blaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 32
32 I TILVERAN
4
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöið
„Kapphlaupið að kœrastanum"
Hinn fullkomni maki, falleg íbúð, flottur bíll og bestu börn í
heimi!
Þessi upptalning trónir á toppnum í huga flestra þegar spurt er
um langanir og draumsýn í lífinu. Öll viljum við jú ganga út og
lifa hamingjusömu lífi með ástkærum maka og eignast nokkra
litla króa. Þetta er allt saman eðlilegt út af fyrir sig og ekkert
neikvætt um það að segja. Hins vegar má deila um kapphlaup
margra til að ná þessu annars ágæta markmiði. Svo virðist vera
sem sumir hreinlega standi í þeirri trú að nái þeir ekki að kynn-
ast maka sínum fyrir 25 ára aldur komi þeir til með að eyða elliár-
unum einir á báti, snauðir allri lífshamingju. Það er eins og fólk
haldi að ef það nái ekki að para sig í tíma verði það alltaf eitt og
fari svo að lokum yfir móðuna miklu án þess að maki, börn eða
barnabörn haldi í hendi þess. Reyndar er nú kannski ekki rétt
að alhæfa um þetta - við erum jafn misjöfn og við erum mörg
og flestir væntanlega ekki að drífa sig um of. Hins vegar hef ég
verið að velta vöngum yfir þessari hræðslu margra við að pipra
endanlega, sérstaklega eftir að ég átti ansi skrýtið samtal við góð-
vinkonu mína á dögunum.
Þannig er mál með vexti að umrædd vinkona, sem við skulum
kalla Fjólu, er algjörlega að gefast upp á karlmannsleys-
inu. Nú er svo komið að hún þarf að sætta sig við ein-
lífið það sem eftir er - hún er náttúrulega orðin 24
vetra gömul og þar af leiðandi búin að missa af öllum
„á markaðnum“ eins og hún orðaði það svo skemmti-
lega!!! Ég náttúrulega brosti út í annað og sagði
henni að engin ástæða væri til að örvænta - nægur
væri tíminn og hún myndarleg ung kona. En nei!
Fjóla hélt nú ekki... Allar vinkonur hennar að flytja
inn með kærustunum, eignast börn og með þær
einar áhyggjur á herðunum hvað gefa skuli ástinni
sinni í jólagjöf (eins og það sé öfundsverð staða). I
stað þess að plana helgarnar með æðislegum kær-
asta má þessi örvæntingarfulla vinkona mín bíta í
það súra epli að vera EIN eða með einhverjum mis-
skemmtilegum vinkonum sem hjálpa henni sko al-
deilis ekki að komast að fyrirhuguðu markmiði. Á
þessa leið voru samræður okkar þetta fróðlega kvöld
og ég mátti hafa mig alla við að segja brandara með
það fyrir augum að hún gæti nú í það minnsta huggað
sig við að eiga alveg afspyrnu skemmtilega vin-
konu. Ekki vildi ég nú sjá á eftir henni í þung-
lyndi svona rétt fyrir jólin.
En jæja - nóg um Fjólu. Það sem ég er í
raun að skoða í þessu samhengi er bara
það hvort við drífum okkur svo mikið í leit
okkar að draumamakanum að allar aðrar
hliðar lífsins verði undir. Á lífið bara
að snúast um þetta? Eru kannski meiri
líkur á að við finnum hamingjuna ef við
erum róleg og bíðum okkar tíma?
Sitt sýnist að sjálfsögðu hverjum en
greinilegt er að sumir eru hálfir séu
þeir „makalausir". Spurning hvort ég
bendi henni Fjólu á að skella sér í ís-
lenska piparsveininn eða Ástarfleyið
á næsta ári - hún væri þá allavega
einu skrefinu nær í leit sinni...
Halldóra Þorsteinsdóttir
Ertu þessi viðkvœma týpa?
Við erum misjafnlega viðkvæm
enda með ólíkan bakgrunn og með
mismikið sjálfstraust. Sumir eru þó
sérstaklega veikburða og eru auð-
beygðir af neikvæðum ummælum,
áreiti eða leiðinlegum aðstæðum.
