blaðið - 04.11.2005, Page 46
46 I FÖLK
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2005 blaðið
STJÓRNMÁLA-
FÓLK ER EIGIN-
GJARNT OG LYGIÐ
* Einstaka sinnum kemur það fyrir að
Smáborgarinn verður orða vant, eins
og í dag, Smáborgarinn hefur í raun
ekkert að segja, það er ekkert sem
liggur á honum. En pistillinn verður að
birtast engu að síður svo Smáborgar-
anum verður að láta sér detta eitthvað
í hug. Hugmyndaleysi Smáborgarans
á sér kannski samfélagslegar skýringar, I
kannski er bara ekkert að gerast í þjóð-
félaginu. Thelmu-málið er dautt og
allir löngu búnir að gleyma þeim tug-
um barna sem eru misnotuð daglega.
Vitanlega vorkenndum við Thelmu
" og dáðumst að henni fyrir dugnað
sinn en við nennum nú ekki að hugsa
í um slfkt volæði á hverjum degi, þrátt j
; fyrir að það gæti bjargað einhverjum
börnum úr prísundum. Sveitarstjórnar-
I kosningar eru framundan og við
getum ekki snúið okkur við án þess
að sjá risastórt andlit frambjóðenda
„ sem eru að ota sínum tota og freista
þess að vinna kosningar sinna flokka.
Flestir frambjóðendurnir, að mati Smá-
borgarans, eru eiginhagsmunaseggir
j og einungis í framboði til að hagnast |
sjálfum sér. Öll umræða er um að þessi
frambjóðandi ætli að laga samgöngur,
þessi ætli að taka til í leikskólamálum
bæjarfélagsins og enn annar ætli að
skoða launamálin. Allt er þetta bull og
vitleysa. Um leið og þetta fólk er kom-
ið í feitu sætin í borgar-eða bæjarstjórn
þá gleymir það kjósendum sínum eins
hratt og innistæðan I bankanum hækk-
ar.En það er alltaf gott að sitja íþessum
stjórnum því þá er hægt að redda vin-
um og fjölskyldumeðlimum um greiða.
Smáborgarinn er gamall Kópavogsbúi
og ber taugar til gamla bæjarins, þrátt
fyrir að vera fluttur. Einhvem veginn
, tekst Kópavogsbúum alltaf að kjósa
einhverja vitleysinga í bæjarstjórn en
Smáborgarinn er fullur vonar að I þetta
skipti verði breyting á. En óttinn býr
alltaf undir niðri og Smáborgarinn ótt-
ast sérstaklega að brosmildur maður
á grænum væng komist áfram enda
' er sá maður þekktur fyrir að hygla fjöl-
skyldu og vinum. En til að enda þenn-
f- an pistil á jákvæðum nótum þá vill
Smáborgarinn gleðjast með yfirmönn-
um KB-banka sem græddu hundruð
milljóna. Það eralltaf gaman þegarfólk
græðir fullt af peningum vegna vafa-
I samra og siðlausra samninga.
HVAÐ FINNST ÞER?
Össur Skarphéðinsson, alþingismaður.
Hvað finnst þér um fréttir
af fangaflutningum CIA?
„Mér finnst að utanríkisráðherra eigi þegar í stað að banna allar
heimildir, til þeirra flugvéla sem vitað er að hafa tekið þátt í þessum
ólögmætu fangaflutningum, til lendingar eða yfirflugs hér á landi. Það
er svarta lágmark. Ég tel að það sé allsendis óverjandi að minnsti grun-
ur leiki á að ísland sé misnotað til þess að flytja meinta hermdarverka-
menn til landa þar sem hugsanlega er beitt pyntingum við yfirheyrslur.
