blaðið - 04.11.2005, Side 24
24 I WEYTEWDUR
+
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaðiö
Lærum að tala saman,
á öllum norrænu
tungumálunum
Nordklúbburinn, ungmennadeild Norrœna félagsins, stendur um þessar mundir fyrir
tungumálanámskeiðum undir formerkjum „Tölum saman“. í þetta skiptið verður boðið
uppá kennslu í rússnesku og samísku og verður kennt eftir aðstœðum á ensku og/eða ís-
lensku. Engin kunnáttuskilyrði er settfyrir þátttöku heldur er einungis krafist áhuga að
hálfu þeirra sem skrá sig.
Nordklúbburinn býður upp á kynningarnámskeið í norrænum tungumálum.
Til þess gerð að vekja áhuga
Að sögn Virpi Jokinen, verkefna-
stjóra hjá Norræna félaginu, þá er
um að ræða mjög stutt námskeið
eða einungis þrjú kvöld. Námskeið-
in eru aðallega hugsuð til þess að
fólk hafi gaman af því að kynnast
nýjum tungumálum og fái jafnvel
áhuga á að heimsækja það land sem
um ræðir eða jafnvel fari að læra
málið af meiri alvöru. „Það er ekki
stefnan að fólk læri tungumálin
fullkomnlega heldur frekar að nám-
skeiðin kveiki áhuga," segir Virpi.
Hún segir ástæðuna fyrir því að
boðið sé uppá kennslu í samísku í
þetta sinn, einfaldlega vera að sam-
ískan væri eina norðurlandatungu-
málið sem þeir hefðu ekki kennt á
þessum námskeiðum. Við höfum
reyndar ekki verið með dönsku og
sænsku því það eru mál sem við
teljum að allir ættu að þekkja,“ seg-
ir Virpi en bætir við að þau hafi nú
þegar verið með svona námskeið þar
sem grænlenska, færeyska, norska
og finnska hafi verið kynnt. Þá hafi
þau einnig verið með námskeið í
tungumálum Eystrasaltslandanna
Eistlands, Lettlands og Lítháens. Þá
stóð félagið einnig fyrir tungumála-
maraþoni nýlega þar sem tíu evr-
ópsk tungumál voru kynnt á einu og
sama kvöldinu.
Rússneskunámskeiðin vinsæl
Virpi segir að Nordklubburinn hafi
byrjað að bjóða uppá rússnesku-
námskeið í fyrravetur og að þau
hafa notið það mikilla vinsælda að
halda þurfti aukanámskeið. Vegna
ítrekaðra fyrirspurna var ákveðið
að halda námskeiðið aftur núna þar
sem ljóst var að síðast komust færri
að en vildu. Virpi segir að pláss sé
fyrir um 20 manns á hverju nám-
skeiði ef að vel á að fara um fólkið.
„ Það hafa verið fleiri á einhverjum
námskeiðum og þá hefur verið svolít-
ið þröngt, en á milli 10-20 manns er
sá fjöldi sem við stefnum að hérna á
skrifstofunni." Hægt er að skrá sig
á námskeiðin á skrifstofu Norræna
félagsins og er skráningarfrestur til
7. nóvembér.
t.juliusson@vbl.is
• Smurþjónusta ■
• Peruskipti ■
■ Rafgeymar-
FRAMLENGJUM íNOKKfíA DAGA
Þú færð heilsársdekk með
20% afslætti hjá Bílkó.
■ÚIMCtJ
COODjfYÍAR
JimjGiamiE
Zp^unny
High Performanct Tyrms
MjOQdddd GÖOMmm?
BUEKO
Betri verð!
bilkoHs
Smiójuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Simi 557-9110
Evrópska
neytenda
aðstoðin
Á alþjóðavæddum tímum þá er
verslun ekki lengur bundin við
þær verslanir sem eru innan
landamæra neytandans. Nú er
hægt að panta sér vörur allstaðar
að úr heiminum án sérstaklega
mikillar fyrirhafnar hvort sem
er í gegnum netið eða með ann-
arskonar fjarskiptatækni, enda
er heimurinn á góðri leið með
að verða að einu markaðssvæði.
