blaðið - 26.11.2005, Síða 20
20 I FRÉTTASKÝRING
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaóiö
Hér má sjá útsýnið þegar menn keyra eftir Hringbrautinni, Þingholtin eru í bakgrunni.
Landspítali - háskólasjúkrahús:
Hvers vegna er ekki byggt í Fossvogi?
Vinningstillagan í samkeppni um Landspítala - háskólasjúkrahús. Eitt af þvf sem vekur athygli, fyrir utan stærðina, er að eitt fallegasta
hús borgarinnar, gamli Landspítalinn mun hverfa sjónum þorra almennings.
99
Það hefur varla farið fram hjá
nokkrum að til stendur að reisa nýtt
hátæknisjúkrahús á lóð Landsspít-
alans við Hringbraut. Sú hugmynd
að sameina sjúkrahús borgarinnar
undir einu þaki er ekki ný af nálinni
og helst var rætt um að spítalinn
yrði við Hringbraut, í Fossvogi eða
á Vífilsstöðum. Spítalarnir á höfuð-
borgarsvæðinu voru sameinaðir
undir nafninu Landspítali - háskóla-
sjúkrahús árið 2000 en ljóst var frá
upphafi að miklar breytingar yrði að
gera á húsakosti til þess að hagræð-
ing yrði af sameiningunni. Jón Krist-
jánsson, heilbrigðisráðherra, skipaði
í maí 2001 nefnd sem fjalla átti um,
og gera tillögu að, framtíðaruppbygg-
ingu Landspítala - háskólasjúkra-
húss sem kölluð var Ingibjargar-
nefnd, eftir Ingibjörgu Pálmadóttur,
formanni nefndarinnar. Meðal ann-
ars var danskt ráðgjafafyrirtæki, Em-
entor, fengið til þess að gera úttekt
á málinu og finna bestu lausnina á
framtíðaruppbyggingu spítalans.
Hringbrautin varið fyrir valinu
Þegar Ingibjargarnefnd skilaði af
sér, í janúar 2002, var niðurstaðan
sú að framtíðarstaðsetning spítal-
ans yrði við Hringbraut. Meginrök
nefndarinnar voru þau að kostn-
aður við útfærsluna væri minnstur,
meðal annars vegna þeirra bygg-
inga sem fyrir eru á lóðinni, ná-
lægðin við Háskóla Islands myndi
tryggja nauðsynlega samvinnu milli
stofnananna og að aðgengi við spítal-
ann væri gott eftir að gatnakerfið
hefði verið lagfært. Þessi síðustu rök
kölluðu því á að ráðist var í færslu
Hringbrautarinnar sem valdið hefur
talsverðum deilum í landinu, enda
um stórt og mikið mannvirki að
ræða og sumir hafa kallað svöðusár
á miðborginni. Til dæmis kallaði
Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður,
mannvirkið nýlega „nýjustu flug-
brautina í Vatnsmýrinni".
Nálægðin við Háskóla
íslands ekki haldbær rök
Ólafur Örn Arnarson, læknir, hefur
viða viðrað skoðanir sínar á því að
fyrirhuguð uppbygging spítalans við
Hringbraut sé glapræði. Hann gefur
lítið fyrir þau rök að nauðsynlegt sé
að háskólasjúkrahús rísi í nágrenni
við Hl. „Þessi háskólastarfsemi er
bara brot af þeirri starfsemi sem
þarna fer fram og þess vegna er rugl
að taka þau rök gild að nálægðin
við Hl skipti einhverju höfuðmáli,"
segir Ólafur. „Ég spurði prófessor-
inn í skurðlækningum að því hve oft
hann hefði farið upp í Hí þau tólf ár
sem hann hefur gegnt embættinu
og hann sagðist ekki muna hvort
það var tvisvar eða þrisvar sinnum!
Þessir menn stunda sína rannsóknar-
vinnu inni á spítalanum.“
Verkinu gæti verið lokið
Ólafur segist furða sig á því að
ekki hafi meira mark verið tekið á
Ementor skýrslunni. „Ráðgjafarnir
ráðlögðu mönnum að skoða Foss-
voginn, það var aldrei gert. Almenn
bráðamóttaka (sómatíska bráðastarf-
semin) átti að verða í Fossvogi en
geðdeildin og ýmis starfsemi átti að
vera áfram á Hringbraut. I Fossvogi
eru tólf legudeildir sem eru bestu
legudeildir á landinu. Þetta mátti
ekki skoða. Ef þessi leið hefði verið
farin og byggt hefði verið við spítal-
ann í Fossvogi hefði verið hægt að
ná þessu saman fyrir svona 12-15
milljarða á mun skemmri tíma. Við
værum sennilega að ljúka þessu verk-
efni í dag í stað þess að vera enn á
byrjunarreit. Spítalarnir voru sam-
einaðir fyrir fimm árum síðan en
Ólafur segir enga hagræðingu hafa
náðst af því, þvert á móti. „Við erum
búin að tapa svona sjö eða átta millj-
örðum frá því að sameiningin fór
fram. Ef það líða svo tíu ár eða meira
í viðbót þangað til að þessi spítali
verður tilbúinn þá býð ég ekki í þá
útreikninga."
Danirnir hlógu
Ólafur segir dönsku ráðgjafana hafa
hlegið þegar þeim var sagt að spítal-
inn yrði að vera við Hringbrautina
vegna þess að þetta væri háskólaspít-
ali. „Þetta er algört rugl og ég skil
ekki hvers vegna enginn hefur bent
á þetta. Spítalinn snýst um þjónustu
við fólk, það sem skiptir öllu máli
er hvar þetta fólk er og hvaðan það
kemur. Fossvogurinn er miklu betur
staðsettur fyrir þorra fólks hér í
landinu en spítalinn við Hringbraut.