Það að vera sérstaklega viðkvæmur
í daglegu lífi er auðveldlega hægt að
laga með alls kyns úrlausnum, en
þar ber helst að nefna eflingu sjálfs-
trausts, kvíðalosun og fleira sem
hjálpað getur verulega hvað varðar
viðbrögð við hinum ýmsu ástæðum.
Með því að þreyta eftirfarandi per-
sónuleikapróf kemstu e.t.v. aðeins
nær því að vita hvort og þá hversu
viðkvæm/ur þú virkilega ert.
1. Hefurðu einhvern tímann
verið bálreið/ur út í vin eða vin-
konu án þess að viðkomandi hafi
hugmynd um hvers vegna.
a) Já, það gerist mjög oft.
b) Nei, aldrei.
c) Það hefur nokkrum sinnum gerst en
það var aðallega vegna leiðinlegs mis-
skilnings.
2. Náinn aðili spyr þig: „Nú! Eru
þessir skór komnir aftur í tísku?"
- Hvernig bregstu við þessari at-
hugasemd? Hvað er viðkomandi
að meina?
a) Hann/hún telur þig mikinn tískufröm-
uð og veit fyrir víst að þú ert með alla
svona hluti á hreinu. E.t.v. er bara verið
að forvitnast um hvað skuli kaupa í næsta
verslunarleiðangri.
b) Það er greinilega eitthvað skrítið við
skóna, en þeir eru samt ekkert hræðilegir.
c) Þetta eru hrikalega Ijótir skór og þú
munt aldrei nota þá aftur.
3. Yfirmaður þinn segist ekki
hafa tíma til að lesa skýrsluna
þína fyrr en einhvern tímann t
nœstu viku. Býr eitthvað þar að
baki?
a) Skýrslan hefur væntaniega týnst á
skrifborðinu hans og hann þarf bara að
finna hana sem fyrst til þess að geta farið
yfir hana.
b) Hann er náttúrulega bara búin að lesa
hana og fannst hún hrikaleg!
c) Auðvitað er ekki hægt að ætlast til þess
að maðurinn taki þfna skýrslu fram yfir
þessi endalausu verkefni hans. Hann mun
kíkja á hana við fyrsta tækifæri.
4. Þú ferð á vel heppnað stefnu-
mót, að þínu mati allavega, en
fimmti dagurinn er liðinn síðan
stefnumótið átti sér stað og við-
komandi hefur ekki haft sam-
band. Hvað heldurðu að sé í
gangi?
a) Það er enginn áhugi til staðar - þú hef-
ur greinilega ekki staðið þig vel og ekki
náð að töfra viðkomandi upp úr skónum.
6111861 lÍBmfti
HEILSU OG SÆLKERAGRILLIN
Rrykjavik: Hagkaup. Expcrt. Elko. Byko. Byggt (t Búið
HafnarfjörAur: Rafma tti, fjaróarkaup
Akurcyri: Byko. Hagkaup
Sclfoti: Árvirkinn, Byko SiglufjörSur: Gjaflkot
Stykkitftólmur: Hcimahornið Husavík: Oryggi
Rcykjancjbren Byko hafjiirOur: Þriitur
Akrann: Hljómjýn Borgarncs: Samkaup
Vcstm.cyjar: Ocísli
Egíkstaöir: Sindri KHB
NrskaupsstaOir: Rafalda
ReyðarfjörOur: Byko
Frihöfnin Keflavíkurflugvelli
marCO hcifdverslun
þ) Ef hann/hún hefði skemmt sér jafn
vel og þú þá væri viðkomandi búinn að
hringja. Það verður bara að taka því!
c) Viðkomandi er greinilega bara í„hard to
get" leiknum. Nú ef ekki, þá er þetta bara
hans missirl Ekkert stórmál þaðl
5. Þú hittir þinn/þína fyrrver-
andi aftur eftir nokkra mánuði.
Viðkomandi segir: „ Voðalega
lítur þú hraustlega út!“ Hvað
hugsarðu?
a) Þú lítur vel út en auðvitað átti hann/
hún erfitt með að segja það þarna eins
og ekkert væri. Viðkomandi hefur ekki
treyst sér f að hrósa þér of mikið við þetta
tækifæri.
b) Það er allavega ágætt að þið haldið vin-
gjarnlegu nótunum í samskiptunum.
e) Það er greinilegt að hann/hún sér að
þú hafir bætt ansi mikið á þig síðan sam-
bandsslitin áttu sér stað og annars ágætt
útlit þitt hefur farið dvínandi.
