blaðið - 04.11.2005, Page 22
22 I BESTI BITIWM
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 Maöi6
Gómsœt gœðamáltíð
Fylltar pönnukökur á franska vísu
Frakkar hafa án efa haft mikil áhrif á matarmenningu í heiminum - að minnsta kosti að eigin mati. Þeir hafa vissulega boðið upp á margt
misjafnt eins og froskalappir og snigla en virðast hafa hitt naglann á höfuðið með því að framleiða crépes, stórar pönnukökur fylltar með
alls kyns hnossgæti. Nýja kökuhúsið í Borgarkringlunni sálugu bauð fyrst upp á þessa nýjung en nú eru fleiri kaffihús farin að gefa við-
skiptavinum sínum kost á að smakka þessa sígildu frönsku matseld sem finnst á hverju götuhorni Parísarborgar. Þrátt fyrir að pönnukökur
séu í hugum flestra íslendinga sætur eftirréttur er einnig að finna matarmiklar pönnukökur sem virka fullkomlega sem gómsæt heit máltíð.
Blaðið ákvað að fá sér hollan hádegismat og smakkaði því crépes á fjórum góðum stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
agnar. burgess@vbl. is
Stórgóð og falleg máltíð
Café Adesso er ungt kaffihús í verslunarmiðstöðinni Smáralind sem státar
af fagmönnum í eldhúsinu. Matseðillinn er fjölbreyttur og hvort tveggja
má finna gómsætt bakkelsi sem stærri máltíðir. Mikið er gert úr crépes
matseðli staðarins en þar er að finna 12 mismunandi fylltar pönnukökur
auk þess sem gestum er velkomið að velja innihaldið eftir eigin höfði. Vin-
sælustu pönnukökurnar eru skinku crépes og kjúklinga crépes sem kosta
850 krónur en Blaðið ákvað að gæða sér á flaggskipi matseðilsins, BBQ kjúk-
lingabringu crépes. Maturinn var glæsilega framreiddur í mjúkri og bragð-
góðri pönnuköku. Satt best að segja kom fyrsti bitinn verulega á óvart þar
sem maturinn var mun ljúffengari og saðsamari en ég þorði að vona og átti
ljósmyndarinn erfitt með að slíta mig frá matnum. Sósan var vel dreifð sem
og maturinn allur innan fallega samanbrotinnar kökunnar. Bragðið var
mjög góð blanda BBQ sósunnar og meðlætisins og gerði gífurlega vel við
bragðlaukana. Til þess að toppa veisluna var boðið upp á banana crépes í
eftirrétt með ís ávöxtum og berjum sem rétti magann af eftir góða máltíð. Á
framsetningunni og bragðinu mátti vel merkja að kokkurinn er meðlimur í
eftirréttalandsliði Islands. Pönnukökurnar á Adesso eru fyllilega þess virði
að fara sérferð í Smáralindina fyrir alla sælkera og áhugafólk um góðan mat,
að ekki sé talað um svanga.
ne
'>'«<• I I-
VWUHDKK.
Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið meö rifsberjahlaupi og sem ídýfa.
Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem
salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar.
BBQ kjúklingabringu crépes með hrísgrjónum, gulum baunum, rauðlauki og salati kostar 1.180 krónur á Café Adesso. Banana crépes
með ís og berjum kostar 720 krónur.
Alveg eins
og París
Kaffi París er rótgróinn staður í
hjarta bæjarins sem Reykvíkingar
þekkja vel. Eins og við er að búast
af stað sem kennir sig við höfuðborg
Frakklands er boðið upp á crépes
og má með sanni segja að vel hafi
tekist að endurskapa stemninguna
sem einkennir bistro menningu Par-
ísar. Þar getur maður setið meðal
jakkafataklæddra bankastjóranna
og gætt sér á einni af fjórum matar-
miklu crépes pönnukökunum sem
staðurinn hefur upp á að bjóða. Hin
sígilda skinku og osta pönnukaka á
sinn stað á matseðlinum sem og ein
með pepperoni, pasta og sólþurk-
uðum tómötum. Sú þriðja er fyllt
með karríhrísgrjónum, rækjum
og osti en ákveðið var að smakka
crépes með eggjahræru, beikoni og
osti. Það verður að segjast að þessi
„frönsk matargerð kynnist enskum
morgunverði" hittir beint í mark
og verður Kaffi París fyrsta stopp
á næsta sunnudagsbíltúr. Vel er gef-
ið af beikoni og eggjahræran alveg
eins og þær eiga að vera. Pastasalat
sem fylgir með er gott á milli bita
sem tryggir að maginn ræður vel
við þessa saðsömu pönnuköku. Mað-
ur gengur mettur og sáttur í Austur-
strætið, beint inn í iðandi mannlíf
miðborgarinnar.