Hvað heldur þú að gerist á Hring-
brautinni og niður Miklubraut þegar
allt það fólk sem núna leitar í Fossvog
þarf að fara á Hringbrautina? Næg
eru vandræðin fyrir. 4.000 manns
þurfa að koma þarna til vinnu, tugir
þúsunda sjúklinga sem koma á slysa-
deild, á annað hundrað þúsund á
íIjósi þessa ummæla
hljóta menn að spyrja
sig að því hvort einhver
önnur sjónarmið en
beinlínis þau sem bera
hag borgaranna fyrir
brjósti hafi verið látin
ráða þegar ákveðið var
að byggja þetta bákn
við Hringbrautina.
göngudeildir og svo aðstandendur.
Þú getur ímyndað þér umferðina.“
Best að byggja upp í ioftið
Bent hefur verið á að þegar spítali er
byggður sé best að byggja hann upp
í loftið. Þá er hægt að flytja sjúklinga
á milli hæða i lyftum, í stað þess að
keyra þá langar vegalengdir eftir
göngum. Staðsetning spítalans við
Hringbrautina gerir það hins vegar
ókleift að hafa hann á fleiri hæðum
en fjórum. Það helgast meðal ann-
ars af nálægð hans við flugvöllinn í
Vatnsmýrinni, sem reyndar er útlit
fyrir að verði farinn þegar spítalinn
verður fullbyggður, eða að minnsta
kosti stuttu seinna. „Þetta hefði ekki
verið neitt vandamál í Fossvogi,“
segir Ólafur. „Það hefði mátt byggja
fimmtán hæða turn, en niður frá má
ekki byggja nema fjórar hæðir upp
í loftið vegna flugvallarins." Ólafur
segir einnig allt á huldu um hvað
verður um Borgarspítalann. „Það
er ekki vitað, þarna eru byggingar
sem eru milljarða virði og svo á að
rífa Tanngarð sem er upp á fjóra
milljarða. Svo má ekki gleyma því
að þessi nýja Hringbraut er ein-
göngu til komin vegna uppbyggingu
spítalans.“
Fossvogsmenn drógu sig í hlé
Lára Margrét Ragnarsdóttir, vara-
þingmaður, sagði í fyrirspurnartíma
á Alþingi í febrúar sl. að vegna þess
langa tíma sem hefði tekið að fá nið-
urstöðu í málefni spítalans hefði
sá hópur sem væri á þeirri skoðun
að ný bygging væri betur komin í
Fossvogi, haft hljótt um sig af ótta
við að tefja málið enn frekar. Ólafur
Örn tekur undir þetta. „Ég er eini
maðurinn sem hef þorað að segja
eitthvað, það hafa allir þagnað.“ I
sama fyrirspurnartíma spurði Lára
Margrét hvort gerður hefði verið
samanburður á sparnaði og skil-
virkni þjónustu í Fossvogi annars
vegar og við Hringbraut hins vegar.
1 svari heilbrigðisráðherra kom
fram að slíkur samanburður hefði
ekki verið gerður. En hver tók þá
þessa ákvörðun? „Þetta er eingöngu
komið frá stjórnendum gamla Land-
spítalans,“ segir Ólafur Orn. „Davíð
Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri, var
lengi forstjóri Landspítala. Árið 1972
koma þessar hugmyndir fyrst fram,
um að flytja þetta allt á Hringbraut,
og það hefur verið unnið að þeim
stanslaust síðan. Það sem mér finnst
alveg með ólíkindum er að það mátti
ekki einu sinni skoða Fossvoginn.
Við erum að tala um tugi milljarða
og nú þegar teikningar eru komnar
fram er augljóst að þetta fer langt
fram úr áætlunum.“
1 ljósi þessa ummæla hljóta menn
að spyrja sig að því hvort einhver
önnur sjónarmið en beinlínis þau
sem bera hag borgaranna fyrir
brjósti hafi verið látin ráða þegar
ákveðið var að byggja þetta bákn
við Hringbrautina. Skýrsla, sem vafa-
laust hefur kostað almenning tölu-
verðar fjárhæðir, virðist hafa verið
að miklu leyti hunsuð og í stað þess
er ráðist í að taka gífurlegt landsvæði
undir spítala á stað sem veldur því að
öll sú tenging miðbæjarins við Vatns-
mýrarsvæðið, sem mönnum hefur
verið tíðrætt um í flugvallarmálinu,
virðist hvort sem er ekki vera raun-
hæfur möguleiki. Það er ekki víst
að þeir sem sáu þessa tengingu í hill-
ingum hafi í þeim draumórum gert
ráð fyrir spítala á lóð sem telur 17.500
fermetra. Á meðfylgjandi myndum
sem fengnar eru úr AT - tímariti arki-
tekta, má gera sér ágæta grein fyrir
þeim stærðum sem um er að ræða.
gunnar.valthorsson@vbl. is
«■259 Bílavarahlutir
THUU
Ferða- oe
skíðabox
■
Ocean 180
1 / 3Í0 títrar
Apoll° 10°/ 350 litrar
Ocean 600
I 330 lítrar
Spirit 820
/ 480 lítrar
®] Stilling
ADALNÚMER • SÍMI 520 8000 Bíl 3 V3 Talll U tÍT
SKEIFUNNI 11 RVÍK. • SlMI 520 8001 SMIÐJUVEGI 68 KÓP. • SlMI 520 8004
DRAUPNISGATA 1 AK ■ SlMl 520 8002 BfLDSHÖFÐA 16 RVÍK. ■ S(MI 520 8005
DALSHRAUN113 HFN. • SlMI 520 8003 EYRARVEGI 29 SELF. • SlMI 520 8006
www.stilling.is