er Bill Clinton! Mig lang-
aði til þess að ræða við þig um forsetaembættið
og kosningamar, en þú varst ekki við..." Þannig
„misstu" tugþúsundir Bandaríkjamanna af sím-
tali við forsetann og þeir kusu hann víst allir.