blaðið - 26.11.2005, Page 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöÍA
SUSHI
T R H I n
OPNAR 1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
„Ég sagði ekkert sem ekki er satt"
- segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson á blaðamannafundi þar sem hann kynnti greinar-
gerð stna til héraðsdóms. Hann kveðst aldrei hafa haldiðþvífram að Jón vœrifíkniefnasali
eða skattsvikari, en það hafi aðrirgert. Afbrot sitt hafifalist í að segjafrá því.
Viðskipti
Innflutningur á
fólksbílum eykst
Vöruskiptahallinn nam um 5,6 millj-
örðum króna í októbermánuði sem
er um 2 milljörðum meira en á sama
tíma í fyrra, samkvæmt samantekt
Hagstofu fslands. Heildar vöru-
skiptahalli á þessu ári nemur um 77
milljörðum.
Vöruskiptahallinn eykst
Ekkert lát virðist vera á innflutningi
fslendinga og vöruskiptahallinn
heldur áfram að aukast. f október-
mánuði fluttu íslendingar inn vörur
að verðmæti 21,5 milljörðum króna
en á sama tíma var verðmæti útflutn-
ingsvara um 16 milljarðar. Því jókst
heildar vöruskiptahalii í þeim mán-
uði um 5,6 milljarða. Á fyrstu tíu
mánuðum ársins hafa fslendingar
flutt inn vörur að verðmæti 234
milljörðum króna en heildar útflutn-
ingur nemur um 157 milljörðum.
Heildar vöruskiptahallinn er því orð-
inn um 77 milljarðar á þessu ári. Til
samanburðar má nefna að á sama
tíma í fyrra nam vöruskiptahallinn
um 28 milljörðum. Það er því ljóst
að hátt gengi íslensku krónunnar
heldur áfram að hvetja fslendinga
til að stunda viðskipti erlendis og
sem dæmi má nefna að samkvæmt
breytingum við fjárlagafrumvarpið
munu tekjur ríkissjóðs vegna auk-
inna vörugjalda af nýjum bílum auk-
ast um einn og hálfan milljarð.
Mest flutt inn af fólksbílum
í tölum Hagstofunnar kemur einnig
fram að verðmæti vöruútflutnings
fyrstu tíu mánuði ársins nam um
6,7 milljörðum eða um 4,5% meira
á föstu gengi en á sama tíma árið
áður. Þar af voru sjávarafurðir um
59% alls útflutnings og verðmæti
þeirra um 3,4% hærra miðað við
sama tíma í fyrra. Þá voru iðnaðar-
vörur um 35% alls útflutnings. Mest
virðist flutt inn af fólksbílum og
alls konar neyslu- og iðnaðarvörum.
Verðmæti innfluttrar olíu virðist
einnig hafa aukist mikið ekki síst
vegna verðhækkunar erlendis.
AÐEINS FYRIR
KARLMENN
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-15 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
þrófessor í stjórnmálafræði, segist
ekki sjá eftir ummælum sínum um
Jón Ólafsson í Skífunni enda hafi
hann ekki verið að fella áfellisdóma
yfir Jóni, heldur lvst opinberri um-
ræðu um hann á Islandi. „Ég sagði
ekkert sem ekki er satt.“ Þetta gerði
hann á blaðamannafundi í gær. Þar
kynnti hann greinargerð sína til hér-
aðsdóms sem fjallar um aðfararhæfi
bresks meiðyrðadóms yfir Hannesi
sem Jón sótti og vann þar ytra.
„Mig grunaði ekki að Jón Ólafs-
son myndi flytjast til Bretlands og
höfða meiðyrðamál gegn mér í Bret-
landi. Ég gætti þess að haga orðum
mínum þannig að ég væri ekki að
brjóta íslensk lög. Á sama hátt, ef
ég hefði verið í Bretlandi, hefði ég
hagað orðum mínum þannig að ég
væri ekki að brjóta bresk lög,“ sagði
Hannes Hólmsteinn. Hann vísaði
jafnframt til forsíðugreina dagblaða
og tímarita sem sýndu fram á að
ummæli hans um Jón væru á rökum
reist.
Hannes segir aðalefni þessa máls
snúast um tjáningarfrelsið og þá
fyrst og fremst tjáningarfrelsi á
Netinu. Hann kvaðst vera stuðn-
ingsmaður meiðyrðalöggjafar en
að menn yrðu að hafa frelsi til þess
að tjá hug sinn um málefni Hðandi
stundar án þess að þurfa að hafa
áhyggjur af því að einhvers staðar
í heiminum kynnu ummælin að
varða við lög.
Ruddalegur náungi
Hannes reifaði fullyrðingarnar, sem
hann var dæmdur fyrir, en þær voru
í fimm liðum. Sagði hann að þær
mætti flokka í tvennt, annars vegar
gildismat, sem ekki varðaði við lög,
og hins vegar alkunnar staðreyndir,
að minnsta kosti alkunnar á íslandi.
