blaðið - 26.11.2005, Síða 62
62 IFÓLK
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 2005 blaöiö
EIIMIM Á FERÐ
Það hefur komið fyrir að fólk finnist í
íbúðum sínum eftir að hafa verið látið
í lengri eða skemmri tima og þykir það
alltaf mjög sorglegt. (bókinni um Birgittu
Johns er það hennar versti ótti að deyja
ein og verða étin af shefferhundi. Það sem
er jafnvel ennþá sorglegra er að þeir sem
deyja einir eru oft þeir sömu og hafa lifað
einir. Það þykir hins vegar meira fréttaefni
að deyja einn en að lifa einn. Smáborgar-
inn er stundum einn og hefur velt fyrir sér
hvar sé hægt að vera einn án þess að vekja
óþarfa athygli.
Smáborgarinn hefur ekki oft farið einn í
bíó en það hefur þó komið fyrir og er ekk-
ert sem hann langar að gera aftur. Smá-
borgaranum finnst skárra að fara einn f
þrjú eða fimm bíó en átta eða tíu bló. Á
ódýrum veitingastöðum og skyndibita-
stöðum er í lagi að vera einn en alls ekki
á dýrari veitingastöðum. Þá er leikhús
algerlega út úr myndinni nema þú hafir
einhvern félagsskap. Á barina fer enginn
einn nema félagslega einangraðir alkar og
djammdrósir.
Smáborgarinn talaði einu sinni við konu
sem hafði dvalið erlendis um árabil. Konan
sagði að ef hún settist inn á veitingastað
eða bar þar sem hún bjó hefði mátt bóka
að einhver kom til að spjalla við hana. Hér
heima getur maður hins vegar hæglega
dáið ofan í súpunni sinni á veitingastað
án þess að nokkur veiti því eftirtekt nema
þeir sem biða óþolinmóðir eftir borðinu
ar nám erlendis og af bloggsíðu hennar að
dæma hefur hún kynnst fleirum í hinum
nýju heimkynnum sínum heldur en hún
hefði gert á áratug á fslandi. Getur hugs-
ast að ísland sé ekki aðeins einangrað land-
fræðilega heldur líka félagslega? Eða get-
ur ákveðin eingangrun verið af hinu góða?
Það koma klárlega upp aðstæður þar sem
Smáborgaranum finnst betra að vera
einn, t.d. í innkaupaferðum, fyrir framan
sjónvarpið heima hjá sér og þegar hann
er þreyttur og illa upplagður. Kannski er
blanda af félagsskap og einveru best eftir
alltsaman.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Þorbjörn Broddason, prófessor við félagsvísindadeild Háskóla íslands
Hvaö finnst þér um niðurstöður
nýjustu fjölmiðlakönnunarinnar?
„Mér þykja þetta nokkuð merkilegar niðurstöður, ég held það sé alveg
óhætt að segja það og það stafar af því að við erum að sjá verulegan sam-
drátt á nýjan leik. Þróunin hefur verið sú að blaðalestur hefur verið að
dragast saman víða um heim og líka hér á landi. En með tilkomu Frétta-
blaðsins og síðan Blaðsins jókst augljóslega blaðalestur. En núna má vera
að við séum komin upp á háhæðina og hugsanlega að leggja af stað niður
aftur. En svo getur lika verið að þetta sé tilfallandi sveifla vegna kring-
umstæðna. En þetta bendir sterklega til þess að þessi svolítið óvænta og
nýstárlega sókn dagblaða, þessa tiltölulega gamla fjölmiðils, hafi stað-
næmst.“
Stökustund <
í umsjón Péturs Stefánssonar
Botnar, vísur og fyrripartar
sendist til: stokuslundfe'vbl.is
Valur Óskarsson botnar:
Út á lífið oft égfer
ölvaður afgleði.
Með svartadauða ogséniver
svoman ég ei hvað skeði.
V.L.:
Þetta lokkar, lyftir mér
og léttir mínu geði.
Magnús Hagalínsson:
Fyrir gellufallinn er
áfjaðradýnu beði.
Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd:
Kalla þáfram kóng í mér,
kipp’íburtu peði.
Sveinn Auðunsson í Reykjavík:
Ei Bakkus meira með nú er,
en mestu áður réði.
Rúnar Kristjánsson botnar
svo úr verður víxlhenda:
Þá er leystur vinnu vandinn,
vcentanlega eflast kjör.
