blaðið - 04.11.2005, Page 34
34 i
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaðið
Tónleikar með
Ylfu Lind
Söngkonan Ylfa Lind kemur með
sína fyrstu plötu sem heitir „Petite
Cadeau". Utgáfutónleikar henn-
ar verða á Classic Rock í Ármúla,
klukkan 22:00 laugardagskvöldið
5. nóvember. Helgi Valur hitar upp
og miðaverð er 1.200. Þá verður ball
með Kalla Bjarna. Miðar seldir á
midi.is. Margir þekkja Ylfu Lind frá
því að hún bræddi hjörtu íslendinga
með söng sínum í Pop Idol þar sem
hún náði langt. ■
Sýningarlok í
Nýlistasafninu
Grassroad, sýningarlok og
útgáfupartí verður á morgun 5.
nóvember kl.19 í Nýlistasafninu.
Undanfarið hefur gestum safnsins
gefist kostur á að skoða vaxtarbrodd
íslenskra sjónlista. Sýningunni
lýkur í sölum safnsins nú um
helgina en tekur þá hamskiptum og
nýr vettvangur lista og menninga
mun líta dagsins ljós. Grasrótarritið
verður gefið út í fyrsta skipti og
býður Nýlistasafnið til hófs af því
tilefni.
Húsið opnar kl 19:00 þar sem
gestum er boðið að líta frumburðinn
augum og kveðja sýningu safnsins.
Uppákomur verða af ýmsum toga
meðal annars mun Haukur Már
Helgason lesa upp úr verkum
sínum, Arnaldur Máni Finnsson
fremur gjörning og Böðvar Ingi
Jakobsson/Brútal tekur lagið.
Klukkan 21:00 verður III. ísland
þjörkum skorið / Terraformer. Þá
munu hetjur tónlistageirans heyja
einvígi í ofuruppsetningu Baldurs
Björnssonar og Kolbeins Huga
Höskuldssonar Vinir að eilífu /
Buddies Forever. í ritinu verða
birtir metnaðarfullir textar og
myndverk eftir fólk úr hinum ýmsu
menningarheimum. ■
Útgáíutónleikar
Hjálma á Flúðum
Föstudaginn 11. nóvember kl. 21
heldur hljómsveitin Hjálmar útgáfu-
tónleika í félagsheimilinu á Flúðum.
Miðasala hefst 2.nóvember og fer
fram í verslunum Skífunnar og BT
út um allt land og á midi.is. Húsið
opnar kl. 19.30 og tónleikarnir hefj-
ast stundvíslega kl. 21. Gert er ráð
fyrir glaumi og gleði langt fram
eftir kvöldi og fram á nótt og er allt
eins líklegt að fjörið haldi áfram á
hinum alræmda Útlaga fram undir
morgun.
Nýjasti geisladiskur sveitarinnar
kom út fyrir skemmstu og heitir
hann því stutta og laggóða nafni
Hjálmar. Diskurinn var einmitt tek-
inn upp í félagsheimilinu á Flúðum
og má því segja að hvergi sé meira
viðeigandi að halda útgáfutónleika
en einmitt þar. Disknum hefur ver-
ið einkar vel tekið og þeir dómar
sem þegar hafa birst verið mjög
jákvæðir. Lögin Geislinn í vatninu
og Ég vil fá mér kærustu hafa verið
mikið í spilun á útvarpsstöðvunum.
Geimsteinn gefur plötuna út. ■
Upplestur í Ið n
uin helgina
Á laugardaginn hefst upplestur í bókabúð Iðu í Lækjargötu. Barnabóka-
upplestur hefst klukkan 14:00 og þá verður dagskráin eftirfarandi:
Laugardagur Sunnudagur spilar á gítar og syngur bakraddir, Gudmar Hansen sér um bassaleik 4. nóv. Gaukurinn með Dimmu.
15:20 Opnun Opnun og Magnus Hansen spilar á tromm- ur og syngur bakraddir. Að eigin sögn er SIC vinsælasta Thrash Met- Fyrst klukkan 5, “all-ages” show þar sem frítt er inn.
15:25 Hera Hj. LeoneTinganelli al-bandið í Færeyjum. í 48 Pages eru Frans Arge Galán 4. nóv. Gaukurinn með Dimmu. Seinni tónleikar seint um kvöldið.
15:30 Upplestur Upplestur sem sér um gítarleik og syngur, Edmund 1 Garði spilar á gítar, Útgáfutónleikar Dimmu, þeir spila uppúr miðnætti og síðan færeysku
15:35 Hera (lag 2) Tinganelli (lag 2) hljómborð og syngur, Bartal Læars- son leikur á bassa og Eyðun Muller böndin. 500 kall inn.
15:55 JóhannaVigd JóhannaVigd Thomsen sér um trommuleik og for- ritun. Hljómsveitin er tveggja ára, 5. nóv. Hellirinn í Tónlistarþróunar- miðstöðinni kl. 20.00. 500 kall inn.
16:00 Upplestur Upplestur en skipti um gítarleikara síðasta sumar. Hún spilar þungt pönkrokk. Fram koma, auk færeysku sveitanna, Vonbrigði, Modern Day Majesty og
16:05 Ljóð Ljóð Hljómsveitirnar munu spila með hinum og þessum listamönnum Bulldozer.