Þar ræddi í fyrsta lagi um þá full-
yrðingu hans, að Jón Ólafsson væri
ruddalegur náungi. Nefndi Hannes
dæmi úr nýútkominni ævisögu Ein-
ars Kárasonar um Jón sem sýndu
að það væri ekki óréttmæt einkunn
um hann. í öðru lagi sagði hann að í
ræðu sinni hefði hann haft eftir full-
yrðingar dagblaða þess efnis að Jón
hefði komið undir sig fótunum með
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
sölu fíkniefna og vísaði m.a. í forsíðu-
grein Pressunnar frá 1990 máli sínu
til stuðnings. Hana ritaði Gunnar
Smári Eglisson, framkvæmda-
stjóri 365 miðla. í þriðja lagi sagði
Hannes Jón Ólafsson hafa verið harð-
skeyttan í viðskiptum, sem hann
kvaðst varla þurfa að rökstyðja
frekar, í fjórða lagi að hann hafi
verið í fjárhagslegum tengslum við
stjórnmálamenn, sér í lagi tengda R-
listanum. Vitnaði Hannes til marg-
víslegra dæmæsem styddu þetta, en
ekki síst til or» Jóns sjálfs í þá veru.
I fimmta lagi lágði Hannes athyglis-
vert, að Jón váfri með „vinnukonuút-
svar“ á samatima og hann bærist
gífurlega á heima sem erlendis og
nefndi hann margvislega opinbera
umfjöllun sem styddi það.
Olíufélögin:
Segjast
grætt á
Ker hf„ sem rekur olíufélagið Esso,
fer fram á það að sérstakir mats-
menn verði kallaðir til að meta
nákvæmlega hver ávinningur
félagsins var af meintu ólöglegu sam-
ráði olíufélaganna. Þetta kom fram
þegar mál Kers hf. var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Öll
félögin halda því fram að þau hafi
tapað hundruðum milljóna á ólög-
legu samráði.
Gerir athugasemdir við mat
Olíufélögin voru dæmd í fyrra til að
greiða stjórnvaldssektir upp á 2,6
milljarða vegna ólögmæts samráðs.
Félögin áfrýjuðu þeim úrskurði og
lækkaðiáfrýjunarnefndsamkeppnis-
mála sektirnar um rúman milljarð.
ekki hafa
samráði
Þessum úrskurði hafa félögin svo
áfrýjað til dómstóla og krefjast þess
að skuldirnar verði felldar niður eða
lækkaðar enn frekar. Fyrir Héraðs-
dómi í gær kom fram að Ker gerir
athugasemdir við aðferðirnar sem
samkeppnisyfirvöld notuðu til að
meta ávinning félaganna af ólög-
legu samráði. Þau vilja að sérstakir
matsmenn verði kallaðir til að meta
hver ávinningur félaganna á að hafa
verið. Samkeppnisyfirvöld mátu á
sínum tíma að félögin hafi til sam-
ans grætt um 6,5 milljarða á samráð-
inu en félögin segja þvert á móti að
þau hafi tapað á því.
Dómstólanna aö ákveða
Heimir Örn Herbertsson, hæsta-
réttarlögmaði r, rekur málið fyrir
hönd Samk :ppniseftirlitsins en
hann segir það aðalatriði að niður-
staða samkeppnisráðs og áfrýjunar-
nefndar liggi fyrir. Öll félögin hafi
viðurkennt samráð og því sé það
ónauðsynlegt að kalla fyrir sérstaka
matsmenn til að leggja huglægt mat
á einhverjar spurninganna. Það sé
dómstólanna að ákveða réttmæti
rannsóknar samkeppnisyfirvalda.
„Þetta hefur ekkert sönnunargildi
að mati samkeppnisyfirvalda. Þess
vegna munum við ekki taka þátt
í þessu matsatriði. Ég lagði fram
bókun l morgun þar sem þetta var
útskýrt,“ segir Heimir og bætir við
að nokkur tími kann að líða áður en
niðurstaða liggur fyrir.
o Heiðskírt 0 Léttskýjað ^ Skýjað ^ Alskýjað
/ Rigning, lítilsháttar ✓ Rigning ? 9 Súld Snjókoma
9 :f:
^7 Slydda Snjóél
Skúr
¥
1A
Amsterdam
Barcelona
Berlln
Chlcago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrld
Mallorka
Montreal
New York
Orfando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
02
09
01
-03
02
01
0
02
05
05
11
-05
0
13
02
01
02
03
01
14
06
07
3°
4-0 3°
0°
%
40
,1'
?
Ámorgun
0°
-V
Veðurhorfur í dag kl: 18.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
0
j* *