Crépes með eggjahræru, beikoni og
bræddum osti á Kaffi París kostar 850
krónur. Einnig má fá gamaldags upprúll-
aða pönnuköku með sykri á hundraðkall.
Frum-
kvöðullinn
Hún Björk á Nýja kökuhúsinu var
upphafsmaður crépes á íslandi í
Borgarkringlunni sem var og hét.
Þar var ávallt nóg að gera og hafa
vinsældirnar engan veginn dalað
með nýrri staðsetningu við Stjörnu-
torgið í Kringlunni. Greinilegt er
að Björk er stolt af þeim áhrifum
sem pönnukökurnar hafa haft
á Islendinga þar sem stórt skilti
sýnir matseðilinn við innganginn.
Seðillinn hefur að geyma einar
tíu crépes auk þess sem nýjungin,
Tikka Masala kjúklinga crépes, er
kynnt á hógværum miða. Vinsæl-
asta pönnukakan er með skinku,
osti, hrísgrjónum, papriku, púrru
og sósu að eigin vali og verður að
segjast að bragðið er ólíkt því sem
annars staðar fékkst. Það er mjög
greinilegt að frumkvöðlinum er
umhugað um að halda byltingunni
áfram og fannst það enn betur á
tikka masala pönnukökunni sem
reyndist skemmtileg blanda af Ind-
landi og Frakklandi. Vel var gefið á
diskinn og var maturinn seðjandi
og bragðgóður. Til að setja punkt-
inn yfir i-ið var bragðað á einni
sætri crépes með banönum, Grand
Marinier, rjóma og súkkulaði í eftir-
rétt en hún bráðnaði gjörsamlega í
munninum svo maður gekk vígrei-
fur en ánægður mót ljóma ótíma-
bærra jólaskrey tinga Kringlunnar.
Crépes með skinku, osti, hrísgrjónum,
papriku púrru og sósu kostar 760 krónur
á NK Café. Sæt crépes með banönum,
Grand Marinier, rjóma og súkkulaði kost-
ar650ásamastað.
Hátíð fyrir
bragðlaukana
Babalú er yngsta og að mínu mati
vinalegasta kaffihús borgarinnar
um þessar mundir. Nánast eins og
að amma gamla hafi skellt sér í int-
errail, kynnst fullt af góðu fólki og
boðið því að opna kaffihús á efri
hæðinni. Úrvalið á matseðlinum
kemur á óvart miðað við stærð eld-
hússins en þar má finna fjölmarga
rétti, og einnig crépes. Eins og ann-
ars staðar er boðið upp á nokkrar
matarmiklar pönnukökur og nokkr-
ar sætari sem eftirrétt. Þær mat-
armiklu sem í boði eru innihalda
skinku, ost og egg (650 krónur), Serr-
anoskinku, ost og egg (690 krónur),
3 osta og krydd (670 krónur) og spín-
at, fetaost og sólþurrkaða tómata
(650 krónur). Ákveðið var að skella
sér á þá síðastnefndu og var engin
eftirsjá í því. Framsetningin var ein-
föld en smekkleg og brotið á pönnu-
kökunni var samskonar og gert er á
fínni veitingahúsum Parísar. Bragð-
ið svíkur engann því innihaldið gaf
ítalskan keim og pönnukakan var
bragðmikil og safarík, gaf seyðandi
og gott bragð. Crépes með þessari
samsetningu var sú skemmtilegasta
og besta sem smökkuð var í þessari
ferð. Skammturinn var alveg mátu-
legur þar sem vel má ímynda sér
að ekki sé hægt að torga miklu af
pönnukökum sem þessum.
Crépes með spínati, fetaosti og sólþurrk-
uðum tómötum kostar 650 krónur á
Babalú við Skólavörðustíg. Sætar pönnu-
kökur bjóðast einnig fyrir rétt rúmar 300
krónur.