blaðið - 26.11.2005, Síða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 i blaðið
ísland braut gegn
EES-samningnum
EFTA-dómstóllinn hefur dœmt íslenska löggjöfum sérstakar skatta-
ívilnanir handa alþjóðlegum viðskiptafélögum ósamrýmanlega
EES-samningnum
Lögin sem um ræðir voru sett árið
1999 og var ætlað að gera ísland
að eftir sóknarverðum kosti fyrir
alþjóðleg viðskiptafélög sem voru
að leita að hagstæðu rekstrarum-
hverfi. Lögin fólu í sér að slík fé-
lög þyrftu ekki að greiða jafn háa
skatta og önnur fyrirtæki auk þess
sem þau voru undanþegin ýmiss
konar gjöldum, meðal annars stimp-
ilgjöldum. Eftirlitsstofnun EFTA
(ESA) hafði fjallað um málið og kom-
ist að þeirri niðurstöðu að slíkar ráð-
stafanir væru dulbúnir ríkisstyrkir
og hafi því brotið í bága við samning-
inn um Evrópska efnahagssvæðið.
Islensk stjórnvöld vildu ekki una
þeirri ákvörðun og báru fyrir sig að
hún hefði verið þannig úr garði gerð
að hana ætti að dæma marklausa,
auk þess sem íslensk stjórnvöld voru
sannfærð um að þau hefðu þegar
uppfyllt flest skilyrði athugasemda
ESA. Þá töldu íslendingar það ótækt
að fara eftir skilyrðum um endur-
greiðslu á ríkisaðstoð sem þegar var
búið að veita. Þessu var EFTA-dóm-
stóllinn ósammála.
fslensk löggjöf hefur verið dæmd brotleg
gagnvart EES-samningnum.
Aðventan hefst
BMiö/FMi
Aðventan hefst á morgun og eru það fyrstu merki þess að jólahátfðin sé í nánd. Kaup-
menn hafa þó fyrir löngu sett upp jólaskreytingar og á Laugaveginum lýsa falleg jólaljós
upp skammdegið.
0 ; SIGURVEGARI
DAGSINS
llmandi
jólasápa
Dreifing:
BéBé Vöruhús ehf
miöUfrioq
-hreinlega sterkari
Sími 512-3000
...með ekta jólailm
Markar ákveðin tímamót
Dómurinn markar ákveðin tímamót
því að í þessu máli reyndi i fyrsta
skipti á ákvæði um störf og vald-
svið ESA á sviði ríkisaðstoðar. Það
ákvæði felur í sér að ESA getur vísað
máli beint til EFTA-dómstólsins ef
hlutaðeigandi ríki, í þessu tilfelli
ísland, hlítir ekki þeim ákvörðunum
sem ESA hefur tekið innan ákveðins
tímaramma. Þar sem ísland hafði
ekki höfðað mál fyrir EFTA-dóm-
stólnum innan tveggja mánaða til
að fá ákvörðun ESA ógilda þá hefur
dómstóllinn dæmt hana bindandi.
Þá var dómstóllinn ósammála full-
yrðingum Islendinga um að alvar-
legir gallar hefðu verið á ákvörðun
ESA og sagði því að ekki væri hægt
að dæma hana marklausa. Hann var
einnig ósammála íslendingum um
að þeir hefðu þegar uppfyllt skilyrði
ákvörðunnar ESA og taldi ekki vera
fyrir hendi neinar ástæður fyrir því
að ekki væri hægt að framfylgja skil-
yrðum um að endurgreiða ætti ólög-
mæta ríkisaðstoð.
Islendingum var því gert að fella
þessar skattaívilnanir úr gildi auk
þess sem stjórnvöldum var gert að
krefjast endurgreiðslu frá þeim fyrir-
tækjum sem þegið höfðu styrki
undir viðkomandi löggjöf.
Hart tekist á um
fjárlaga-
frumvarpið
Atkvæðagreiðsla um einstakar
greinar fjárlagafrumvarpsins fór
framáAlþingiígærenönnurumræða
um það hafði staðið langt fram eftir
nóttu daginn áður. Eins og venja er
þá voru breytingartillögur stjórnar-
meirihlutans allar samþykktar en
tillögur stjórnarandstöðu felldar.
Formaður fjárlaganefndar, Magnús
Stefánsson, sagði að tekjuafgangur
væri 19,6% eða tæp 2% af landsfram-
leiðslu sem þýddi í hans huga að
staða ríkissjóðs væri sterkari nú en
nokkurn tímann áður. Auk þess er
áætlað að skuldir ríkissjóðs verði
innan við 10% af landsframleiðslu í
lok næsta árs. Eins og fjárlagafrum-
varpið lítur út núna verður nær
tuttugu milljarða króna afgangur á
rekstri ríkissjóðs á næsta ári.
Skekkir samstöðu og einhug
Fulltrúar stjórnarandstöðu gagn-
rýndu frumvarpið af miklum móð.
Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, sagði að það einkenndist
af skorti á aðhaldi og skattalækk-
unum fýrir hátekjufólk innan sam-
félagsins sem næmi heilum mánað-
arlaunum á sama tíma og skattbyrði
hinna lægst launuðu hafi aukist um
heil mánaðarlaun. Helgi sagði þessa
þróun skekkja þá samstöðu og þann
einhug sem hefði verið eitt helsta
einkenni íslensks samfélags fram til
þessa.
Vísað til þriðju umræðu
Þegar átti að greiða atkvæði um að
vísa frumvarpinu til þriðju umræðu
ákvað Árni M. Mathiesen, fjármála-
ráðherra, að gera grein fyrir atkvæði
sínu. Við það skapaðist ólga í þingsal
og þó nokkur frammíköll áttu sér
stað með þeim afleiðingum að for-
seti þings sá sig knúinn til að árétta
að þingmenn ættu að fá hljóð til að
flytja ræður sínar. Steingrímur J. Sig-
fússon ákvað þá að gera líka grein
fyrir sínu atkvæði og varð þá fyrir
frammíköllum frá fjármálaráðherra.
Steingrímur tók það óstinnt upp og
vísaði til umvöndunar þingforseta
þegar fjármálaráðherra sjálfur var
að tala. Steingrímur sagði meðal
annars að fjármálaráðherrann ætti
að skammast sín. Að þessari rimmu
lokinni var samþykkt með 50 sam-
hljóma atkvæðum að vísa fjárlaga-
frumvarpinu til þriðju umræðu.
wrist wear
bySEKONDA
SEKSY kvenmannsúr með svartri eða bleikri skífu.
Armbandsólin er úr svörtu/ Ijósu leðri settri Swarovski
kristöíum sem einfalt er að minnka eða stækka að vid.
Utsölustaðir:
Jens Kringlunni ■ Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 • Helgi Sigurðsson úrsmiður
Skólavörðustig 3 • Georg Hannah úrsmiður Keflavik ■ Guðmundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi • Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi