blaðið - 26.11.2005, Side 46
46 I MENNING
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaðið
T O M HANKS
a ROBFRT ZEMECKIS iíim
T O.' M H A N K S
• s Roára mtcKis^v
fHT í’OLAR tKí’RKSb
*' tom’hankv «, - • wí
Í^LA:RTXPR£SS;.vkÁH '
EÍN STÓRKÖSTLEGASTA JÓLASAGA
ALLRA TIMA LOKSINS KOMf N I
VERSLANIR A DVD.
Hrafnhildur Schram hefur ritað bók um
huldukonur í íslenskri myndlist sem
ruddu brautina fyrir þá sem á eftir komu.
Huldukonur í íslenskri myndlist
Hœttu að mála við giftingu
Hlutur kvenna í íslenskri mynd-
list í upphafi 20. aldar hefur lengi
verið sveipaður hulu og lítið hefur
sést af verkum þeirra. Samt sem
áður ruddu þær brautina fyrir þá
sem á eftir komu og eru því
athygliverðar. Hrafnhildur
Schram, listfræðingur, hefur
ritað bókina Huldukonur í
íslenskri myndlist sem beinir
sjónum að lífi og listum þessara
kvenna.
Konur þessar komu úr efri
stéttum þjóðfélagsins og sóttu
myndlistarmenntun til Danmerkur
og Bretlands. Það
er talið að um tutt-
ugu konur hafi
sótt myndlistar-
menntun erlendis
á þessum tíma en
Hrafnhildur tekur
fyrir ío konur í
bókinni, Þóru Pjet-
ursdóttur Thorodd-
sen, Þóru Jónsdóttur
Magnússon, Krist-
ínu Vídalín Jacobsen,
Þuríði Jakobsdóttur
Kvaran, Kristínu Þor-
valdsdóttur, Kristínu
Þorláksdóttur
Bernhöft, Sigríði
Björnsdóttur, Sig-
ríði Marí Gunnars-
son, Johanne Finn-
bogason (Hanna
Davíðsson) og
Svövu Þórhalls-
dóttur. Allar þessar
konur hættu smám
saman að mála
eins og kemur
fram í máli Hrafn-
hildar. „Það var
engin þeirra sem
átti sjálfstæðan
óslitinn listferil. Ég tek fyrir tíu
konur, af þeim giftust sjö en þessar
þrjár sem ekki giftust hættu líka
að mála. Á þessum tíma þótti ekki
heppilegt að giftar konur og mæður
væru að sinna list. Þjóðfélagið var
ekkert undir það búið, þær voru það
snemma á ferðinni."
Tjáningarform kvenna
Hrafnhildur segist hafa fengið hug-
myndina að bókinni þegar hún var
í námi í Svíþjóð en hún hefur rann-
sakað huldukonur í íslenskri mynd-
list í og með í 25 ár. „í Svíþjóð var hafin
endurskoðun á öllum sviðum fræða,
þar á meðal á sviði listasögunnar.
Listasagan var skoðuð með tilliti til
framlags kvenna og óþekktar konur
sem höfðu á sínum tíma verið virtir
myndlistarmenn en gleymst í tím-
ans rás voru dregnar fram. Ég kom
heim árið 1974 og fór þá að kanna
hvort hér kynni að leynast óþekktar
konur sem voru í myndlistar-
námi.“ í kjölfar útgáfu bókarinnar
verður sýning á verkum þessara
kvenna sem hefst 4. desember í Þjóð-
minjasafni íslands. „Það er misjafnt
hvað liggur eftir konurnar en það
má segja að þær hafi lagt sína list
til hliðar áður en þeirra ferill hófst.
Þetta voru ekki bara málverk, heldur
var til dæmis kona sem málaði á
postulín og önnur sem gerði leir-
muni. í mörgum tilfellum snéru þær
sér að hannyrðum þegar þær hættu
að mála þannig að þær verða líka
til sýnis. Það má segja að þessi sýn-
ing sýni vel tjáningarform kvenna,"
segir Hrafnhildur að lokum.
svanhvit@vbl.is
.1-
Bylgjur 2005 eftir Björgu Þorsteins-
dóttur, vatnslitur á pappír
Björg Þorsteinsdóttir,
myndlistarmaður
Sýning á vatns-
litamyndum
Björg Þorsteinsdóttir, mynd-
listarmaður, sýnir verk sín í
Artóteki á 1. hæð Grófarhúss,
Tryggvagötu 15. Á ferli sínum
hefur Björg fengist við grafík,
málverk, teikningu, vatnsliti og
collageverk. Á þessari sýningu
eru nú 10 vatnslitamyndir.
Myndirnar eru málaðar beint
á pappírinn án nokkurra frum-
draga. Björg sækir sér endur-
nýjun og tilbreytingu með því
að breyta um tækni. Undan-
farið hefur hún einbeitt sér að
vatnslitum þar sem yrkisefnið
er oft leikur vatns og ljóss, end-
urteknar hreyfingar, sjónrænar
heildir þar sem gagnsæir litir
og birta eru í öndvegi. Björg
nam myndlist við Handíða-og
myndlistaskóla Islands, Mynd-
listaskólann í Reykjavík og við
Staatliche Akademie der bilden-
den Kunste í Stuttgart. Björg
hefur verið stundakennari við
Myndlista-og handíðaskóla
íslands og Myndlistaskólann
í Reykjavík og var forstöðu-
maður Ásgrímssafns í nokkur
ár. Nú situr Björg í fulltrúaráði
Listasafns Sigurjóns Ólafssonar.
TRYGGÐU ÞÉR HINTAK STRAX !
SAM MYNDIR