16:10 Hansa (JóhV) Hansa um helgina, en svona er dagskráin þeirra: 6. nóv. Dillon kl. 21.00 48 pages, SiC og Sign. Frítt inn. ■
Hvíldardagskvöld Grandrokk og Laugarás-
vídeó með Bob Dylan
Hvíldardagskvöld
með Bob Dylan
Næsta Hvíldardagskvöld fer fram á
Grandrokki á sunnudagskvöldið 6.
nóvember. I þetta skiptið verður haf-
ist handa við að taka fyrir einhvern
helsta læriföður rokksins, Bob Dyl-
an. Yfirferð um slíkan meistara rúm-
ast engan veginn á einu kvöldi og
því verður sérstakur seinni hluti á
dagskrá strax að viku liðinni, þann
13. nóvember.
Eitt áhrifamesta söngva-
skáld Bandaríkjanna
Bob Dylan er eitthvert áhrifamesta
söngvaskáld Bandaríkjanna, fyrr og
síðar. I meinleysislegri lognmollu
dægurtónlistarinnar, í upphafi
sjöunda áratugarins, steig skáldið
fram á sjónarsviðið, vopnaður kassa-
gítar og opinberaði einlægni sína í
lagasmíðum og orðfæri sem átti eng-
an sinn líka.
Dagskrá á hvíldardags-
kvöldi er eftirfarandi:
20:00 - 20:50 Popppunktur. Jan
Mayen og Rokksveit Rúnars Júl.
keppa.
20:50 - 22:40 No Direction Home:
Fyrri Hluti. Heimildamynd, úr
smiðju Martin Scorsese, þar sem
fjallað er um upphafsár Bob Dylans
í bransanum. Seinni hlutinn verður
á dagskrá að viku liðinni.
22:40 - 01:00 Ýmsar tónleika- og
sjónvarpsupptökur frá 1963-66.
Sýningar hefjast stundvíslega kl.
20:00 á 2.hæð Grandrokks og er að-
gangur ókeypis. Allir sannir tónlist-
arunnendur eru eindregið hvattir til
þess að fjölmenna á þessa metnaðar-
fullu dagskrá sem einungis fer fram
í þetta eina sinn á risaskjá og í góðu
hljómkerfi. ■
Fœreyska innrásin
Færeysku hljómsveitirnar 48 pages
og SIC eru staddar hér á landi í
stuttri tónleikaferð. Þetta er í ann-
að skipti sem þær koma hingað til
spilamennsku, en SIC kom í janúar
á þessu ári, en 48 pages voru hér um
sumarið 2004 og spiluðu um allt fs-
land á 10 dögum.
Meðlimir SIC eru Mikkjal Gaard
Hansen sem syngur, Eddie Jacob-
Tónleikar á Gauknum
Craze og MC Armanni Reign
á Gauknum laugardagskvöld
Dagskrá helgarinnar
Á morgun verður stórviðburður í
heimi neðanjarðartónlistar þegar
kynntur verður þrefaldur heims-
meistara plötusnúða DJ Craze og
MC Armanni Reign á Gauknum.
DJ Craze er með færustu plötu-
snúðum heims en hann er þrefaldur
DMC (Disco Mixing Club) heims-
meistari í einstaklingskeppni. Hann
er einn af máttarstólpunum í því
sem í seinni tíð hefur verið kallað
turntableism (stundum kallað skíf-
uskank á íslensku) en í því felst að
líta á tvo plötuspilara og mixer sem
meira en bara tól til að spila tónlist
annarra heldur að nota þessi hefð-
bundnu tæki plötusnúða til eigin
tónlistarsköpunar. Craze hóf ferill
sinn sem hip hop plötusnúður en í
seinni tíð hafa drum & bass og bre-
akbeat tónar orðið stór hluti af spila-
mennsku hans. Honum til halds og
traust verður MC Armani Reign
með hljóðnemann við hönd og mun
sjá um halda dansgólfinu gangandi.
Tónleikar og annað:
Föstudagurinn 4.nóvember 2005
KI.17:30 Pub Quiz á Grandrokk, Kynnir er
Páll Guðmunsson, mæting stundvíslega.
Kl. 18:00 í Smekkleysu Plötu-
búð / Gallerí Humar eða frægð,
Bandaríska hljómsveitin
Kl. 20:30 Idol á risaskjá
The Foghorns leikur.
Á Dillon munu Vaginas leika.
Á Grandrokk er Ijóð, fönk og rapp.
Laugardagurinn S.nóvember 2005
Kl. 15:00 í Smekkleysu Plötubúð /
Gallerí Humar eða frægð, Kira Kira
Johnny Poo og We Painted The Walls.
Kl. 22:00 Á Grandrokk leika Amon
Amarth, Sólstafir, Nevolution og
Dark Harvest. 20 ára aldurstakmark
og miðaverð er 1.200 krónur.
Dansleikur með hljómsveitinni
Logar frá Vestmannaeyjum i
Klúbbnum við Gullinbrú
Plötusnúðar á skemmti-
stöðunum:
Föstudagurinn 4.nóvember 2005
Dillon Dj Andrea Jónsdóttir
sér um að þeyta skífurnar
A Kaffibarnum munu Hadda
og Edda þeyta skífurnar
Kl. 0:00 Á Prikinu eru dj
Blue lagoon og dj Árni.
Á Bar 11 verður Palli í Maus.
Á 22 verður Gulli í Ósóma.
Laugardagurinn 5.nóvember 2005
21:00 Á Prikinu eru Franz og Kristó
þá tekur Dj Benni Bóner við
Dillon Dj Andrea Jónsdóttir
sér um að þeyta skífum
Á Kaffibarnum verður Kári
Á bar 11 verður Krummi í Mínus.
Á 22 verður Gulli í Ósóma.