blaðið - 26.11.2005, Qupperneq 58
58 I KVIKMYWDIR
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöiö
PEIR VORll LEIDDIRI GILDRU...
NU ÞflRF EINHVER AD GJALDA!
bara lúxus
Hrottalegt olUeldi og grolur humor
j einni svakalegustu mynd arsins
Ira leikstjoranum RoU ZomUiel
LAUQARÁS— -
wmBIO
^jj3|Binani»ií!*ÍÍ*5=-
Waitinam
Bikl
karltM
Sýnd kl. 3, 6, 8 og lObiu
Sýnd kl. 8 09 10:2010.16
Horku soennumynd Ira leikstiora
'7 Fasl, ? furious" og Boyz n tUe Hood'
BÓLVUH
VMmmmn
Sndld. SJOog 10:20 tl 16 Sýad U. 3 ■/islensku toli
TILBOÐ A FYRSTU SYNINGAR DAGSINS - AÐEINS 400KR!
ATH: SYNINGAR MERKTAR MEÐ RAUÖU
FÓR BEINT Á TOPPINN I BANÐARlKJUNUMI
ÞAÐ SEM KOM FVRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
★ ★★
-SKDV
★★★
★★★
- SV MBL
l> A SONNIIM ATBURDUM
FXORCISlVÍ
Jk—1 or EuiLY »01*111
4»
©
SÍMI564 0000
SUMAR REQLUR MA ALDREI BRJOTAI
Spannutryllir af bwitu g»rð
mcð Edwjrd Burns
og B«n Kingslvy.
.vSOURDor,
THlJNDEk
Sýnd kl. 5,8 og 10.40 B.i. 16 ára Sýnd kl. 3.20 5.40,8 og 10.20 B.i. 12 ára
Hairdoctor kennir Trabant á rútu
Hljómsveitin Hairdoctor stefnir til
norðurs með Trabant í eftirdragi. Á
laugardagskvöldið verða stórtónleikar
hljómsveitanna Hairdoctor og Trabant
á Odd-vitanum, Akureyri. Þeir sem
ekki kannast við Hairdoctor geta nú
kynnst hljómsveitinni í gegnum nýút-
gefna plötu Hairdoctors sem ber nafnið
Shampoo. Nýtt myndband er svo
líka í spilun á öllum helstu sjónvarps-
stöðvum landsins og svo má finna
myndbandið á www.smekkleysa.is.
FIRÐI HAFNARFIRÐI
S. 555 4420
KRINGL
S. 568
Ferðalag keisara-
mörgœsanna
Nýtt æði er skollið á hjá Islendingum;
mörgæsaæði. Kvikmyndin Ferðalag
keisaramörgæsanna (La Marche De
L’empereur) sló fyrst í gegn á Október-
bíófest fyrir skömmu þar sem hún
var kosin besta mynd hátíðarinnar
af áhorfendum og endaði sem að-
sóknarmesta mynd hátíðarinnar
að auki, um 4.500 manns sáu hana,
sem var tæplega þriðjungur af heild-
araðsókn hátíðarinnar.
Þar af leiðandi var ákveðið að setja
myndina í almennar sýningar síð-
astliðinn föstudag og hefur aðsókn
síðan þá verið ótrúleg. Síðustu helgi
var margsinnis uppselt á myndina
og kom það oft fyrir að hópur fólks
þurfti frá að hverfa. Áður en yfir
lauk höfðu tæplega 3.000 manns
komið að berja mörgæsirnar augum
frá föstudegi til laugardags. Sömu
helgi voru frumsýndar fjórar nýjar
Hollywood-myndir og aðeins ein
þeirra náði meiri aðsókn en Ferða-
lag keisaramörgæsanna, sem endaði
í 3. sæti aðsóknarlistans. Síðastliðin
þrjú kvöld hafa svo mörg hundruð
manns komið á myndina og nálg-
ast heildaraðsókn nú 10.000 manns.
Ekkert lát virðist vera á aðsókninni
nú þegar hún hefur verið sýnd í
tæpar þrjár vikur og fer hún vax-
andi ef eitthvað er. Ekkert virðist
geta stöðvað hana í að verða aðsókn-
armesta heimildarmynd sem sýnd
hefur verið á Islandi.
Þessi aðsókn kemur svo sem ekki
ýkja mikið á óvart þar sem þetta
æði á sér núna stað víða um heim.
í USA er myndin að búin að hala
inn nærri 100 milljónir dollara og er
hún orðin aðsóknarmesta franska
mynd sögunnar. Þá er hún önnur
aðsóknarmesta heimildarmynd sög-
unnar (á eftir Fahrenheit 9/11) og
stefnir í að slá flest hagnaðarmet
kvikmyndasögunnar.
Það sem er allra skemmtilegast
að segja frá er að breidd í aldri áhorf-
enda hérlendis er einstaklega mikil.
Mjög mikið er um að foreldrar taki
ung börn með sér á myndina, allt
niður í 6-7 ára og að sama skapi er
mikil aðsókn meðal eldra fólks. Á
hverri einustu sýningu myndar-
innar má því sjá krakka frá 6 ára
aldri upp í 80 ára gamalt fólk, sitj-
andi 1 sama sal, skemmta sér jafn
vel yfir þessari einstöku kvikmynd.
Svona lagað sést varla lengur, hvort
sem um er að ræða í bíóum eða á
öðrum skemmtunum sem í boði eru
í nútímasamfélagi.
I ljósi þess hversu oft var uppselt
á myndina um síðustu helgi er full
ástæða til að brýna fyrir áhuga-
sömum að vera snemma í því að
tryggja sér miða hyggist það sjá
Ferðalag keisaramörgæsanna um
þessa helgi.