blaðið - 26.11.2005, Blaðsíða 42
42 I ÝMISLEGT
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöið
Leyndarmál við Laugaveg
Um áratugaskeið var Laugavegurinn eina verslunargatan sem að kvað á íslandi. Tilþess aðfinna ámóta verslunar-
kjarna hér á landi þurfti að leita suður til Hafnarfjarðar eða allt norður til Akureyrar. En síðan var Kringlan
reist og Laugavegurinn dalaði nokkuð. Þegar Smáralind var svo opnuð töldu margir að dagar Laugavegar sem
verslunargötu vceru taldir. Sú varð ekki raunin, þó margar verslanir leggðu upp laupana, því aðrar komu í stað-
inn og Laugavegurinn og nœsta nágrenni hefur gengið í gegnum endurnýjun. Sérstaklega á það við um ýmsar
sérvöruverslanir, veitingahús, athvörffrá erli daglegs lífs. En það liggur ekki allt í augum uppi og við Laugaveg og
nœrliggjandi götur máfinna margafróðlega staði sem ekki allir vita um. Andrés Magnússonfór á stúfana í sínum
heittelskaða 101 og telur upp 10 leyndarmál í námunda við Laugaveg.
Vín & skel er eittbest varðveitta
leyndarmál Laugavegarins.
Það stendur þó varla mikið
lengur, því þessi veitingastaður,
sem matgæðingur Morgunblaðsins
hrósaði nýverið í hástert, er alger
perla. Það er ekki hlaupið að því
að finna staðinn og það gera fáir af
tilviljun. Hann er við Laugaveg 55b>
en til þess að komast að honum þarf
að fara í gegnum port, sem lætur
ekki mikið yfir sér. Þegar í gegnum
það er komið blasir hins vegar við
stór bakgarður og lítið hús, sem
hýsir staðinn. Ásýndar er stemmn-
ingin nánast suðræn með borðum
úti og uppi á svölum. Þegar inn er
komið er andrúmsloftið nánast
heimilislegt og matur og þjónusta
til fyrirmyndar, kjörinn til þess að
eiga rómantíska sælkerastund. Mat-
seðillinn er letraður á krítartöflu
og eins og nafnið ber með sér eru
sjávarréttir í aðalhlutverki. Þetta
er staðurinn til þess að skola niður
ostrum með kampavíni.
Indriði klæðskeri er við Skóla-
vörðustíg, nánar tiltekið á
horninu við Bergstaðastræti.
Hann sérhæfir sig í skyrtum og
vilji menn á annað borð vanda
sig í þeim efnum er Indriði eini
staðurinn sem til greina kemur
á íslandi og þó víðar væri leitað.
Þjónustan er persónuleg og lip-
urleg og það ættu allir karlmenn
að reyna það að láta sauma á sig
skyrtu sem passar akkúrat en
ekki næstum eins og gerist með
verksmiðjuskyrturnar. Undrið
er síðan það að verðið er fyllilega
samkeppnishæft við það sem ger-
ist um tilbúnar skyrtur í herrafata-
verslunum. Indriði höndlar svo
með ýmislegt tilheyrandi og það
er sérstök ástæða til þess að benda
á ægifögur handsaumuð ítölsk
bindi sem þar fást.
Björk er eina tóbaksverslunin
á íslandi og er í Bankastræti
þar sem áður hét Bristol.
Þetta er ein mesta sérverslun á ís-
landi og höndlar með vöru sem
lögum samkvæmt má ekki hafa
uppi við. Samt blómstrar búðin í
andstöðu við pólitískan rétttrúnað
dagsins. Þar má fá allar tegundir tób-
aks sem ÁTVR á annað borð þókn-
ast að leyfa innflutning á, en auk
þess má kaupa þar pípur, kveikjara í
öllum stærðum og gerðum, vasapela
og ýmsan gjafavarning af því taginu.
Þegar inn er komið tekur sætur tób-
aksilmurinn á móti manni en það
er fyrst og fremst sérviskuleg
stemmningin sem heillar.
Þetta er nánast eins
að koma í fornbóka-
búð, tíminn gengur
hægar og flestir við-
skiptavinirnir staldra
við til þess að spjalla ekki
síður en að versla.
Hljóðheimurinn Sangit-
amiya er ærið nýstárleg
hljóðfæraverslun á horni
Klapparstígs og Grettisgötu. Þar
finna menn enga rafgítara og hljóð-
gervla heldur sérhæíir verslunin sig
í undursamlegum, þjóðlegum hljóð-
færum frá öllum heimshornum.
Mörg hljóðfæranna eru framandi,
en flest eiga þau sameiginlegt að vera
afar falleg, svo mjög að þau sóma sér
ekki síður sem stofuskúlptúrar en
hljóðfæri. Þarna eru fáanlegar um
700 tegundir hljóðfæra og þó maður
viti ekki alveg hvernig þau eigi öll að
snúa, hvað þá meir, gildir það einu.
Eigandinn, Eymundur Matthíasson,
kann á þau öll og er boðinn og búinn
til þess að sýna gestum og gangandi
hvernig á að seyða fram tónaljóð úr
hverju og einu þeirra.
