blaðið - 26.11.2005, Side 30
30 I VIDTAL
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöiö
„Hamstur virkar stór við
hliðina á tveimur maurum!"
- Typpatal Auðuns Blöndals
Einleikurinn Typpatal var frum-
sýndur síðastliðinn fimmtudag á
Nasa en það er enginn annar en
Auðunn Blöndal sem sýnir þar
listir sínar. Skemmtikrafturinn
leitast við að leiða áhorfendur í
sannleikann um höfuðdjásn karl-
mannsins í sögulegu, félagslegu
og menningarlegu samhengi, auk
þess sem Auddi stígur nokkur vel
valin dansspor gestum til
aukinnar ánægju.
Hinn þjóðþekkti spaugari, Siggi
Sigurjóns, sér um leikstjórn verks-
ins og má því gera ráð fyrir miklu
glensi og gríni, enda þeir félagar
ekki þekktir fyrir annað.
Auðunn gaf sér tíma til þess að
spjalla við Blaðið um sýninguna,
typpið og rannsóknir tengdar þessu
mikilvæga líffæri karlmannsins.
„Grunnhugmyndin kemur frá
manni sem heitir Richard Herring
en hann gerði könnun á Netinu þar
sem hann spurði konur og karla
hinna ýmsu spurninga tengdar
typpinu. Þetta byrjaði út frá þessari
könnun hans, en við erum náttúru-
lega búnir að setja þetta algjörlega
í okkar búning þó svo að sýningin
og handritið sé mikið hannað eftir
könnuninni,“ segir Auðunn að-
spurður um tilurð sýningarinnar og
bætir við að það sé frekar skrítið að
vera svona einn upp á sviði og fjalla
eingöngu um typpið sem slíkt.
„Þetta er alveg meiriháttar gaman
þó þetta sé á köflum einkennileg að-
staða sem maður er í, en það venst
auðvitað. Þetta er allavega gríðarleg
reynsla!“
Nú er Siggi Sigurjóns að leikstýra
sýningunni og því má kannski gera
ráð fyrir að mikið hafi verið hlegið á
æfingum þegar þið tveir sameinuðu
kraftaykkar?
„Já, þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt ferli og mikið um
hlátur get ég sagt þér. Siggi er nátt-
úrulega algjör snillingur og ein
mesta perla sem ég hef kynnst.“
Nú er typpið sem slíkt málefni
sem kannski ekki er til umræðu
alla jafna, enda um persónulegan
hlut að ræða. Blaðakonu lék forvitni
á að vita hvernig tilfinning það sé
að standa uppi á sviði í tæpar tvær
klukkustundir og fjalla um typpi.
Auðunn segist hvergi banginn hvað
það varðar.
„Þetta er kannski ekki mikið
feimnismál fyrir mann sem vinnur
t.d. við að rassamæla fertuga menn
eins og ég hefur náttúrulega gert í
BlaliS/Steinar Hugi
ÖRUGG
FJÁRFESTING
L'ORÉAL
menexpert
»>VI ÞU ATT ÞAÐ UKA SKILIÐ
99............................................
Sveppi og Pétur hafa alltafsagt að ég sé með svo
stórt typpi, en það sem þeir bara fatta ekki erþað að
hamstur virkar stór við hliðina á tveimur maurumI