blaðið - 26.11.2005, Page 40
- 40 I TÍSKA
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaðið
Klassísk og
karlmannleg tíska
Karlatískan í haust er svipuð kventískunni hvað liti varðar en mesta áherslan er þar einnig lögð á sígilda dökka
liti. Svartur, brúnn, dökkblár og grár eru hvað mest áberandi þó svo að aðrir litir séu auóvitað notaðir með.
Haustklæði karlmannanna eru fáguð, klassísk og karlmannleg þó svo að frjálsleikinn sé einnig til staðar. Alltaf
eru ákveðnir karlmenn sem kjósa að fara sínar eigin leiðir og klæða sig á litríkan, fjölbreyttan og skemmtilegan
hátt. Af þessum klassísku fötum má helst nefna hin hefðbundnu jakkaföt, leðurjakka, síða og stutta frakka, þykkar
peysur og fleira sem yfirleitt lifir ár hvert. Færustu hönnuðir heimsins í dag hafa þó einnig lagt ríka áherslu á
aðra hluti sem gera klæðin skemmtilegri en mikið er um vesti, axlabönd, fjölbreytt bindi
og stór veski. Á tískupöllunum hafa þeir óspart sýnt hlýjan klæðnað en síðir treflar, húfur,
hanskar og vettlingar eru fallega hannaðir og eru þessir hlutir hátískuvara. Það er því
hægt að vera vel klæddur, uppdúðaður og samt fylgja nýjustu tísku. Þetta er eflaust einn af
hentugustu tískustraumum sem verið hefur lengi. Flestir muna nú eftir því þegar hallæris-
legt þótti að vera með húfur, vettlinga og trefla en það varð óneitanlega til þess að fleiri
karlmenn þurftu á nefdropum og fleiru að halda þegar veikindin fóru að gera vart við sig.
Hér gefur að líta brot af þeim klæðnaði sem var áberandi þegar línurnar voru lagðar fyrir
tísku karlmanna í haust. Einungis er um að ræða klæðnað sem eru vinsæll en eins og
áður sagði er í raun allt leyfilegt og margt í boði.
Alexander McQueen
!"J! MÆLANLEGUR
i ; I ÁRANGUR
' L'ORÉAL
I DE-CREASE 1 H P A R1 S menexpert
ÞVÍ ÞÚ ÁTT ÞAÐ LÍKA SKIUÐ
10, 100, 200, 300 kr
AÐEINS FJÖGUR VERÐ
Hárspennur,burstar,jólakúlur,tannbustar
Aðeins 10 krónur
Geisladiskar,
Videospólur (barna og bíómyndir)
Leikföng,
Jólavörur,
Gjafavörur,
Un-skór,
Líkamsræktarbelti,
Og margt margt fleira.
ALLT NÝJAR VÖRUR
0pK1 1,2,3 rétta verðið
föstudaga og laugardaga frá ll til 18 • Sunnudaga frá 13 til 17
Uppl. (síma 869-8171
Trönuhrauni 10 Hafnarfirði gult hús
Emporio Armani
Pauí Smith
Michael Kors
Prada
DKNY
Dolce&Gabbana