Te og kaffi við Laugaveg 27 er
kannski ekki beinlínis leynd-
armál, það veit allt alvöru
kaffifólk af þessu musteri koffíns-
ins. En það er rétt að undirstrika að
þarna er ekki aðeins hægt að fá fram-
andi kaffitegundir eða te úr hlíðum
Himalajafjaíla. Þegar maður gengur
inn í búðina er eins og það sé tima-
vél i dyrunum. Við blasir gamaldags
m e ð
afbrigðum
og svo eru um-
búðirnar líka einkar
smekklegar.vandaðurviðar-
kassi með umvöfðum borða og
innsigli meistarans. Ef menn vilja
ekki hafa alveg svo mikið við, er
maður svo auðvitað hægt að velja úr hreint
segi ekki ótrúlegu úrvali gæðagotterís, sem er
framúrstefnu- eitthvað annað en finna má í nammi-
leg íslensk myndlist löndum stórmarkaðanna.
búðarborð með kaffi og te af öllum
mögulegum sortum í hillum bak
við diskinn. Meira að segja vogin er
með gamla laginu eins og i fiskbúð-
inni í gamla daga. En svo fæst
þarna margskonar góð-
gæti annað, bollar
og glös og fyrir
alvörukaffi
fólk:
Es-
press-
óvélar
ogöllþau
tæki og tól
sem þarf til
þess að gera
kaffidrykkju
að listgrein. Ef
maður nennir því
ekki sjálfur röltir
maður bara yfir göt-
una og fer á kaffistað
Tes og kaffis.
Rossopomodoro
við ystu mörk Reykja-
víkur, á Laugavegi 4oa,
en hinu megin við Frakkastíg
telja gamlir Reykvíkingar að
sveitin taki við. Þetta er napólískur
veitingastaður, opinn og fjörlegur
án þess að vera hávaðasamur. Þjón-
ustan er góð og maturinn hreint
ágætur. Sé maður áhugamaður um
matargerð má svo fylgjast með mat-
sveinunum í gegnum glervegg inn í
eldhús. Það er tilvalið að stinga sér
inn á staðinn í góðan og fljótlegan
hádegisverð, en hann er engu síðri
til þess að borða í góðra vina hópi að
kvöldlagi. Út um gluggann má svo
fylgjast með Reykjavík ganga hjá,
upp og niður Laugaveginn.
12 tónar við Skólavörðustíg 15 er
sérverslun með klassíska tón-
list, þó svo þar megi líka finna
jazz og vel valda popptónlist af æðri
tegund. Búðin er þar til húsa þar
sem þeir félagar Skjöldur, Kormákur
og innanbúðardrengurinn mótuðu
karlmannatísku aldamótanna og
það eimir enn vel eftir af þeim ein-
staka anda, sem þar skapaðist. Versl-
unarþjónarnir eru karakterar og
vita sínu viti um tónlist af öllu tagi.
Ef þeir svo eiga hana ekki geta þeir
nálgast hana, en yfirleitt er betra að
spyrja þá aðeins nánar og þá geta
þeir jafnan bent á eitthvað miklu
betra. Andrúmsloftið er afslappað
og jafnvel heimilislegt.
Kling og
Bang
er lítið
gallerí á
Laugavegi
23þarsem
f r a m -
sækin
að
BlaSH/FMi
hefur blómstrað undanfarin tvö ár.
Það er kannski ekki rétt að tala um
að galleríið sé lítið, það er eiginleg
pínulítið. En það getur bara verið
betra. í önn dagsins kann mikil
hvíld að vera fólgin í því að skjótast
inn af asanum á Laugaveginum og
svala skynfærunum á róandi hátt
eitt augnablik, anda aðeins hægar
og velta fyrir sér hinum æðstu
rökum. Svo er það búið og maður
getið haldið út í heiminn á ný.
Grái kötturinn er vel varð-
veitt leyndarmál rétt undan
Laugaveginum. Ef maður
skýtur sér niður Traðarkotssund
(en það er enn eitt leyndarmálið við
Laugaveg) og gengur svo niður Hverf-
isgötuna kippkorn má finna Gráa
köttinn í kjallarakytru við Hverfis-
götu i6a, beint á móti Safnahúsinu,
sem sumir kalla Þjóðmenningar-
húsið. Þetta er afvikinn staður þar
sem menningarvitar og miðbæjar-
rottur halda til, en aðalstuðið er á
morgnana, því þetta er magnaðasti
morgunverðarstaður borgarinnar
milli klukkan 7 og 10. Ég mæli sér-
staklega með „trukknum", en það er
vel úti látinn skammtur af beikoni
og eggjum, ásamt pönnusteiktum
kartöflubitum, tómatmauki og
ristaðri brauðsneið. í kjölfarið fylgja
svo amerískar pönnukökur með
sýrópi, en með öllu saman fylgir ný-
kreistur appelsínusafi og te eða kaffi.
Ef svo voldugur morgunverður er
ekki grundvöllurinn að sigurdegi er
eitthvað mikið að.
Vínberið við Laugaveg 43 er
nýlenduvöruverslun, sem
einhvers staðar villtist af leið,
öllum nammigrísum til eilífrar bless-
unar. Þar má fá allar mögulegar teg-
undir af úrvalskonfekti á borð við
Valrhona, Godiva og Gudrun
bæði í íburðarmiklum kössum
og í stykkjatali úr borðinu ef
manni liggur á. En það skal
sérstaklega bent á hand-
gerða konfektið hans
Hafliða Ragnarssonar,
súkkulaðimeistara
í Mosfellsbakaríi,
sem þarna fæst.
Það tekur öllu
öðru fram,
líka fínustu
merkjum
h e i m s .
er
ó m -
sætt