Losar hreistur afsér andinn
ogfram dregurBraga hjör.
Valur Óskarsson:
Yfir kaldan eyðisandinn
ek ég hratt með bros á vör.
V.L.:
Enn efhann rennur út í sandinn,
ósköp verður fátt um svör.
Sveinn Auðunsson:
Bandarfjandinn bleika gandinn,
beinir skjótt til Vítis för.
Magnús Hagalínsson:
Loforð eru lcevi blandin,
-leirinn verður aldrei smjör.
Rúnar Kristjánsson botnar:
Lengjast nœtur, lækkar sól,
lífið mœtir raunum sínum.
Kólgan vætir klakað ból,
kæfirglætu í huga mínum.
Sveinn Auðunsson:
Ekki kæta allajól,
urmull grætur kvalinn pínum.
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir:
Um það herma ýmsar spár,
oftþeir vilja stranda
sem hafa vasafullafjár
en fátæktinaí anda.
V.L. sendir Rúnari Kristjánssyni
vísu:
Vísuna égþakka þér,
þessa um rím ogstuðla.
Oft hefur blöskrað alveg mér
hvaðýmsir reyna’að hnuðla.
Rúnar Kristjánsson yrkir:
Alfreð vænsta kostinn kaus,
kjöri frá aðganga.
Enda að verða orkulaus
eftirsetu langa.
Rúnar heldur áfram:
Hann mun eflaust humma að von,
helst víst sami skaðinn,
þó að Kolur Krummason
komiþar í staðinn.
Sveinn Auðunsson er barnabarn
Sveins Hannessonar frá Elivogum,
þess landskunna hagyrðings.
Sveinn Auðunsson yrkir:
Enginn tekur eftir hér
þó eitthvaðfagurt kveði.
en kersknivísur sérhver sér
ogsýnist tapagleði.
Sveinn yrkir áfram:
Er uppi var hann afi minn,
á engin vorljóð hlýddi,
en flím þá kætti sérhvert sinn
ogSvein þatm bara prýddi.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir um
samferðamann:
Þú sem hefurfráan fót
ogfjölbreytt lundarfar,
lýsir eins oggullið grjót
ígötu ævinnar.
Ekki skilja allir Baugsmálið.
Davíð Hjálmar Haraldsson á Akur-
eyri yrkir:
Farsi eðafáránleikaspaug?
Fœstir málatilbúnaðinn skilja.
Sigurður ei bær að kæra Baug.
Bogi má en segist ekki vilja.
Ý eða í, eða þannig. Það er eins gott
að vera vel að sér í stafsetningu.
Ragnar Ingi Aðalsteins-
son yrkir:
Einnfer til rjúpna um
auðnarslóð,
óðfús í kjarrið lítur
(lýtur).
Alls konar drunur og háværhljóð
heyrast þegar hann skýtur (skítur).
Einar Kolbeinsson var beðinn að
yrkja
ljótt um lögfræðinga:
Sinna vel um titlatog,
tíðka klæki slynga
rausafyrir rétti og
rukkafátœklinga.
Eftir þessa vísu var honum ljúft og
skylt að gera bragarbót.
Einar orti:
Auka hróður okkar tel
ogalltsem þjóðin megnar.
Lögmennfróðir lifi vel,
landsins góðu þegnar.
Jón Bjarnason þingmaður VG,
lenti í hremmingum við að ná
sambandi við þjónustuver Símans. í
tvígang var hann þrítugasti í röðinni.
Uxi orti:
Þingmaðurinn þoldi bið,
þrítugasti í röðinni
en bráðursvo að bænda sið,
bölvaði símstöðinni.
Fyrripartar:
Enn ersultarólin hert,
á öryrkjum níðst og troðið.
V.L. sendir þennan:
Oft hafa Ijóðin þessa þjóð
úr þagnarsjóði hafið.
„Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt
fram kom í ljós.að heilbrigðisráðu-
neytið hafði fellt niður bensínstyrk
til hreyfihamlaðra. Var það helsta
sparnaðarráðstöfun ráðuneytisins.
