blaðið - 26.11.2005, Side 36
36 I SAMSKIPTI KYNJANNA
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöió
Afleiðingar steranotkunar geta verið óafturkrœfar
Ofbeldismenn hafa
viðurkennt steranotkun
Petur Pétursson, yfirlæknir, segir
stera hafa víðtæk áhrif á heilastarf-
semi og skapgerð séu þeir notaðir í
miklu magni. I fræðsluriti Landlækn-
isembættisins frá árinu 1992 sem
Pétur Pétursson og Ari Jóhannsson
skrifuðu kemur fram að sterar trufla
hormónajafnvægi líkamans svo
mjög að þeir draga úr karlhormóna-
framleiðslu í eistum. Þau rýrna því
tímabundið og getur framleiðsla sáð-
fruma nær alveg stöðvast svo maður-
inn verður ófrjór. Kynhvötin getur
aukist tímabundið en síðan ber oft á
getuleysi. Brjóstastækkun á sér iðu-
lega stað hjá körlum og hverfur ekki
þótt notkun sé hætt.
„Það sem læknar kalla stera eru
Utlitsbreyting á
Star Wars-dúkkunum
Kynjaímyndir hafa breyst mikið á undanförum árum og áratugum.
Þessar dúkkur sýna hvernig útlitsímynd í Star Wars myndunum
hefur breyst í gegnum árin. Dúkkurnar vinstra megin á myndunum
eru frá árinum 1979 en hægra megin eru dúkkurnar eftir að þær
voru endurgerðar árið 1997. Eins og sjá má hafa karlkynsdúkkurnar
orðið vöðvastæltari með árunum.
ISFOLKIÐ
eftir MargitSandemo
Metsölubækur.
Fylgist með frá upphafi.
Forlagið gefur út allan bókaflokkinn.
Þriðja bókin væntanleg fljótlega eftir
áramótin.
ALAGAFJOTRAR
- ÍSFÓLKIÐ 1
Leiðb.verð 1.490,-
Tilboðsverð: 1.290,-
\laga
NORNAVEIÐAR
- ISFOLKIÐ 2
Leiðb.verð 1.490,-
Sala og dreifing: Sögur ehf. útgáfa, tomas@baekur.is, sími: 557 3100 fax: 557 3137
barksterar sem nýrnahettur fram-
leiða en þeir eru notaðir til lækninga,"
segir Pétur. „Það sem hafa verið kall-
aðir anabólískir sterar eru í raun
karlhormón og sumir nota þau til að
ná betri árangri í íþróttum. Notkun
þessara stera er oftast ekki læknis-
fræðilegs eðlis og því ólögleg. Hinir
svokölluðu anabólísku sterar er líka
hægt að nota sem uppbótameðferð
ef karlmenn framleiða ekki nógu
mikið magn af hormónum,“ segir
Pétur.
„Áhrif stera eru líka þau að menn
verða kjarkmeiri, árásargjarnari,
þolinmæði minnkar en dugnaður
eykst og það má segja að menn verði
eins og tarfar. Undir áhrifum stera
verða menn duglegri að þjálfa sig og
vigta. Þeir sem nota stera í íþróttum
eða vaxtarrækt leitast við að auka
ummál sitt og keppast að því að
þyngjast. Þessir menn átta sig hins
vegar oft ekki á því að notkun stera
veldur vökvamyndun í líkamanum
eða bjúg sem hverfur þegar stera-
notkun er hætt og þá léttast þeir
líka,“ segir Pétur. Hann segir stera
hafa slæm áhrif á lifrina og dæmi
eru um að steranotkun hafi valdið
krabbameini.
Þunglyndi algegnt þegar
steranotkun er hætt
Þá eru andlegar afleiðingar stera-
notkunar ekki síður alvarlegar því
þær geta leitt til afbrotahegðunar.
,Það eru dæmi þess að menn hafa við-
urkennt að hafa verið undir áhrifum
stera þegar þeir frömdu ofbeldis-
verk. Þá er nokkuð um að þeir sem
noti stera misnoti einnig áfengi og/
eða önnur fíkniefni en þessi blanda
er alls ekki góð. Mér þykir ólíklegt
að steranotkun hafi minnkað í sam-
félaginu og það er líka nokkuð um
notkun fæðubótarefna,“ segir Pétur
en bætir við að þau efni sem fáist
úr fæðubótarefnum sé hægt að fá
úr venjulegri fæðu. Hann segir krea-
tín hafa verið vinsælt en algengt er
að það sé blandað efedríni. „Stera-
notkun hefur verið bundin við
ákveðnar íþróttir eins og t.d vaxtar-
rækt og kraftlyftingar þótt eflaust sé
þetta til í fleiri íþróttagreinum. Áður
en múrinn féll var algengt að afreks-
konur frá Austur-Evrópu notuðu
stera en almennt held ég að konur
noti stera mjög lítið,“ segir Pétur.
Hann segir að þegar steranotkun sé
hætt getur það valdið miklu þung-
lyndi og haft slæmar afleiðingar
fyrir hjartað.
hugrun@vbl.is
Ekki eðlilegtfyrir líkamann að vera með
mikinn vöðvamassa
Ásókn í fullkominn
líkama hefur slœm
áhrif á samskipti
„Flestir sem stunda líkamsrækt
eru venjulegt fólk sem æfir sér til
heilsubótar,“ segir Ágústa Johnson,
eigandi líkamsræktarstöðvarinnar
Hreyfingar. „Það er ekki mín til-
finning að steranotkun hafi aukist
en hins vegar hefur notkun fæðu-
bótarefna aukist mjög. Margir hafa
oftrú á fæðubótarefnum og halda
að þau geri kraftaverk en það er
ekki raunin," segir Ágústa og bætir
við að það sem gildi sé holl hreyf-
ing og rétt mataræði. Hún segir að
karlmenn sem eru helskornir með
þvottabrettamaga eigi erfitt með að
halda því útliti í langan tíma og að
þetta eigi ekki að vera aðalmarkmið
fólks. „Sumir menn hafa gaman af
því að ná vera massaðir einu sinni
eða tvisvar á ævinni í tengslum við
vaxtaræktarkeppnir en ég held að
karlmenn yfir þrítugt séu ekki upp-
teknir af því að vera með mikinn
vöðvamassa,“ segir Ágústa.
Ágústa segir það goðsögn að karl-
menn séu að leita að tágrönnum
konum og að flestir spá í aðra hluti
í fari kvenna. „Þá getur ásókn eftir
fullkomnum líkama haft slæm
áhrif á félagsleg samskipti kvenna.
Áráttan um fullkominn líkama
getur leitt til þess að konur hætta
að fara út að borða og hafa eðlileg
samskipti af ótta við að falla í freist-
ingar,“ segir Ágústa.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl. is