blaðið - 04.11.2005, Side 38
38 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 biaðiö
Japanskt Formúlu
i lið stofnað
Kumite-mót
ámorgun
Á morgun laugardag verður
keppt í Kumite (frjálsum bar-
daga) í Fylkishöllinni, Árbæ.
Mótið hefst kl. io:oo í fyrra-
málið og að þessu sinni er það
frekar fámennt og mun því
ekki taka langan tíma. Keppt
verður í eftirfarandi greinum:
Kumite karla -70 kg.
Kumite karla -75 kg.
Kumite karla -80 kg.
Kumite karla +80 kg.
Kumite karla opinn flokkur.
í liðakeppni karla verður keppt
í 3 manna liðum +1 varamað-
ur og í Kumite kvenna verður
keppt í opnum flokki.
Skýringin á fámenni kepp-
enda á þessu móti er annars
vegar sú að á síðasta þingi
sambandsins var settur 18 ára
lágmarksaldur keppenda á
ÍM-kumite. Hins vegar eru
ýmsar hefðbundnar skýringar
svo sem nám, og annað slíkt.
DHL-deild-
iníkvöld
Þrír leikir eru í DHL-deildinni
í handknattleik karla i kvöld.
Þór Akureyri og FH mætast í
íþróttahöllinni á Akureyri og
hefst leikurinn klukkan 19.00.
Þórsarar eru í 8.sæti með 7
stig en FH er í næstneðsta
sæti með 4 stig. Það verður því
hörkurimma á Akureyri í kvöld.
Klukkan 20 eru tveir leikir.
HK og Víkingur/Fjölnir leika í
Digranesi en HK-ingum hefur
ekki gengið vel það sem af er.
Aðeins 5 stig í i2.sæti en Víking-
ur/Fjölnir er í neðsta sæti með
3 stig. Selfoss og Fram mætast
á Selfossi. Framarar eru í öðru
sæti með 11 stig en Selfyssingar
eru í 9.sæti með 7 stig. Á þessu
má sjá að það verða án efa
hörkuleikir allsstaðar í kvöld og
ekki má gleyma viðureign Vals
og Fram í DHL-deild kvenna
sem fer fram í Laugardals-
höll og hefst klukkan 18.00.
Fyrrum Formúlu 1 ökumaður frá
Japan, Aguri Suzuki hefur stofnað
nýtt Formúlu 1 lið sem er ætlað að
koma Japan almennilega á kort-
ið í kappakstri. Aguri mun njóta
tæknilegs stuðnings frá Honda og
tilkynnti formlega um tilurð liðsins
í Tokyo í gær sem nefnist Super Ag-
uri Honda.
Super Aguri bílarnir verða með
Honda vélum. Stefna liðsins er að
keppa á næsta ári, en til þess þarf
hann að hafa hraðar hendur. Hann
hefur þegar lagt fram 48 miljón
dala tryggingu fyrir þátttöku til
FIA, alþjóða bílasambandsins. Lík-
legt er að Japaninn Takuma Sato og
Anthony Davidson verði ökumenn
liðsins, en þeir hafa ekið fyrir BAR
síðustu ár. Hjá BAR verða Jenson
Button og Rubens Barrichello sem
áður ók Ferrari.
Nico Rosberg, sonur Finnans Keke
Rosberg fyrrum heimsmeistara í
Formúlu 1 var staðfestur sem öku-
maður Williams í dag. Hann mun
aka með Mark Webber hjá Williams
árið 2006 og hefur gert langtíma-
samning við liðið. Rosberg er heims-
meistari í GP2 sem er næsta móta-
röð fyrir neðan Formúlu 1.
Rosberg er aðeins 20 ára gamall
og er fæddur í Þýskalandi. Faðir
hans er finnskur en móðirin þýsk
og hann telst þýskur. Þó er ljóst að
Finnar muni vilja eiga sinn skerf
í pilti. „Ég hef trú á að margir séu
spenntir fyrir komu Rosberg í
Formúlu 1. Rosberg á eftir að verða
stór hluti af sögu Formúlu 1“, sagði
Frank Williams í morgun um ráðn-
ingu Rosberg.
Faðir hans Keke varð meistari í
Formúlu 1 með Williams á árum
áður.
Rosberg verður yngsti ökumaður-
inn á ráslínunni á næsta ári og sá
fjórði af þýskum ættum sem keppir
2006, en fyrsta mótið er í Barein í
mars. Rosberg var aðeins 17 ára gam-
all þegar hann prófaði Williams bíl
í fyrsta skipti og þá þótti hann geysi-
lega flinkur og hafði mikið tækni-
legt innsæi.
„Við erum í viðræðum við Sato
og það er ljóst að Japan verður í önd-
vegi í öllu í framsetningu liðsins.
Við viljum sjá japanska fánann á
efsta þrepi verðlaunapallsins“, sagði
Aguri Suzuki í gær. Þá er hugsanlegt
að japanski ökumaðurinn Kosuke
Matsuura eigi möguleika á sæti í
stað Davidson, en Matsuura hefur
keppt í bandarískri mótaröð við góð-
an orðstír.
