blaðið - 26.11.2005, Síða 44
441HEILSA
LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Sykursýki - týpa 2
Þessi tegund sykursýki er oft kölluð
áunnin sykursýki, einnig insúlín-
óháð sykursýki og fullorðinssykur-
sýki. Allar frumur líkamans þarfn-
ast insúlíns meðal annars til að
taka til sín þrúgusykur (glúkósa)
úr blóðinu. Þegar insúlín vantar
eða þegar frumurnar eru ekki
næmar fyrir því (þ.e. insúlínþörfin
er meiri en eðlilegt er), hækkar
blóðsykurinn. Þegar blóðsykurinn
verður mjög hár fer þrúgusykur
(glúkósi) í þvagið sem hefur þær af-
leiðingar sem ómeðhöndluð eða illa
meðhöndluð sykursýki getur haft.
Sykursýki - týpa 2 er algengust
hjá fullorðnu fólki sem er yfir kjör-
þyngd. Vanalega er ekki nauðsyn-
legt að meðhöndla sjúkdóminn með
insúlíngjöf þó það komi fyrir. Oftast
er nóg að sjúklingurinn neyti rétts
mataræðis, breyti um lífsstíl og/eða
taki töflur sem lækka blóðsykurinn.
Hvernig verður insúlín-
óháð sykursýki til?
Orsök sjúkdómsins er blanda af
ófullnægjandi insúlínframleiðslu í
briskirtli og minnkaðri næmni fyrir
insúlíni í frumum líkamans.
Áhættuþættir?
• Ef aðrir fjölskyldumeðlimir
eru með eða hafa fengið insúlín-
óháða sykursýki.
• Ef viðkomandi á við offitu-
vandamál að stríða.
• Hjá þunguðum konum, sér-
staklega ef sjúkdómurinn
hefur verið til staðar við fyrri
þunganir.
• Ef viðkomandi er með of háan
A Skjánum geturðu pantað frábœrar kvikmyndir með
fjarstýringunni og horft á þœr eins oft og þú vilt í 24 klst
Náðu þér í 3 heitar á Skjánum
Africa Un'rted er aðeins fáanleg
á Skjánum en hún hlaut
Edduverðlaun sem besta
heimildarmynd ársins.
Downfall var tilnefnd til
Óskarsverðlauna sem
besta erlenda myndin.
Hotel Rwanda fékk þrjár
tilnefningar til Óskarsverðlauna.
Frábœrar myndir sem slógu í
gegn hér á landi á kvikmynda-
hátíð í haust.
DONCWAEIE
some OKONEDO
Nicií NOITE
Africa United
Downfall
Hotel Rwanda
Það er auðvelt að ná í mynd!
1. Ýttu á í^^’hnappinn á fjarstýringunni
2. Veldu á milli 5 efnisflokka með
örvatökkunum á fjarstýringunni og
ýttu á OK hnappinn.
3. Þegar velja á efnisflokk eða panta :
mynd þarf að staðfesta með því að
ýta OK hnappinn á fjarstýringunni.
Hér fœrð þú
nýjar myndir
Hér getur þú
nálgast klassískar
myndir
Þú fœrð Skjáinn í öllum verslunum Símans,
í síma 800 7000 eða á skjarinn.is.
Þú fœrð ótrúlegt úrval bíómynda og annað fyrsta flokks sjónvarpsefni á Skjánum.
NYJABIO
GAMLA BI0
blóðþrýsting, of háa blóðfitu
(kólesteról eða þríglyseríð).
• Ef viðkomandi hefur fengið
blóðtappa í hjartað þ.e.
kransæðastíflu.
• Við notkun nokkurra lyfja svo
sem getnaðarvarnapillunar,
tíasíð þvagræsilyfja, bark-
stera (nýrnahettu-hormóna) og
fenýtoíns.
Hvað getur komið í veg fyrir
insúlínóháða sykursýki?
• Forðast að bæta á sig
aukakílóum.
• Regluleg hreyfing hefur fyrir-
byggjandi áhrif.
• Hollir og góðir lifnaðarhættir
Hver eru einkennin?
• Þreyta.
• Þorsti.
• Tíð þvaglát.
• Þyngdartap í kjölfar lítillar
matarlystar.
• Kláði umhverfis kynfæri.
• Aukin hætta á sýkingum í húð,
munni eða leggöngum.
Hvernig greinir læknirinn
insúlínóháða sykursýki?
• Fastandi blóðsykur er mældur
eða að sykurþolspróf er
framkvæmt.
Hvað er til ráða?
• Haldið kjörþyngd.
• Vera meðvituð/aður um sjúk-
dóminn og lærðu að fylgjast
með einkennum sem fylgja of
háum eða of lágum blóðsykri.
• Læra að mæla blóðsykurinn og
gerðu það reglulega.
• Hafir þú þörf fyrir insúlíngjöf,
lærðu þá að sprauta þig sjálf/ur.
• Vertu alltaf með sykur á þér
til að bregðast við of lágum
blóðsykri.
• Fara reglulega í skoðun til að
athuga augu, nýru, fætur, hjarta
og blóðfitu.
• Leitaðu til læknis ef þú færð
aðra sjúkdóma.
• Mundu að meðferðin byggist
ekki einungis á blóðsykurgild-
inu. Meðferðin byggist einnig
á því að losa sig við aukakílóin,
koma í veg fyrir hækkun blóð-
þrýstings og fitu í blóði sem
og hjartasjúkdóma. Ef viðkom-
andi reykir skal að sjálfsögðu
hætta þvi strax.
Starfsgeta
Það eru engar sérstakar takmarkanir
hvað það varðar. Dagleg og regluleg
hreyfing er mjög góð. Nauðsynlegt
getur verið að aðlaga mataræði og
lyfjameðferð að þeirri líkamlegu
hreyfingu sem er stunduð.
Næringarfræði
Nauðsynlegt er að borða hollt og
fjölbreytt fæði. Leitaðu þér upplýs-
inga um fjölbreytt, hollt og gott fæði.
Leitaðu ráðgjafar t.d. hjá næringar-
fræðingi og/eða á göngudeild sykur-
sjúkra. Mikilvægt er að vita hvað
þú ert að borða og næringargildi
fæðunnar.
Hugsanlegir fyigikvillar
-afleiðingar
Æðakölkun og meðfylgjandi
hætta t.d. á heilablóðfalli og
hjartasjúkdómum.
• Nýrnasjúkdómar
• Sykursýkisaugnsjúkdómar
• Taugabólgur.
Horfur
Alla jafna er hægt að halda insúlín
óháðri sykursýki í skefjum með
réttu mataræði. Regluleg skoðun og
eftirlit getur dregið úr hættu á fylgi-
kvillum. Nauðsynlegt getur verið að
nota insúlín þegar frá líður ef önnur
meðferð dugar ekki.