blaðið - 26.11.2005, Side 18
18 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Pólitískar hræringar í ísrael
Ariel Sharon, forsætisráðherra
í sraels, lýsti því yfir á mánudag
að hann ætlaði að segja sig úr
Líkúdbandalaginu og stofna
nýjan flokk. Stjórnmáiaskýr-
endur telja að með þessu hafi
Sharon hrundið af stað póli-
tískum hræringum í fsrael sem
eiga eftir að setja mark sitt á
stjórnmál í landinu næstu árin.
Ákvörðun Sharons um brotthvarf
ísraelsmanna af Gasaströnd
og fjórum landnemabyggðum
Vesturbakkans hafa mælst illa
fyrir meðal nokkurra fyrrverandi
flokksfélaga hans, þar á meðal
Benjamín Netanyahu, fyrrver-
andi forsætisráðherra.
Áfram (Kadima), hinn nýi flokkur
Ariels Sharons, forsætisráðherra
ísraels, myndi hljóta 30 til 33 sæti á
þingi landsins samkvæmt skoðana-
könnunum. Líkúdbandalagið sem
Sharon sagði skilið við á mánudag
myndi aftur á móti gjalda afhroð
ef gengið væri til kosninga núna og
aðeins hljóta 12-15 sæti. Nú hefur
flokkurinn 40 sæti af 120 á Knesset,
ísraelska þjóðþinginu.
Ennfremur virðist Verkamanna-
flokkurinn hafa aukið nokkuð við
fylgi sitt og fengi 26 sæti en hefur
nú 18. Fyrr í mánuðinum vann Amir
Peretz nauman og óvæntan sigur
á Shimon Peres í kjöri til leiðtoga
Verkamannaflokksins.
Jafnvel þó að flokkur Sharons
vinni fleiri þingsæti en nokkur
annar flokkur er talið nær útilokað
að hann nái hreinum meirihluta en
til þess þyrfti hann að minnsta kosi
61 sæti. Hann myndi því neyðast til
að mynda breiða samsteypustjórn
sem yrði að öllum líkindum veik.
Jafnvel þó að flokkur hans nái ekki
settu marki og Sharon verði ekki for-
sætisráðherra í þriðja sinn mun hið
pólitíska landslag taka það miklum
breytingum að nær útilokað verður
að mynda nýja ríkisstjórn án aðildar
flokksins.
Yediot Aharonot, vinsælasta dag-
blað Israels, segir að háttsettir menn
innan Líkúdbandalagsins telji að
fyrir Sharon vaki að kollvarpa núver-
andi flokkakerfi Israels og byggja á
rústunum kerfi sem muni ekki hagg-
ast næstu árin.
Þrjár meginstoðir í
ísraelskum stjórnmálum
Mark Heller, stjórnmálaskýrandi
við háskólann í Tel Aviv, sagði í við-
tali við dagblaðið New York Times
að Áfram, Líkúdbandalagið og
Verkamannaflokkurinn verði þrjár
meginstoðir ísraelskra stjórnmála
sem aðrir flokkar muni halla sér
upp að.
I grein New York Times segir
einnig að góð frammistaða Áfram
myndi einkum bitna á Líkúdbanda-
laginu og gæti hugsanlega leitt til
þess að það endaði í stjórnarand-
stöðu. Ennfremur kynni flokkurinn
að kippa tilvistargrundvellinum
undan Shinui-flokknum sem líkt
og Áfram gefur sig út fyrir að vera
miðjuflokkur. Flokkurinn gæti
einnig höfðað til kjósenda á vinstri
væng stjórnmálanna sem láta sig ör-
yggismál varða og telja stefnu hins
nýja leiðtoga Verkamannaflokksins
vera úrelta.
Grundvöllur lagður að
friðarsamkomulagi
„Líkúdbandalagið í núverandi mynd
getur ekki leitt ísrael í átt að mark-
miðum sínum sem þjóðar,“ sagði
Sharon í sjónvarpsávarpi á mánu-
dag þegar hann kynnti áætlun sína
um stofnun nýs flokks. „Að vera um
kyrrt í Líkúd þýddi aðeins að tíma
yrði eytt í pólitískar þrætur í stað
þess að vinna í þágu ríkisins,“ bætti
bann við.
Sharon lýsti því yfir að markmið
flokksins væri að leggja grundvöll
að friðarsamkomulagi og ákveða
endanleg landamæri ríkisins jafn-
framt því sem hann færi fram á
að hryðjuverkasamtök yrðu lögð
niður. Sharon lagði áherslu á að ísra-
elsmenn myndu ekki taka einhliða
ákvarðanir um brottflutning frá
landnemabyggðum á landssvæði
Palestínumanna. Hann tók þó ekki
fyrir að brottflutningur myndi eiga
heimilísliiálp
AA Hæsta elnkunn Þvottahæfni = A Spameytni = A
40W$ÍF'~ Stlllanleg hæi í á efri körtu
Þreföld lekavörn Engin lekahætta
% 1/2 hleösla Hægt að þvo i efri eða neðri körfu eingöngu
P Bn Upptýsingaskjár Sýnir þvottakerfi, hvar vélin er stödd í kertinu o.m.fl.
