blaðið - 04.11.2005, Side 26
26 I SAMSKIPTI KYWJAWNA
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Samskipti unglinga
Sigríður Birna Valsdóttir er
kennari og leiklistarmeðferð-
arfræðingur og kennir leiklist
í Hagaskóla, hún hefur unnið tals-
vert með unglingum bæði hérlendis
og í Bandaríkjunum. Fyrir tveimur
árum kom út bók eftir Sigríði og
Berglindi Sigmarsdóttur sem heit-
ir Hvað er málið? Bókin fjallar um
ýmislegt sem við kemur ungu fólki,
m.a. samskiptum og er notuð í lífs-
leiknikennslu í sumum grunnskól-
um.
Sigríður segir að stærsti hluti ung-
linga eigi heilbrigð samskipti við
hvort annað. “Lykillinn að góðum
samskiptum er góð sjálfsmynd,” seg-
ir Sigríður og bætir við að ef sjálfs-
myndin sé í lagi og unglingarnir
ánægðir með sjálfa sig þá vinni þeir
vel saman. Sigríður hefur mest unn-
ið með hóp 13-15 ára unglinga og m.a.
sett upp með þeim leiksýningar. „Ég
veit að sumir krakkarnir eiga kær-
ustur eða kærasta en auðvitað breyt-
ist þetta meira þegar þau eru komin
upp í menntaskóla,“ segir Sigríður.
Hún segir suma krakka á þessum
aldri byrjaða að stunda kynlíf en að
meirihluti stundi það með einhverj-
um sem þau þekkja. „Það getur eng-
inn ákveðið hvenær unglingar eigi
að byrja að stunda kynlíf nema þeir
sjálfir," segir Sigríður.
Sterk sjálfsmynd er grunnur
að góðum samskiptum.
Sigríður segir sjálfsmynd unglinga
skiptir miklu máli í öllum samskipt-
um. „Ef sjálfsmynd er góð verða öll
samskipti heilbrigð en léleg sjálfs-
mynd getur valdið óheilbrigðu sam-
skiptamynstri,“ segir Sigríður. Hún
segir þá sem hafa slaka sjálfsmynd
lenda í því að reyna að gera öðrum
til hæfis, þetta verður síðan til þess
að unglingar ganga auðveldlega
fram að sjálfum sér og gera jafnvel
hluti sem þá langar ekki til að gera.
„Þetta á kannski meira við um stelp-
ur sem eru komnar í samband og
láta jafnvel ýta sér út í kynlíf án
þess að vera tilbúnar,“ segir Sigríður.
Hún segir dæmi þess að ungt fólk
ræði ekki opinskátt um kynlíf við
hinn aðilann í sambandinu og allt í
einu séu þeir jafnvel komnir út í að-
stæður sem þeir ráða ekki við.
Sigríður segir lykilatriði að ung-
lingar tali saman og segi hvernig sér
líði og bætir við að sér finnist sms
skilaboð og tölvusamskipti að sumu
leyti hafa staðið í vegi fyrir eðlileg-
um samskiptum. „Það vill enginn
láta segja sér upp með sms skilaboð-
um,“ segir Sigríður. Hún segir að
unglingar þori meiru þegar þeir eru
ekíci nálægt hverjir öðrum og þá sé
hægt að segja hluti sem þeir sjá síð-
an eftir.
Sigríður segist ekki sjá mikinn
mun á samskiptamynstri unglinga
nú og þegar hún var að alast upp en
segir mátt auglýsinga og fjölmiðla
vissulega meiri núna. Fjölmiðlar
hafa áhrif á sjálfmyndina á neikvæð-
an hátt, auglýsingar ýta á það að þú
þurfir að eiga það nýjasta af öllu.
Sigríður segir nokkuð um að sam-
bönd unglinga endist lengi, jafnvel
upp í menntaskóla.
„Að vera á föstu er hluti af uppvext-
inum og enginn getur sagt að þetta
sé eitthvað sem unglingar eigi ekki
að gera,“ segir Sigríður. Hún hefur
mikla trú á ungu fólki, og veit að
það er heilbrigt, skynsamt og ábyrgð-
arfullt upp til hópa.
Hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
ATVINNA
UMBROTSMAÐUR OSKAST
í fullt starf hjá Blaðinu
Vegna aukinna umsvifa óskar Blaðiö
eftir að ráða umbrotsmann í fullt starf,
WAUÐYNLEG KUNNATTA
Reynsla af hönnun/
umbroti
Tæknileg þekking
InDesign
Illustrator
Photoshop
Umsækjandi þarf
að geta hafið störf
sem fyrst
. ÍT., ^
VOG
23. SEPTEMBER - 23. OKTÓBER
HVAÐ SEGIR FREYJA UM KYNIN?
Fólki í vogarmerkinu er yfir-
leitt félagslynt og jákvætt.
