blaðið - 26.11.2005, Qupperneq 28
28 I AÐVENTA
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaðið
Merking
kertanna
Aðventukransar eru með
fjórum kertum og er kveikt á
einu þeirra fyrsta sunnudag í
aðventu. Viku seinna er kveikt
á því fyrsta og öðru bætt við og
svo koll af kolli eftir því sem
líður á aðventuna. Logandi
kertin merkja komu Krists
og aðdragandann að henni.
Fyrsta kertið kallast
spádómskertið eða spámann-
skertið og minnir það á
fyrirheit spámanna Gamla
testamentisins sem sögðu
fyrir um komu frelsarans.
Annað kertið nefnist
Betlehemkertið eftir fæð-
ingarbæ Jesús, þar sem
ekkert rúm var fyrir hann.
Þriðja kertið heitir hirða-
kertið, nefnt eftir hirðingj-
unum sem voru sögð tíðindin
um fæðingu Jesús á undan
öllum öðrum þrátt fyrir að þeir
væru snauðir og ómenntaðir.
Fjórða og síðasta kertið
heitir englakertið og minnir
okkur á þá sem báru fregn-
irnar af fæðingu frelsarans.
DrottUm kemur
Á morgun er fyrsti sunnudagur
í aðventu, tími ljóss og friðar
fer í hönd. Á aðventunni verður
kertaljós hluti af tilverunni og
verða vin í eyðimörk kaupæðis-
ins. Sunnudögum í aðventu á
að eyða í faðmi fjölskyldunnar
undir birtu kertanna méð hug-
ljúfa jólatónlist í bakgrunni, í
skjóli frá amstri hins daglega
hversdagskapphlaups.
Jólafasta
Aðventan heitir á latínu adventus
domini, koma drottins. Hún hefst á
fjórða sunnudegi fyrir jól og er sums
staðar kölluð jólafasta því áður fyrr
mátti ekki borða hvaða mat sem var
á aðventunni, til dæmis kjöt.
Á aðventunni birtast sjö ljósa
stjakar í öðrum hverjum glugga á Is-
landi til að lífga upp á skammdegið.
Þá eru fá heimili sem ekki kveikja
á kertum aðventukransins í tilefni
hátíðarinnar.
Hverjum þykir sinn fugl fagur
Á morgun verður kveikt á aðventu-
kertum á aðventukrönsum íslenskra
heimila. Kransarnir eru jafnmis-
munandi og þeir eru margir þar
sem sérhvert heimili hefur sína hefð
hvað kransa varðar. Sums staðar
tíðkast íburðamiklir kransar meðan
annars staðar eru stílhreinir og ein-
faldir kransar. Sumir eru heimatil-
b ú n i r
og mikil
vinna er lögð í
að föndra þá meðan aðrir
kjósa að kaupa sér nýjan á hverju
ári. Enn önnur heimili kjósa að nota
sama kransinn ár eftir ár.
Hefðin
Aðventukransinn er talinn upprunn-
inn í Þýskalandi á fyrri hluta 19.
aldar. Hann barst til Suður-Jótlands
og varð algengur í Danmörku eftir
seinna stríð en þaðan barst siðurinn
til íslands. I fyrstu var aðventukran-
sinn aðallega notaður til að skreyta
búðarglugga en á milli 1960 og 1970
fór hann að tíðkast á íslenskum
heimilum og er nú orðinn
ómissandi hluti þessarar
árstíðar.
I kaþólskum sið skiptir litur kert-
anna miklu máli þótt flestir Islend-
ingar leggi frekar áherslu á samræmi
skreytinga og kerta. Samkvæmt
kaþólskunni er þriðja kertið, hirða-
kertið, rósrautt að lit þegar kveikt er
á því en svo er því skipt út fyrir þann
lit sem er á hinum kertunum. Hin
kertin eru sam-
kvæmt hefðinni
fjólublá á litinn
en það er litur
aðventunnar.
6,61 á hverja 100 km
Þú færð nýjan Opel Astra frá aðeins 1.695.000 kr. eða 19.772 kr. á mánuði.
Miðað við 20% innborgun og afganginn á 84 mánuðum.
Ingvar Helgason
Sævartiöföa 2, sími 525 8000, www.ih.is
Opið: Mán - fðs kl. 9-18 og lau kl. 12-16
Aðventan (
Norski rithöfundurinn, Sigurd Muri, orti ljóð um aðventúkertin fjögur
sem kallast Ná teimer vi det forste lys og er það sungið við sænskt lag
frá 1898 eftir Emmu Christinu Köhler. Lilja Sólveig Krístjánsdóttir, fyrr-
verandi kennari og salnvörður í Reykjavík, þýddi ljóðið.
Við kveikjum einu kerti á.
Hans koma nálgast fer
semfyrstujólíjötulá
og Jesúbarnið er.
Við kveikjum tveimur kertum á
og koniu bíðum hans,
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda' í líking manns.
Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.
Við kveikjum fjórum kertum á.
Brált kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa að sjá,
að það er frelsarinn.
Farið varlega
Á ári hverju verða slæmir eldsvoðar
þegar farið er óvarlega með kerti.
Kertalogi er opinn eldur og þarf
lítið til að illa fari. Vert er að athuga
eftirfarandi:
• Passaðu að kertin nái ekki að
skreytingu aðventukransins.
• Fylgstu vel með kertunum.
• Hafðu kertin í góðri fjarlægð
frá eldmat.
• Athugaðu að trekkur getur
feykt loga í nálæg gluggatjöld
eða annað.
Ekki kveikja á kertum ef þú
ert ekki í aðstöðu til að fylgjast
með þeim.
Passaðu að slökkt sé á öllum
kertum áður en farið er úr
húsinu.
Hægt er að úða skreytinguna
með eldfælnu efni en það
kemur þó aldrei í veg fyrir al-
mennar eldvarnir. Þá eiga öll
herbergi að státa af eldvörnum,
annað hvort slökkvitæki eða
reykskynjara.