blaðið - 04.11.2005, Side 20
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaöið
20
Kuldaofnœmi er sjaldgœfur sjúkdómur
Fólkhefur dáið úr kuldaofnœmi
Það hafa ekki margir heyrt um
kuldaofnæmi enda er það sjald-
gæfur sjúkdómur. Þrátt fyrir það
þjáist hópur íslendinga af kuldaof-
næmi sem gerir það að verkum að
það má ekki borða ís eða drekka
kalda drykki. Einkennin eru oft
væg en geta líka leitt til dauða.
Björn Rúnar Lúðvíksson, dósent
í klínískri ónæmisfræði við
Háskóla íslands, segir að kuldaof-
næmi geti meira að segja valdið
því að fólk flytjist búferlum.
Björn Rúnar segir að til séu nokkrar
tegundir kuldaofnæmis. „Kuldaof-
næmi er stór flokkur sjúkdóma og
hann er til í nokkrum formum. Það
eru bæði til form þar sem þetta ger-
ist bara upp úr þurru, eins og margir
aðrir sjálfsofnæmissjúkdómar sem
við flokkum þetta með. Það eru líka
til form af þessu sem eru fjölskyldu-
bundin og erfast, ríkjandi arfhneigð
og víkjandi arfhneigð.“
Upphleypt útbrot og stórir flekkir
Björn talar um að aðrir sjúkdómar
geta fylgt kuldaofnæminu. „Þarna
99.........................
Svo eru einstaka ein-
staklingar sem þola til
dæmis ekki að borða
ís eða að drekka mjög
kalt vatn og fá þá
ofnæmisviðbrögð á
varir, tungu eða í kok.
er um mjög stóran flokk sjúkdóma
að ræða sem er með margskonar
og mismunandi einkenni en algeng-
asta formið er að fólk fái upphleypt
útbrot og stóra flekki sem eru fljót-
ir að hverfa og skilja lítið eftir sig.
Það er þetta klassíska kuldaofnæmi,
síðan getur fólk verið með aðra
sjúkdóma sem gætu haft sjúkdóms-
einkenni sem eru ekkert ósvipuð
og þessi klassíski flokkur tilheyrir.
Sérstaklega þegar fólk er að fram-
leiða svokölluð kuldamótefni en þá
falla mótefni út í vefjum líkamans
við ákveðna kælingu. Mótefnin eru
þá tengd gigtsjúkdómum, sjálfs-
ofnæmissjúkdómum og jafnvel
krabbameini. Það er að mörgu sem
þarf að huga enda er þetta flokkur
sjúkdóma sem geta haft margskonar
ástæður og ein af þeim geta verið
þetta kuldaofnæmi.“
Flutt af norðlægum slóðum
Björn Rúnar segir að þó einkenni
kuldaofnæmis séu misjöfn þá getur
ofnæmið líka verið lífshættulegt.
„Það hefur gerst að fólk hefur dáið
úr kuldaofnæmi vegna þess að það
hefur fengið ofnæmislost. Þá verður
blóðþrýstingsfall og það getur lok-
ast fyrir öndunina. Það eru líka til
það slæm einkenni af kuldaofnæmi
að fólk hefur ekki getað verið á
norðlægum slóðum og þurft hrein-
lega að flytja,“ segir Björn Rúnar
og bætir við að það hafa ekki verið
gerðar rannsóknir á hve algengt
kuldaofnæmi sé á íslandi en þetta
sé tiltölulega sjaldgæfur sjúkdóm-
ur. „Einkenni kuldaofnæmis koma
fram þegar snögg kæling á yfirborði
Mikill kuldi getur valdið einkennum hjá þeim sem hafa kuldaofnæmi og þvi er nauðsyn
legt að klæða sig vel.
húðar verður. Svo eru einstaka ein-
staklingar sem þola til dæmis ekki
að borða ís eða að drekka mjög kalt
vatn og fá þá ofnæmisviðbrögð á var-
ir, tungu eða í kok.“
Ofnæmið komið til að vera
Samkvæmt Birni Rúnari er hægt að
greinast með kuldaofnæmi hvenær
sem er en þegar um ættlægan sjúk-
dóm er að ræða þá er langalgengast
að það greinist strax í barnæsku eða
á unglingsárum. „Þegar kuldaof-
næmi gerir vart við sig hjá einstak-
lingi þá er það yfirleitt komið til að
vera. Það er þó einstaka einstakling-
ur sem losnar við það og þá helst
einstaklingar sem eru með áunna
formið. Hluti þeirra getur læknast
af sjálfum sér.“ Björn Rúnar segir
að það sé ekki vitað nákvæmlega
hvað valdi kuldaofnæmi en erfðir
og umhverfisþættir ráði örugglega
einhverju.