Ég tel því að við eigum að stappa rækilega niður fæti og láta Bandaríkja-
menn heyra það með óþvegnum hætti hversu óstinnt við tökum þessum
meintu brotum. Þess vegna tel ég að Alþingi eigi að samþykkja ályktun
þar sem því er lýst að ekki komi til greina að ísland tengist slíku athæfi
á nokkurn hátt.“
Pamela á móti leðri
Pamela Anderson er ein þeirra stjarna sem veit hvað hún vill. Hún er mjög á
þarflausum drápum á dýrum og nú hefur hún skrifað til bílaframleiðanda
Mercedes-Benz um að framleiða dýravingjarnlegri gerð af lúxuskerrum
þeirra. „Dýr sem drepin eru vegna skinnanna þjást vegna einangr-
unar, hræðslu og kvalafullra misþyrminga á meðan á flutningi
og slátrun stendur, og vöntunar á öllu því sem er náttúrulegt“,
skrifaði Pamela til yfirmanns hjá Daimler-Crysler samsteyp-
unni. „Ég vil ekki eiga neinn þátt í þessu ferli, en mig langar
í Bens. í dag finnst fólki leður ekki endilega vera dæmi um
lúxus, heldur dæmi um dautt illa lyktandi skinn.“ bætti
hún við. Talsmaður dýraverndunarsamtakanna PETA
sagði að Mercedes-Benz hefði tekið
mark á þessari athugasemd og í
framtíðinni væru allar gerðir bíla
þeirra framleiddar leðurlausar.
Ozzy heiðraður
Ozzy Osbourne og hljómsveit hans Black Sabbath hljóta inngöngu í Heiðurs-
klúbb breskrar tónlistar, UK Music Hall Of Fame. Ozzy hafði þetta um málið að
segja: „1 fyrsta skipti á ævinni er ég orðlaus, en mjög hamingjusamur og glaður
með þetta og að sjálfsögðu er þetta heiður“. Hann íekur við verðlaununum ásamt
Bob Dylan, Pink Floyd, Jimi Hendrix, New Order, The Who og The Kinks.
John Peel heitinn verður gerður að sérstökum heiðursmeðlimi. Athöfnin
mun eiga sér stað í Alexandra Palace í London, þann 16. nóvember næst-
komandi.
Posh segir David
dressa sig upp
Victoria Beckham hefur viðurkennt að hún leyfi manni sínum David Beck-
ham að velja á sig föt. Hún segir uppáhalds klæðnað sinn á árinu vera bláan og
hvítan kjól frá Roberto Cavalli, sem hún klæddist á dansleik sem Elton John
hélt. Þegar hún var spurð hvers vegna hún hafi ákveðið þennan kjól svaraði
hún: „David finnst hann svo flottur. Hann ákveður oft í hvað ég eigi að fara.“
Victoria segir líka að hún vilji gjarnan að David gangi í Speedo-fötum, en ann-
ars fari allt honum vel.
Atnetmu
Eitt sinn yfirheyrði ég samtal tveggja
manna þar sem annar var að tala
um uppgang sinn í opinbera geir-
anum og gaf hinum yngri, sem var
að feta sín fyrstu fótspor í opinbera
geiranum ráð. Ég læt hér með fylgja
njósnir mínar af þessum fundi til
* að gefa fólki innsýn í hugarheim
hins opinbera starfsmanns. Sá eldri
byrjaði: - „Komdu þér strax inn og
reyndu að fá starf sem ‘verkefna-
stjóri’ yfir mjög illa skilgreindu verk-
efni. Skilaðu síðan strax inn skýrslu
þar sem þú ferð fram á heimild til
þess að ráða aðstoðarmann til þess
að sinna jafn viðamiklu verkefni"
Ég fór að velta því fyrir mér hversu
illa ég þoli opinbera starfsmenn. Það
er ekki vegna þess að ég telji að þeir
séu vont fólk eða illa uppaldar mann-
eskjur. Það er einfaldlega vegna kerf-
isins sem þeir vinna í. Kerfið er alger
v plága á þjóðfélagið. - „Þegar þú ert
kominn með þennan aðstoðarmann
þá skaltu fá hann í það verkefni að
- finna fleiri verkefni svo þú getir rétt-
lætt það að ráða fleiri starfsmenn.
Þegar þeir eru komnir þá ert þú allt
í einu orðinn stjórnandi og þarft að
hækka í launum“. Kerfið virkar þann-
ig að eftir því sem þú hefur meiri
mannráð og fjárráð, þess miklu
valdameiri og hærra í kerfinu ertu.