Þó kemur fyrir að menn verði
fyrir vonbrigðum með viðskiptin
þar sem að vörurnar gætu verið
gallaðar eða jafnvel skemmdar
þegar að þær skila sér til neytand-
ans. Þá virðast mörgum öll sund
lokuð en svo er ekki, eða allavega
ekki innan stórs hluta evrópska
efnahagssvæðisins.
17 aðildarríki
Til er stofnun sem sett var upp af rík-
isstjórnum 17 landa í Evrópu, þar á
meðal íslands, í samvinnu við fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
sem ber nafnið Evrópska neytenda-
aðstoðin. Hún hefur verið sett upp
í aðildarríkjum hennar til þess að
gera neytendum það auðveldara fyr-
ir að fá upplýsingar og aðstoð við að
leysa úr deilum vegna viðskipta við
fyrirtæki í þeim löndum sem eiga að-
ild að þessum samningi. Hún hjálp-
ar neytendum að takast á við þær
hindranir sem verða á vegi þeirra ef
þeir þurfa að nota úrskurðarnefndir
í öðrum löndum en sínu eigin heima-
landi. Þessar hindranir geta verið af
ýmsum toga en þær helstu eru aðal-
lega upplýsingaskortur um erlendar
úrskurðarnefndir og tungumála- og
landfræðilegar hindranir sem gera
neytandanum erfitt fyrir að koma
kvörtun sinni áleiðis. Neytendaað-
stoðin hjálpar neytandanum með
upplýsingar og styður hann í kröfu-
gerð án þess að fara í gegnum dóms-
kerfið í því landi sem viðkomandi
vara er framleidd eða þjónusta veitt.
Hún býður líka ney tandanum upp á
það að fylgjast með framvindu máls
síns og tilkynnir honum um niður-
stöðu þess.
Ekki nógu margir sem vita af þessu
Á íslandi annast Neytendasamtökin
rekstur Evrópsku neytendaaðstoð-
arinnar á grundvelli samnings við
íslenska ríkið. Að sögn írisar Aspar
Ingjaldsdóttur, lögfræðings hjá Neyt-
endasamtökunum og stjórnanda
Evrópsku neytendaaðstoðarinnar á
íslandi, er þessi þjónusta einungis
fyrir einstaklinga, ekki fyrirtæki,
sem finnst á þeim brotið á einhvern
hátt í viðskiptum milli þeirra landa
sem aðild eiga að þessum samningi.
Hún segir að það séu bæði útlending-
ar sem hafa átt viðskipti hér á landi
og Islendingar sem hafa keypt vörur
erlendis frá sem snúa sér til aðstoð-
arinnar. „Það er nú eitthvað um það
að fólk leiti til okkar, en náttúrulega
ekki eins mikið og við vildum enda
virðast ekki margir vita af Evrópsku
ney tendaaðstoðinni," segir íris. Hún
segir að helstu umkvörtunarefni
hingað til hafi verið varðandi ferðir
af ýmsum toga og snúa kvartanirn-
ar þá vanalega að einhverjum flug-
félögum eða bílaleigum. Ef að fólk
hefur þörf fyrir aðstoð við að koma
kvörtunum sínum í rétta farvegi þá
er hægt að setja sig í samband við
Neytendasamtökin á Islandi sím-
leiðis eða í eigin persónu eða senda
Evrópsku neytendaaðstoðinni tölvu-
póst á netfangið ena@ena.is.
7 0 meginreglur Neytendavemdar Evrópusambandsins
1. Kauptu það sem þú vilt, hvar sem þú vilt
2. Reynist það gallað, skilaðu því til baka
3. Háir öryggisstaðlar fyrir matvæli og aðrar neysluvörur
4. Þú átt að vita hvað þú borðar
5. Samningar eiga að vera sanngjarnir gagnvart neytendum
6. Stundum geta neytendur skipt um skoðun
7. Auðveldur verðsamanburður
8. Neytendur eiga ekki að vera blekktir
9. Vernd ífríinu þínu
10. Úrlausn ágreinings í viðskiptum yfir landamæri
Löndin sem eru aðilar að Evrópsku neytendaaðstoðinni:
Austurríki
Danmörk
Frakkland
Grikkland
írland
Lúxemborg
Noregur
Spánn
Bretland
Belgía
Finnland
Þýskaland
(sland
Ítalía
Holland
Portúgal
Svíþjóð