Alltaf vel klæddur
Þegar Björn Rúnar er spurður hvort
fólk með kuldaofnæmi á íslandi sé
inni í 9 mánuði á ári hlær hann og
segir: „Nei, það er einn og einn sem
er mjög slæmur en flestir ná að halda
þessu niðri með því að passa sig og
með lyfjagjöf. Einfaldasta leiðin er
ofnæmistöflur sem ná að halda ansi
mörgu niðri. Það þarf alltaf að vera
vel klæddur, með trefil fyrir vitum
þannig að ekki verði mikil kæling
við það að anda að sér. Það er svoleið-
is atriði sem fólk með kuldaofnæmi
passar sig á.“
svanhvit@vbl.is
TVviinlab
COLON CARE
Gegn maga- og ristilkvillum
Langtum meira en bara trefjar
Útsölustaðir: Apótek og heilsuverslanir
www.medico.is
Akralind 3, 201 Kóp
Nýtt frá dr. Gillian McKeith,
pEDjl |\| flf) EfefW
iínni\inimön
LIQUID NUTRIENT SHOT
Hráir og óunnir blágrænir þörungar
í vökvaformi. Næringarefnin í
þörungnum eins vítamín, steinefni,
prótein, amónísýrur og fitusýrur
nýtast allt að 90% þar sem þeir
eru í vökvaformi.
,.*íé.°DUCTs«í?\
ii BEST fi
"Næringarskotið er %pbSdoctJJ
orkubomba einstaklega
næringarrikt, meltanlegt og '--••••...
nýtanlegt jurtabætiefni sem heldur mér
og sjúklingum mínum orkumiklum og
HRAUSTUM, Gillian...
Dropamir eru einstaklega ríkir af steinefnum,
próteinum og vítamínum. Mjög mikið
er af B-12 vítamíni, eitt það mesta sem
hægt er að fá úr náttúruríkinu. Hentar
öllum frá eins árs.
Utsölustaðir eru:
Lyfja, Lyf & heilsa, sjálfstæð apótek um allt land,
Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Yggdrasill,
Maður lifandi, Lyfjaval, Blómaval, Heilsubúðin
Njálsgötu, Heilsuhornið Akureyri.
Þú ertþað sem þú borðar
ið hefur
kynhvöt
Dr. Gillian McKeith segir óhollustu stríð á hendur.
áhrifá
Dr. Gillian McKeith er klínískur
næringarfræðingur sem hefur
öðlast heimsfrægð vegna mikill-
ar baráttu sinnar við matarræði
Breta. Sjálf segist hún hafa alist
upp á óhollu mataræði en það
breyttist snögglega eftir að hún
komst í kynni við konu sem losn-
aði við krabbamein með því að
breyta mataræði sínu. Árið 2004
gaf Gillian út bók sem nefnist í ís-
lenskri þýðingu: „Þú ert það sem
þú borðar“ og á hún að breyta
lífi þeirra sem lesa. í bókinni fer
Gillian í gegnum mataræði og
hollustu auk þess sem hún fjallar
heilmikið um almenna heilsu og
vellíðan.
Til að fólk átti sig betur á hve mikla
óhollustu það borðar tekur Gillian
sem dæmi súrsætt svínakjöt með
steiktum hrísgrjónum, en að neyta
þess er líkt og að borða 14 teskeiðar
af sykri og einn tuttugasta úr svína-
feitisstykki. 1 hamborgaramáltíð,
hamborgara, frönskum og gosdrykk
eru 38 teskeiðar af sykri og 1/5 af
svínafeitisstykki. Þetta er óneitan-
lega áhugaverður samanburður og
gefur nýja sýn á mataræði margra.
Matur hefur áhrif á kynþokka
Gillian segir að hollur matur sé ekki
einungis mikilvægur til að grenna
sig heldur örvi hann líka hugarafl,
létti skapið, dragi úr streitu, auki
lífskraft auk þess að stuðla að heil-
brigðara hjarta. Að sama skapi segir
hún að óhollur matur hraði öldrun,
rugli einbeitingu, veiki ónæmiskerf-
ið, hafa neikvæð áhrif á kynhvöt og
svo mætti lengi telja. Gillian leggur
auk þess mikla áherslu á að hollur
matur bæti ekki einungis skap og Hð-
an heldur hefur hann töluverð áhrif
á kynþokka lika.
Minniháttar breytingar
jörbreyta líðan
bókinni eru ýmsum kvillum sem
meðalmaðurinn glímir við lýst og
bent á leiðir sem leysa vandamálið.
Sem dæmi má nefna flösu sem get-
ur verið óttalega þreytandi vanda-
mál en Gillian segir að með því
taka tvær teskeiðar af hörolíu á dag
hverfi vandamálið eins og dögg fyr-
ir sólu. Gillian tekur fram að hún
leggi ekki áherslu á það sem fólk á
ekki að borða heldur vill hún vekja
athygli á hundruðum nýrra fæðuteg-
unda sem fæstir hafa kannski heyrt
minnst á. Jafnvel minniháttar breyt-
ingar á matarvenjum getur gerbreytt
allri líðan samkvæmt Gillian.
Ávextir hollir og góðir
1 bókinni kemur fram að gott mata-
ræði getur rofið vítahring löngun-
ar, sykurs og þyngdaraukningar og
eina lausnin er að borða fjölbreyttan
og næringarríkan mat. Hollur matur
nærir ekki einungis líkamann held-
ur kemur líka reglu á blóðsykurinn
svo einstaklingur sökkvi ekki í lægð.
Ekki sé þó ætlunin að svipta einstak-
linginn öllum sætindum enda séu
ávextir bæði hollir og góðir auk þess
að uppfylla eðlilega sætuþörf. ■