Vogin er yfirveguð og flestir
i þessu merki eru dipíómatiskir og
hafa mikla þörf fyrir að halda frið-
inn við annað fólk. Þó að þetta séu
sterk einkenni Vogarinnar hefur
hún oft frumkvæðið á félagslegum
sviðum og mikla hæfileika til stjórn-
unarstarfa. Það má segja um margar
Vogir að þær séu ljúfar frekjur. Það
á illa við Vogina að beita hörðu og
hætt við að hún nái þá ekki settu
marki.
Vogin ætti að hafa það hugfast að
í ástarmálum ráða oftast tilfinning-
arnar en ekki skynsemin. Önnur
mál skoðar hún oftast frá mörgum
sjónarhornum og af þeim sökum er
hún oft lengi að gera upp hug sinn.
Að því loknu stendur hún fast á mein-
ingu sinni sem nálgast þrjósku.
Vogin á erfitt með að horfa upp
á óréttlæti, hún stendur því oft ein
á móti mörgum og er föst á skoðun
sinni. Margar Vogir eru frægar fyrir
að gera ekki mannamun. Vogin get-
ur verið mjög skapstór en í flestum
tilfellum kann hún vel að fara með
það.
KARLMAÐUR í VOG
Karlmaður í þessu merki getur verið
afar geðstirður ef honum finnst aðr-
ir haga sér heimskulega. En hann
eins og konan vill hafa allt angandi
af hreinlæti í kringum sig, bæði
heima og á vinnustað. Þú getur eins
vel átt von á því að Vogarkarlinn að-
hyllist gamaldags verkaskiptingu á
heimilinu. Helst af öllu vill hann að
konan sé heima og hugsi um heimil-
ið og allt angi af hreinlæti og köku-
bakstri þegar hann kemur heim.
Þessir menn þurfa að varast of
mikla viðkvæmni í sambandi við at-
vinnu sína og þá sérstaklega ef þeir
eru með sjálfstæðan rekstur.
í klæðaburði er hann afar smekk-
legur þó svo að hann hafi kannski
ekki efni á að ganga i merkjafatnaði
sem honum myndi líka best. Hann
PEKKTFÓLK
íVOGAR-
MERKINU:
Jóhanna Sigurðardóttir
Friðrik Sophusson
Ellert B. Schram
Birgitte Bardot
John Lennon
Eleanor Roosevelt
Áhrifastjörnur þessa merkis
eru Venus, Tunglið og Júpíter.
Happadagur er miðvikudagur.
Happalitir er grænt og rautt.
Heillasteinar eru ópal og agatar.
Happatölur eru oftast 4 og 6.
er jafnt smart í gallabuxum og köfl-
óttri skyrtu og dökkum jakkafötum.
Svo undarlegt er það. Vogarkarlinn
elskar að ganga með flott belti með
áberandi sylgju og hann hefur gam-
an af því að skreyta sig t.d. með arm-
bandi, bindisnælu og einhverju um
hálsinn.
Líkamlega erfið störf höfða ekki
til þessarra manna, miklu fremur
eitthvað skapandi og listfengt.
Hann þarf að muna að hjónaband-
ið leggur honum á herðar ábyrgð og
skyldur sem ekki er hægt að hliðra
sér hjá. Hann þarf að vera vel á varð-
bergi með að gefa ástvinum ekki
átyllu til afbrýði eða tortryggni sem
gæti sært þá sem hann elskar án
þess að gerir sér það ljóst.
KONAlVOG
Heimili Vogarkonunnar er venju-
lega smekklegt og angar af hrein-
læti. Hún er hugmyndarík og hefur
mikla sköpunargáfu. Hún hefur
gaman af að punta upp hjá sér. Þeir
sem þekkja konur í þessu merki
verða ekki hissa á því að hún sé búin
að gera jólaþrif á eldhússkápunum
snemma í október. Það er líka ótrú-
lega algengt að þessi kona setji blúnd-
ur framan á allar hillur í skápunum
þar sem því verður komið við.
Vogarkonan getur verið yndisleg
og afar þokkafull, næstum sama
hverju hún klæðist, hún er alltaf
smart. Flestar konur í þessu merki
eru sportlegar í klæðaburði en geta
auðveldlega gengið um í glæsilegum
samkvæmiskjólum og verið tignar-
legar. I mannfagnaði finnst þeim
gaman að láta skína í vitsmuni sina
og vertu viss að áður en langt líður
munu karlmenn sópast að henni til
þess að koma sínum áhugamálum
á framfæri. Vogarkonan er sérstak-
lega góður hlustandi og hún kann
að nýta sér þær upplýsingar sem
hún fær í þessum samtölum.
Það getur verið erfitt að vera gift-
ur Vogarkonu, en þær eru yfirleitt
trygglyndar og verða bæði undrandi
og sárar þegar eiginmaðurinn finn-
ur að þvi hvað mikið af karlmönn-
um hópast í kringum þær. Vissulega
var hún ekki að hugsa um neitt ann-
að en að tala við skemmtilegt fólk.