blaðið - 26.11.2005, Side 48
48 i barnaeFni
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Búðu til eldingu
Kondórinn
Kondórinn sem býr í Andesfjöllum
í Suður-Ameríku er stærsti fuglinn
í heimi sem getur flogið. Þrátt fyrir
tiltölulega mikla þyngd gerir gífur-
legt vænghaf kondórsins honum
kleift að svífa nánast endalaust með
því að nýta sér uppstreymi lofts.
Upphaflega bjó Andeskondórinn
víða í Andesfjöllum, allt frá Venesú-
ela til suðurodda Suður-Ameríku. Á
síðustu öld fór fuglunum að fækka
gífurlega vegna ásóknar veiðimanna.
Fuglarnir sem eru hér á myndunum
voru aldir upp í bandarískum dýra-
görðum með það að markmiði að
sleppa þeim út í náttúruna. Árið
1989 var 120 dýrum sleppt í Kól-
umbíu en nú eru einungis 65 þeirra
lifandi. Ástæðan er líklega veiði og
eyðing þess landsvæðis sem kon-
dórar búa á.
Þyngd: 9 til 12 kíló.
Vænghaf: Rúmir þrír metrar.
Aldur: Rúm 75 ár.
Fæða: Kondórar eru hræætur.
D
Ph
1
J
L
Geturðu hjálpað Rauðhettu
litlu að komast að eggj-
unum svo mamma hennar
geti húið til eggjaköku
handa ömmu hennar? Próf-
aðu líka að lita Rauðhettu
oghænuna.
Elding er ljós sem sést frá rafstraumi
sem hleypur milli staða í skýjum
eða milli skýja og yfirborðs jarðar.
Rafstraumurinn sem myndar elding-
una hitar loftið í næsta nágrenni svo
snöggt að úr verður sprenging og
hljóðbylgja sem við köllum þrumu
sem berst í allar áttir.
Eldingar sjást ekki oft hér á Is-
landi en erlendis eru þær mun
algengari. Þær eru í senn fallegar,
hættulegar og dularfullar. Meðaleld-
ingin er um fimm kílómetra löng og
jafnbreið fingri. Hins vegar hitnar
næsta nágrenni hennar í hita sem
er fimm sinnum hærri en yfirborð
sólarinnar. Þessi létta tilraun gerir
þér kleift að búa til eldingar heima
í stofu.
Gæludýraverðlaun
Skilaöu inn lausn viö stafagátunni á
þessari síöu í Dýraríkiö Blómavalshúsinu
Skútuvogi. Verölaun eru 5000.-kr
inneign í verslunum Dýraríkisins
VERÐLAUNAÞRAUTIN
Nú er stafaþrautin okkar orðin miklu veglegri en áður. Hvað getur þú
myndað mörg orð með því að nota stafina sem gefnir eru í reitunum.
Öll orðin sem þú finnur verða þó að innihalda stafinn í miðjunni og
vera íslensk. Engin takmörk er fyrir þvi hversu oft hver stafur má
koma fyrir þannig að það getur verið alveg jafn erfitt að finna löng orð.
Dæmi: Rani, tað, eða...
Farið með lausnirnar ykkar, eða
sendið þær í Dýraríkið, Skútu-
vogi 16,104 Reykjavík. Sá sem
fundið hefur flest orð hlýtur veg-
leg verðlaun frá Dýraríkinu.
STAFARUGL
Blaðið fór um daginn í ótrúlega skemmtilegt bakpokaferðalag til
Suður-Ameríku til að safna upplýsingum um kondóra. Á leiðinni í
einni rútunni fór minnisblokkin okkar út um allt og stafirnir rugluð-
ust. Getur þú hjálpað okkur að greiða úr flækjunni?
N R 1 J 1
Ð \A T
E V 1 r
DYRARIKIÐ
Grensásvegi s: 5686668
Skútuvogi 16 s:5680020 - Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is
s 1 G U F L U G
R R Ð B J •• O A N
R Ó G 1 É M F 1
G D E L E S í M
K N A R G V V Ý
Þ O í 1 G G S R
S K V O M 1 K T
A T Æ Æ R H 1 Ú
Ameríka
Egg
Flug
Hrææta
Kondór
Svífa
Útrýming
Veiði
Tól, tæki og efni:
Albakki
Kúlupenni
Teiknibóla
Ullarsokkur
Bakki úrfrauðplasti
Framkvæmd:
Vertu í herbergi sem þú getur
myrkvað mikið með því að slökkva
ljósin.
1. Stingdu teiknibólunni upp í
gegnum álbakkann miðjan.
2. Settu pennann ofan á teikni-
bóluna svo hann standi lóðrétt
upp í loftið. Festu hann vel,
með lími ef þess gerist þörf.
3. Nuddaðu frauðplastbakkann
Þrumuguðinn Þór bjó í Bilskirni og kast-
aði eldingum í þá sem honum þótti eiga
þaðskilið.
hratt með ullarsokknum í
a.m.k. hálfa mínútu.
4. Lyftu álbakkanum með því að
halda um pennann og leggðu á
frauðplastið en passaðu þig að
snerta ekki álið.
5. Slökktu ljósin og færðu fingur-
inn varlega nær álbakkanum.
Ef allt hefur gengið vel fyrir sig
ættir þú að heyra, sjá og finna
fyrir neistum.
Það sem gerist
Þegar þú nuddar frauðplastið stelur
það rafeindum frá ullinni og fær svo-
kallaða neikvæða hleðslu. Sú hleðsla
ýtir rafeindum í enda álbakkans þar
sem þær vilja ólmar komast í burtu
svo jafnvægi náist. Þegar puttinn
þinn nálgast álbakkann sjá rafeind-
irnar færi og stökkva yfir í hann og
þá myndast neistinn.
f°talausa kind?
Ský.
*
Hvað finnst
þér?
Hvað finnst þér vanta í
barnaefnið í Blaðinu?
Er eitthvað skemmtilegt að
gerast hjá þér í skólanum?
Skrifarðu sögur eða Ijóð?
Teiknarðu eða málar eða gerir
eitthvað annað sem þú vilt
koma á framfæri í Blaðinu?
Sendu okkur efnið þitt.
Tölvupóstur:
krakkar@vbl.is
Venjulegur póstur:
Krakkar
Blaðið
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Ekki gleyma að merkja allt
sem þú sendir til Blaðsins.