blaðið - 26.11.2005, Page 31
MaöÍA LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005
VIDTALI 31
99................................
Siggi er náttúrulega algjör snillingur og
ein mesta perla sem ég hefkynnst.
Strákunum. Þetta var reyndar mjög
skrýtið fyrst. Sérstaklega þegar við
Siggi vorum bara tveir að æfa og tala
um typpi heilu klukkustundirnar
- það er kannski svolítið sérstök að-
staða. Svo var einmitt mjög fyndið
að vera alltaf með áhyggjur af því að
fólk sem gengi framhjá þar sem við
vorum að æfa upp á RÚV heyrði það
sem fram fór í æfingaherberginu."
Endalaust að tala um typpi
við vini og vandamenn
Eru málefni tengd typpinu efni í
heila sýningu?
„Já, það er það skemmtilega við
þetta. Það kemur ýmsilegt í ljós,
menn notaþetta tól í margt - kannski
of margt stundum og ég get sagt þér
það að maður er orðinn ýmsu vanur
eftir að hafa fengið svör margra við
hinum ýmsu spurningum. Ég er
auðvitað ekki bara að tala um typpi
- meira bara hvað viðkemur typpinu
og hvað menn hafa verið að gera við
það,“ segir Auddi og bætir því við að
mikil rannsóknarvinna hafi farið
af stað þegar ákveðið var að setja
Typpatal á laggirnar.
„Það má kannski segja að maður
hafi verið þessi pirrandi í vina-
hópnum þegar maður var endalaust
að tala um typpi og spyrja vini og
vandamenn spurninga um það.
Menn voru farnir að efast um kyn-
hneigð mína áður en ég sagði þeim
frá því að spurningaflóðið væri
vegna fyrirhugaðrar sýningar."
En komstu að einhverju merkilegu
um typpið í rannsóknarvinnunni?
„Já, maður komst að heilmiklu.
Það er kannski ekki eitthvað sem ég
vill deila með fólki hér - það kemur
bara í ljós á sýningunni. En ég get
allavega sagt að engin tvö typpi eru
eins. Maður er náttúrulega búin
að vinna í kringum þetta líffæri í
nokkra mánuði og er alveg farinn
að tékka á málunum, t.d. á djamm-
inu og svona,“ segir Auðunn og hlær.
„Ekki það að ég sé beint að glápa á
alla karlmenn en maður svona gefur
ýmsu gaum. Ég tek nú samt fram að
þó að typpi sé búið að eiga hug mitt
og hjarta undanfarið er mig ekki
farið að dreyma typpi - það er ekki
orðið svo slæmt!“
Þá segist hann hafa rætt þetta
mikið við þá félaga sína i Strák-
unum, Sveppa og Pétur, enda eyðir
hann miklum tíma með þeim.
„Ég hef mikið talað um typpi við þá
og spurt allskyns spurninga. Sveppi
og Pétur hafa alltaf sagt að ég sé með
svo stórt typpi en það sem þeir bara
fatta ekki er það að hamstur virkar
stór við hliðina á tveimur maurum!“
Að sögn Auðuns er sýningin jafnt
fyrir karla og konur þó svo að vert
sé að athuga að yngsta kynslóðin
sé ekki æskilegur áhorfendahópur.
Hann segir skemmtilegt að fylgjast
með salnum og að konur hlæja jafn-
Blaðið/Steinar Hugi
vel meira en karlarnir.
„Salurinn hverju sinni skiptir auð-
vitað máli. Ég reyni að spila svolítið
eftir því hvernig stemmningin er í
salnum. Svo auðvitað dettur manni
í hug að skjóta á vini og vandamenn,
en það er nú bara létt grín og til
þess að gera þetta skemmtilegra. En
miðað við frumsýninguna þá fellur
þetta alveg jafn vel í geðið á konum
og körlum, enda lögðum við upp
með að hafa það svoleiðis “
Engin ástæða til að vera feimin
Hvað er það sem fólk vill fá að vita
um typpið? Hvaða spurningum ertu
aðsvara?
„Það kemur ansi margt fram þarna,
t.d. hvar menn hafa stungið honum
inn að gamni sínu og allskyns æsku-
minningar karla tengdar typpinu.
Svo spyrjum við konur líka hvað sé
það óvenjulegtasta við typpi sem
þær hafa séð o.s.frv.. Svörin koma
öll svart á hvítu fram í sýningunni
og alveg ótrúlega fyndið að sjá sum
þeirra. Þó svo að ég kippi mér ekki
upp við þetta lengur þá eru sumir
í salnum sem eru agndofa yfir
mörgu.“
Nú áttu kærustu - hvernig leist
henni á það þegar þú sagðir henni
að til stœði að halda uppistand um
typpi?
„Bara ágætlega held ég,“ segir
Auddi og hlær. „Það hefur kannski
verið orðið svolítið pirrandi að
heyra mig endalaust tala um typpi
á heimilinu þegar ég var að æfa mig
en hún er alveg sátt held ég.“
Aðspurður segir Auðunn málefni
typpisins vera mikið feimnismál
meðal margra, sérstaklega miðað
við það sem tíðkaðist í gamla daga.
Hann segist vilja breyta þessu enda
engin ástæða fyrir fólk að vera
feimið þegar talað er um typpi.
„1 gamla daga var typpið stolt karl-
mannanna. Nú er þetta einhvern veg-
inn orðið þannig að enginn vill tala
um þetta og allir voðalega feimnir.
Þetta á ekki að vera svona og ég
hreinlega skil ekki af hverju þetta
gat orðið svona mikið feimnismál.
Það þarf að snúa þessu við aftur.“
En svona að lokum, hvernig líðurþér
með þitt typpi?
„Ég er mjög sáttur og ánægður
með minn jafnaldra. Við erum nátt-
úrulega jafngamlir og hann hefur
fylgt mér alla tíð. Sá eini sem hefur
alltaf nennt að vera með mér þó svo
að hann geti nú stundum verið svo-
lítið uppáþrengjandi!“
halldora@vbl.is
• Nylon
• Birta og Báröur
• Andlitsmálun fyrir krakkana
• Léttar veitingar í boöi
• Allir leystir út meö gjöfum
Hlökkum til aö sjá þig!
410 4000 landsbanki.is
un
í dag kl. 14:00 -16:00
vegna opnunar á nýju og glæsilegu útibúi Landsbankans í Holtagöröum.