6. ÞÚ gengur inn í herbergi að
vinum sem eru íhrókasamrceðum.
Þú finnur um leið þrungið and-
rúmsloft og fyrstu viðbrögð þín
eru:
a) Þú hugsar með þér að þarna hafir þú
eflaust truflað, en það sé lítið mál - þau
ræði bara saman síðar.
b) Þú hugsar með þér að þau séu pottþétt
að tala illa um þig.
c) Þú ákveður að leyfa þeim að vera I friði
og gengur út, án þess að velta þvf mikið
fyrir þér hvað rætt hafi verið um.
7. Þér er sagt upp í vinnu vegna
breytinga í starfsmannamálum.
Heldurðu að annað sé upp á
teningnum?
a) Já, þú ert ömurleg/ur starfsmaður sem
fáir viija hafa i vinnu.
b) Nei nei, það þarf greinilega að breyta
einhverju og það verður bara að hafa þaðl
Aðrir munu bara njóta góðs af starfskröft-
um þínum!
c) Eitthvað var þetta nú léleg afsökun, en
það er svo sem ekkert stórmál. Það hlýtur
að vera annað starf að fá.
8. Maki þinn segir við þigað núna
þurfið þið að laga ýmsilegt í sam-
bandinu efþað á aðganga áfram.
Þú ert viss um að...
a) Hann/hún geri sér grein fyrir erfiðleik-
unum og vilji reyna að bæta úr þeim.
b) Þetta er greinilega fyrsta skrefið í átt að
sambandsslitum - viðkomandi hefur bara
ekki treyst sér í að ganga alla leið strax.
c) Þetta verður ykkur báðum til góðs,
enda ekkert samband fullkomið og alltaf
eitthvað sem má bæta. Það er bara gott
að hann/hún hafi tekið eftir einhverju
sem fara má yfir sérstaklega.
Reiknaðu út stigin:
1. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
2. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig
3. a) 2 stig b) 1 stig c) 4 stig
4. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
5. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig
6. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig
7. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
8. a) 2 stig b) 1 stig c) 4 stig
0-9 stig:
Þú ert greinilega ein/nn af
þessum sérstaklega viðkvæmu
einstaklingum. Þú særist auð-
veldlega og átt það til að taka
léttum hlutum alltof alvarlega.
Það sem er sameiginlegt með
fólki eins og þér er það að sjálfs-
traustið er yfirleitt ekki upp á
marga fiska og þess vegna áttu
létt með að taka öllu því sem
viðkemur þér allt of alvarlega.
Ef einhver kemur með athuga-
semd varðandi störf þín, útlit,
klæðnað eða hvaðeina bregstu
illa við og finnst þú ómöguleg/ur.
Farðu nú að taka þig taki og
hættu þessum þankagangi. Lífið
er hreinlega ekki svo alvarlegt
að þú þurfir endalaust að velta
þér upp úr hlutunum. Hrós-
aðu þér oftar og horfðu á alla
þá kosti sem þú býrð yfir!
10-20 stig:
Það eru flestir eins og þú, eru ekki
auðbeygðir en geta þó dottið niður
við sérstakar aðstæður. Þetta er
ágætis ástand út af fýrir sig, en
lengi má gott bæta og þú ættir
að reyna eftir fremsta megni að
breyta þessu. Ekki láta einn né
neinn draga þig niður - reyndu
að einblína frekar á kosti þína en
galla þegar þú lendir í mótlæti.
Mundu að þú ert engu síðri
en hinir - jafnvel betri!
21-32 stig:
Þú ert ein/n af þeim sem lætur
ekki bugast þrátt fyrir mótlæti og
athugasemdir annarra. Þú tekur
gagnrýni létt og lítur góðum
augum á það þegar einhver bendir
þér á galla þína. Það er afar gott
að lifa eftir þessum hugsunarhætti
en þessi hugsunarháttur gerir það
að verkum að heldur ótrauð/ur
áfram þrátt fyrir að eitthvað verði
á vegi þínum. Haltu þessu áfram!
www.marcois