Það er því markmið hvers metnaðar-
fulls manns sem hefur vinnu hjá hinu
opinbera að fá eins mikið fé og mögu-
legt er í sitt svið og hafa eins mikið
af starfsfólki og mögulegt er. - „Fljót-
lega kemur í ljós að það þarf að bæta
vinnuferla, auka kynningarstarf og
efla móralinn á vinnustaðnum. Þá
geturðu farið í að ráða til dæmis
framleiðslustjóra, markaðsstjóra og
mannauðsstjóra til deildarinnar og
í framhaldinu geturðu titlað sjálf-
an þig ‘deildarstjóra’. Stofnanirnar
gömlu sjást ekki svo mikið lengur. 1
stað þeirra eru komnar betur skýrð-
ar „stofur“ sem byrja sem litlar sætar
tilkynningar í hornglugga blaðanna:
„Höfuðborgarstofa opnar dyr sínar
fyrir borgarbúum“, „Lýðheilsustofn-
un tekur til starfa“. En lifna brátt
við sem sjálfstæðar verur sem berj-
ast fyrir tilverurétti sínum og krefj-
ast stöðugt fleiri króna og aura frá
skattborgurum. Man síðan einhver
eftir að ríkisstofnun hafi verið lögð
niður? Reyndar Þjóðhagsstofnun en
þjóðin logaði stafnanna á milli á með-
an á því stóð. Man einhver í dag hvað
Þjóðhagsstofnun gerði?
Óli Örn Eiríksson á deiglan.com
„Guð, eru þeir komnir í framlengingu?
Þú hlýtur að vera uppgefinn."
HEYRST HEFUR...
bCnus
Mokkur titringur er á mat-
vörumarkaðnum eftir
að Hagar,
sem reka
meðal ann-
ars Hag-
kaúp og Bónus, sendu frá sér
afar dapurt uppgjör. Finnur
Árnason framkvæmdastjóri
fyrirtækisins snéri vörn í sókn
strax á fyrsta degi og gaf í skyn
að matvöruverð myndi ekki
hækka, heldur yrði leitað ann-
arra leiða til hagræðingar. í
blöðunum í gær var hann held-
ur farinn að draga í land og
sagði að sú álagning sem væri í
matvörugeiranum stæðist ekki
til lengdar. Margir óttast að gós-
entíð neytenda sé brátt á enda
og að verð á matvöru muni
hækka sem leiðir aftur til auk-
innar verðbólgu.
Sagan segir að fjölmennur
baráttufundur Gísla Mar-
teins í Háskóla-
bíói hafi verið
styrktur af
FL uGr0UP
og Hannesi
'&Srj Smárasyni.
Þessi saga,
semerlífs-
■ H seig í bæn-
,it3mh um, hefur
ar ekki
fengist staðfest en kunnugir
segja að það kosti milljónir að
halda slíka hátíð. Sé það rétt
þá er orðið lítið eftir í buddu
frambjóðandans, sem sagði í
fjölmiðlum að heildarkostnað-
ur við baráttuna yrði undir ío
milljónum króna.
Pað þykir snilldarbragð hjá
BirniBjarnasynidómsmála-
ráðherra að
staðsetja
sérstaka inn-
heimtumið-
stöð sekta á
Blönduósi.
Lögreglan
þar í bæ
hefur nefni-
lega stegið
Islandsmet
í útgáfu umferðarsekta og er
svo komið að það þorir ekki
nokkur maður að aka á meira
en 50 kílómetra hraða þegar
hann nálgast þetta lögregluríki
norðursins. Björn Bjarna er nú
að verðlauna góð störf í þágu
ríkiskassans og geta menn því
framvegis farið með glóðvolgar
sektir beint í innheimtumið-
stöðina sem verður handan við
hornið.
Mikill titringur er á hinum
ýmsu fjölmiðlum vegna
nýrrar fjölmiðlakönnunar sem
Gallup hefur unnið. Sjónvarps-
stöðvarnar
GallUp hafa lagt allt
undir í haust
og hefur slagurinn sjaldan eða
aldrei verið harðari um þær 300
þúsund sálir sem byggja landið.
Blöðin hafa ekki látið sitt eftir
liggja og segir sagan að frídreif-
ing Morgunblaðsins og DV hafi
sjaldan eða aldrei verið meiri
en nú. 1 síðustu könnun mæld-
ist hún allt að 8 prósent af heild-
arlestri þessara blaða og tókst
þeim þannig að hífa upp lest-
urinn og virðist Gallup lítinn
áhuga hafa á að gera eitthvað í
málinu, þrátt fyrir að allt hafi
ætlað um koll að keyra þegar
Stöð 2 vogaði sér um árið að
hafa einhverja dagskrárliði í op-
inni dagskrá í könnunarviku.