Þessi ráðstöfun mæltist mjög illa
fyrir innan þings sem utan og varð
heilbrigðisráðherra að draga þessa
ákvörðun sína til baka. En þessi
ráðagerð sýndi afstöðu ráðuneyts-
ins til öryrkja.Þegar mál þetta og
mál öryrkja almennt voru rædd á
alþingi sagði heilbrigðisráðherra.að
öryrkjum hefði fjölgað mikið á
árinu. Var ráðherra mikið niðri
fyrir og hann sagði með hækkuð-
um rómi: Öryrkjum hefur fjölgað
um 3 á dag undanfarið. Var ljóst, að
honum þótti þetta ógnvænlegt og
menn bjuggust við að í næstu setn-
ingu mundi ráðherra segja hvað
hann vildi gera við þessa 3 á dag!“
Björgvin Guðmundsson á http://
www.gudmundsson.net/index.
asp?lesa=upphaf
Auglýsingadeild 510-3744
17] et.tr»n
MÆLANLEGUR
I i ÁRANGUR
Á ég að vera kominn heim kiukkan tíu
í kvöld eða tíu í fyrramálið?
HEYRST HEFUR...
Markaðsdeild 365 miðla hef-
ur gengið skrefinu lengra
en áður hefur þekkst í túlkun
á fjölmiðlakönnunum Gallup.
Ótrúleg bíræfni fyrirtækisins
í túlkun á sjónvarpsáhorfi sjón-
varpsstöðvarinnar Sirkus hefur
vakið mikla athygli og víst er að
það þarf örlítið meira en frjótt
ímyndun-
arafl til að
bera sam-
an hversu
m a r g i r
h o r f ð u
einhvern
tímann á Sirkus í könnunar-
vikunni við það hversu margir
áttu sjónvarpstæki á fyrsta
ári sjónvarpsins. Þannig gera
markaðssnillingarnir ráð fyr-
ir í útreikningum sínum að
aðeins einn hafi getað horft á
hvert tæki þegar sjónvarpið hóf
starfsemi sína... Þetta er snilld.
Sannleikurinn um áhorf
Sirkus er heldur naprari.
Samkvæmt könnun Gallup
er það lítið sem ekkert. Þann-
ig mælist áhorf á Ástarfleyið
aðeins 6,6% og 5,5% á Veggfóð-
ur. Flestir þáttanna á stöðinni
eru með rúmlega 1% áhorf. At-
hyglis-
“3 Gallup
vert er
að bera
þ e 11 a
saman vi8’sambærilega þætti
annarra stöðva. Þannig er Bac-
helorinn á Skjá 1, sem er „raun-
veruleikaþáttur" og sýndur
sama kvöld og Ástarfleyið með
20,6% áhorf og Innlit/útlit, sem
er hið upprunalega Veggfóður,
með 14,4%.
Pá má ekki gleyma sjálfri
aðalfréttinni í Fréttablað-
inu um könnun Gallup. Hún
snérist um Blaðið, sem skyndi-
lega hefur vakið mikla athygli
hjá Fréttablaðinu. Þannig datt
blaðamaður
um þá snilld-
arhugmynd
að blanda
saman pró-
sentum og
prósentu-
stigum til að
krydda um-
fjöllun sína. í
fyrirsögn var slegið upp að lest-
ur Blaðsins hefði minnkað um
20 prósent en inni í greininni
var þess vandlega gætt að ræða
bara um prósentustig þegar
kom að minnkandi lestri Frétta-
blaðsins. Þá þótti ekki ástæða
til að geta þess að lestur Frétta-
blaðsins minnkar þrátt fyrir
að heilu bæjarfélögunum hafi
verið bætt inn í dreifinguna hjá
þeim á síðasta hálfa árinu. Hafa
skal það sem betur hljómar...
Sagt var frá því í gær að
Guðni Ágústsson, land-
búnaðarráðherra, hefði fengið
sérstökheiðursverðlaun í heilsu-
átaki Mannlífs og Iceland Spa
and Fitness fyrir það áræði
að boða heilbrigðari lífshætti.
Guðni léttist
um tæp átta
kíló og um-
mál hans
minnkaðium
41 sentimetra.
Þetta virð-
ist þó ekki
duga þessum
besta vini
íslensku kýr-
innar þar sem hann var mætt-
ur eldsnemma í gærmorgun á
hlaupabrettið í Þrekhúsinu og
tók duglega á því. Þar spriklaði
.4
hann um með ekki ómerkari
mönnum en Bubba Morthens
og Ellerti B. Schram.