Uppþvottavélar - 2 gerðir
Gerð IDW-128 alinnbyggð. Kr. 69.900
Gerð LS-12 hvít. Kr. 49.900
Taka 12 manna boröbúnað
8 kerfi, m.a. spar- og hraðkerfi
3 hitastig (40-60-70° C)
1/2 hleðsla (Sparkerfi)
Stafrænar stillingar (electronic)
Upplýsingaskjár sýnir þvottaferli o.m.fl.
Þreföld lekavörn (Total aquastop)
Fyrirframstilling (Delay timer)
Hljóömerki við lok kerfis
Hæðarstillanlegar körfur
Stálinnrabyrði og -sía
Orkunýtni A (1,05 kwh pr. meðalþvott)
Þvottahæfni A
Hljóðlátar, aðeins 37 db (A)
Mánudaga-föstudagakl. 9-18
Laugardagakl.10-15
Fríform
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500
Ariel Sharon, forsætisráðherra Israels, hratt af stað pólitískum hræringum í ísraelskum
stjórnmálum þegar hann sagði skilið við Líkúdbandalagið og stofnaði nýjan flokk í
vikunni.
sér stað í samráði eða samvinnu
við Palestínumenn og í samræmi
við alþjóðlegu friðaráætlunina sem
gengur undir nafninu Vegvísirinn.
Blóðtaka fyrir Líkúdbandalagið
Að minnsta kosti 14 þingmenn
fylgdu Sharon úr Líkúdbandalaginu
yfir í nýja flokkinn. Þar á meðal eru
Ehud Olmert, aðstoðarforsætisráð-
herra, og Tzipi Livni, dómsmálaráð-
herra. Aftur á móti mistókst Sharon
að sannfæra Shaul Mofaz, varnar-
málaráðherra til að ganga til liðs við
sig. Nógu margir þingmenn yfirgáfu
Líkúdbandalagið og gengu í nýja
flokkinn til að hann geti talist klofn-
ingsflokkur og því mun hann hljóta
hluta af því fé sem flokkar hljóta frá
ríkinu sem hefði að öðrum kosti
runnið til Líkúdbandalagsins.
Sharon hefur einnig leitað til hátt-
settra manna úr öðrum flokkum,
þar á meðal Verkamannflokknum,
um að slást í hópinn. Þar á meðal
er nóbelsverðlaunahafinn Shimon
Peres sem nýlega var velt úr sessi
sem leiðtoga flokksins.
Hafði legið í loftinu
Viðskilnaður Sharons og Líkúd-
bandalagsins sem hann átti þátt í að
stofna hafði lengi legið í loftinu. Það
hafði andað köldu á milli hans og
margra flokksfélaga sem hafa ekki
getað fyrirgefið Sharon að hann hafi
fyrirskipað brotthvarfísraelsmanna
af Gasasvæðinu í haust.
Andstæðingar Sharons vönduðu
honum ekki kveðjurnar eftir að
hann sagði skilið við bandalagið.
Benjamin Netanyahu, fyrrverandi
forsætisráðherra, kallaði hann „ein-
ræðisherra" sem hefði horfið af
hinum sanna vegi Líkúdbandalags-
ins og vildi koma á laggirnar „leik-
brúðuflokki". Hannspáðiennfremur
hinum nýja flokki stuttri ævi og að
ísraelsmenn myndu á endanum snúa
aftur í hlýju Líkúdbandalagsins.
Líkúdbandalagið stendur frammi
fyrir þvf að þurfa að velja sér nýjan
leiðtoga eftir að Sharon hvarf á braut.
Að minnsta kosti sjö félagar hyggj-
ast gefa kost á sér í vali til leiðtoga. I
þeim hópi eru fjórir ráðherrar, þar á
meðal Sbaul Mofaz, varnarmálaráð-
herra, og Silvan Sahlom, landbún-
aðarráðherra. Benjamin Netanyahu,
fyrrverandi forsætisráðherra,
verður einnig í framboði og er tal-
inn sigurstranglegastur. Samkvæmt
skoðanakönnun ríkisútvarpsins í
ísrael hlyti Netanyahu 29% atkvæða
en Mofaz 22% ef gengið væri til leið-
togakjörs nú. Hörð andstaða Net-
anyahu gegn brottflutningi ísraela
af Gasasvæðinu hefur aflað honum
vinsælda meðal hægrisinnaðra
félaga í Líkúdbandalaginu.
Leiðtogakjör fer fram 19. desember
en þangað til sinnir Tzahi Hanegbi,
formaður miðstjórnar bandalagsins,
starfi formanns.
Shaul Mozaf, vamarmálaráðherra, og Benjamin Netanyahu, fyrrverandi forsætisráð-
herra, eru taldir sigurstranglegastir I leiðtogakjöri f Lfkúdbandalaginu sem fram fer 19.
desember.