blaðið - 04.11.2005, Side 18
18 I ¥EIM
FðSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Laxveiðimarkaðurinn:
Veltir þremur milljörðum árlega
Laxveiðimarkaðurinn veltir hærri
og hærri upphæðum á á hverju ári
og leiga á laxveiðiánum hefur hækk-
að stjarnfræðilega síðustu tvö, þrjú
árin. Slegist er um þær ár sem losna,
og nú er svo komið að leigutakar
reyna ávallt að semja áður en leigu-
samningar falla úr gildi og fáar veiði-
ár eru því á „lausu“ þessa dagana.
Markaðurinn tók kipp, eftir að
leigan á Víðidalsá í Húnavatnssýslu
hækkaði úr 31 milljón króna í 52
milljónir og fleiri veiðiár fylgdu í
kjölfarið eins og Miðfjarðará í Húna-
vatnssýslu. Hún er komin í svipaðar
upphæðir og Víðidalsá hvað leigu-
verð varðar á ánni.
Stórfyrirtæki kaupa
Reyndar hefur gengið vel að selja í
Víðidalsá og er hún víst næstum upp-
seld næsta sumar. Gera má ráð fyrir
að ein ástæðan fyrir því að hægt sé
að selja veiðileyfi á eins háu verði og
raun ber vitni er að stórfyrirtæki
eins og íslensku bankarnir eru með-
al viðskiptavina. En veiðimenn sem
hafa veitt í Viðidalsá í fjölda ára hafa
ekki keypt veiðileyfi í ánni í sumar,
þeir ætla margir annað til veiða.
„Mér dettur ekki hug að kaupa
veiðileyfi fyrir 90 þúsund daginn,
sem ég keypti á 40 þúsund fyrir ári
síðan. Við ætlum annað að veiða
næsta sumar,“ sagði veiðimaður sem
hefur veitt í Víðidalsá í 20 ár.
Þegar leið á sumarið, var ekki
möguleiki á að kaupa veiðileyfi í
veiðiánum, þau voru öll fyrir löngu
uppseld. Það hefur ekki gerst í mörg
ár, alltaf hefur eitthvað verið til af
veiðileyfum þegar veiðitíminn var
úti. Veiðin var reyndar mjög góð og
árnar gáfu fína veiði. 54 þúsund lax-
ar á land, er meiriháttar.
„Við erum búnir með veiðileyfin
fyrir löngu, færri komust að en vildu,
þú getur reynt næsta sumar,“ sagði
leigutaki sem er með þrjár veiðiár,
þegar við höfum samband við hann
í ágúst og reyndum að fá eina stöng.
Það gekk ekki með nokkru móti.
Veltir gríðarlegum Qármunum
Leigan á laxveiðiánum og sala á
þeim veltir um 2 milljörðum árlega.
Ekki er eingöngu um beina sölu á
veiðileyfum að ræða því ýmislegt er
í kringum þennan iðnað, svo sem
rekstur veiðihúsa, leiðsögumenn
og fleira. Sá hluti laxveiðiiðnaðar-
ins veltir á hverju ári um einum
milljarði, en almennt má segja um
þennan geira að upphæðir í honum
og velta fari hækkandi með hverju
árinu.
Veiðifélagið Laxá er stærsti aðilinn
á markaðnum, en gera má ráð fyrir
að hann sé með um helmingi meiri
veltu en Stangaveiðifélag Reykjavík-
ur sem kemur næst. Síðan koma
Strengir, Sporður, Pétur Pétursson,
Brynjólfur Markússon og fleiri.
Sala næsta sumars gengur vel
Veiðileyfasalan er komin á fullt fyr-
ir nokkru sem er töluvert fyrr en í
venjulegu ári. Hefðin er að salan
hefjist af fullum krafti í nóvember
mánuði. Veiðimenn innlendir og er-
lendir ætla greinilega að tryggja sér
veiðileyfin tímanlega eftir metveiði
í sumar.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
hefur verið með veiðileyfi í forsölu
og hefur það gengið vel. Verðskrá
Stangaveiðifélags Reykjavíkur kem-
Níu rjúpur eftir
fimm daga ferð
Það voru margir sem fóru á rjúpu
um síðustu helgi, þrátt fyrir frek-
ar slæma spá og síðan slæmt veð-
ur. Af einum fréttum við sem fór
út á Fellsströnd og varð næstum
úti vegna veðurs. Það var hins-
vegar nokkur sárabót að sá fékk
ur út eftir nokkra daga og verður
spennandi að sjá hvað er boðið
og hvaða verð eru í gangi. Stanga-
veiðifélagið gaf þá yfirlýsingu fyrir
skömmu að veiðileyfin myndu ekki
hækka mikið hjá þeim fyrir næsta
sumar nema í fáum tilfellum.
Þrátt fyrir að sala á veiðileyfum
sé löngu hafin er að sjálfsögðu eng-
in leið að spá fyrir um hvernig veið-
in muni verða næsta sumar. Veiði-
menn vona hinsvegar að tveggja ára
laxinn mæti í meira mæli en í sumar.
Þrátt fyrir að gaman sé að veiða 2,5
til 3,5 punda laxa er glíman við þá
stærri miklu skemmtilegri. Það vita
veiðimenn mætavel.
þó nokkuð af fugli. Hópur einn
fór norður í Fljót á föstudaginn
og lenti í margs konar hremming-
um og komst ekki heim fyrr en
seint á þriðjudaginn. Fimm daga
ferð og rjúpurnar voru níu, sem
er nú ekki mikið. En það er ekki
aðalmálið að veiða sem mest, held-
ur að hafa gaman af ferðinni og
útiverunni sem getur fylgt svona
vetrarferðum um landið.
SPORTBÚÐ TÍTAN
SKOTVEI0AR ÚTIVIST & KAJAKAR
Rjúpnaskot + skotbelti á 990.- Rjúpnaskot 790.-
Krókháls 5a 110 Revkiavík Sími: 517 8810 Fax:517 8814 SDortbud@sportbud.is
WWW SP0RTBUD iS
Veðurfarið setti
strik í reikninginn
„Ég fór á rjúpu síðastliðinn sunnu-
dag, en það stóð stutt yfir. Það var
bylur og ófærð og við snérum til
baka í bæinn þar sem veður fór
versnandi,“ sagði Arnar Hjaltested,
sem var einn af þeim fjölmörgu sem
fór til rjúpna um síðustu helgi.
„Við vorum búnir að fara nokkr-
um dögum áður og þá fengum við
nokkrar rjúpur. Ég reikna ekki með
að fara aftur fyrr en eftir nokkra
daga, en þá er ég að fara norður,“
sagði Arnar ennfremur.
„Við vorum í næsta nágrenni við
Húsavík og fengum ágæta veiði, það
voru nokkrir að skjóta þar sem við
vorum og flestir voru að hafa eitt-
hvað af fugli,“ sagði skotveiðimaður
á Húsavík.
Tveir félagar fóru á Öxnadalsheið-
inaogfengumi2fugla,þarhefurver- ustu daga, en misjafnt hvað menn
ið slæðingur af mönnum á rjúpu síð- hafa verið að fá.
Arnar Hjaltested og Rúnar Vilhjálmsson með rjúpur sem þeir fengu fyrir nokkrum dögum.
.isnes.is