„Það kemur til greina að vera með
tvo japanska ökumenn, eða tvo öku-
menn frá öðrum löndum. Það er allt
opið, enn sem komið er. Aðalmálið
er að koma málinu heim og saman
og ná á ráslínu fyrir mars 2006 og
við erum ekki B-lið Honda, við ætl-
um á toppinn.“, sagði Suzuki í gær
á fréttamannafundi þegar hann til-
kynnti þessa ákvörðun sína. B
Rosberg mun aka með Williams
á æfingum í lok nóvember, en þá
reynir liðið nýja V8 vél frá Cosw-
orth. „Ég hlakka til samstarfsins
með Williams og vonast til að læra
sem mest fyrir fyrsta mótið“, sagði
hinn ungi Rosberg í morgun. Pabbi
Rosberg vann fimm sigra í Formúlu
1 og varð meistari 1992. „Ég vonast
til að gera betur. Ég tel að ég geti orð-
ið betri en pabbi, þó ég ætli mér ekki
að bera mig saman við hann öllum
stundum", sagði finnski ökuþórinn
Nico Rosberg sem verður í Formúlu
1 kappakstrinum á næsta ári. ■
HHBe
Laugardaginn 5. nóvember kl. 10
Komið og sjáið
bestu karatemenn landsins
berjast um íslandsmeistaratitilinn!
Aðgangur ókeypis
KARATESAMBAND
ÍSLANDS
Rosberg staðfestur hjá Williams
omsTumHusiB
Manchester United-Chelsea á sunnudag:
Tapar United þriðja
leiknum á viku?
Manchester United og Chelsea mæt-
ast á sunnudag í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu og fer leikurinn
fram á Old Trafford í Manchester.
United sem er í 7.sæti deildarinnar
fékk háðuglega útreið í deildinni síð-
astliðna helgi þegar Middlesbrough
vann rauðu djöflana 4-1. í vikunni
lék svo United gegn Lille í Frakk-
landi í Meistaradeildinni og þar
unnu frakkarnir 1-0. Eftir leikinn
þar gerðist það að 5.000 áhangendur
Manchester United sem fóru á leik-
inn í Frakklandi bauluðu á leikmenn
síns liðs þegar þeir fóru af velli. Sir
Alex Ferguson framkvæmdastjóri
hefur þurft að þola harða gagn-
rýni að undanförnu vegna ákveð-
inna leikmanna og fyrirliði liðsins
Roy Keane lét taka viðtal við sig á
MUTV sjónvarpsstöðinni sem síð-
an var slegið af. Sir Alex sagðist eftir
leikinn í Frakklandi skilja viðbrögð
áhangenda félagsins. Án nokkurs
vafa þá vilja þessir áhangendur sjá
okkur sigra. Þeir hafa fylgt okkur í
gegnum súrt og sætt. Þeir voru líka
svona þegar við höfðum ekki unnið
titilinn í 20 ár og ég er viss um að
þeir verða svona áfram. Við erum
ekki í okkar besta formi þessa dag-
ana en við verðum að berjast í gegn-
um þetta", sagði Sir Alex Ferguson
eftir tapleikinn gegn Lille.
Um leikinn sem er framundan
gegn Chelsea á sunnudag sagði Sir
Alex. „Það verður ekki auðveldur
leikur, einfaldlega vegna þess að
Chelsea er í stórkostlegu formi þessa
dagana. Þeir eru langefstir í deild-
inni en við höfum getu til að breyta
því. Það mikilvægasta fyrir okkur er
að fá aftur sjálfstraustið og komast
aftur á sigurbraut", sagði Sir Alex
Ferguson framkvæmdastjóri Manc-
hester United. B
Poll dæmir United-Chelsea
Dómarasamband Englands hefur
valið Graham Poll til að dæma stór-
leik Manchester United og Chelsa
sem fer fram á sunnudaginn i ensku
úrvalsdeildinni. Poll sem er 42ja ára
gamall hefur verið í tveggja leikja
banni eftir uppákomu í æfingabúð-
um dómara fyrir keppnistímabilið
sem var haldið í Áldershot. Þar
ákvað Poll að fara með fjölskylduna
til Jamaica. Þetta var nokkuð sem
dómarasambandið sætti sig ekki
við og setti Graham Poll í tveggja
leikja bann. Poll sem er talinn einn
besti ef ekki besti dómari Englands,
hefur verið settur á þennan stórleik
Manchester United og Chelsea í úr-
valsdeildinni á sunnudag en hann
kemur einnig til með að dæma í úr-
slitakeppni HM í Þýskalandi næsta
sumar. Við fáum því toppleik og
toppdómara á sunnudaginn í enska
boltanum. _
Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 5870600, www.tomstundahusid.is
HPI Nitro MT-2,2,5 mótor, 4x4,
hámarkshraði 70km/klst.