blaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 6
6 I IWNLEWDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaöiö
Mikið um
svifryk
Svifryk hélt áfram að mælast yfir
heilsuverndarmörkum i Reykja-
vík í gær, fjórða daginn í röð, sam-
kvæmt tilkynningu frá Umhverf-
issviði Reykjavíkur. Búist er við
áframhaldandi stilltu veðri og
því er útlit fyrir að magn svif-
ryks í andrúmslofti verði áfram
yfir heilsuverndarmörkum.
Svifryk er fínasta gerð ryk-
agna sem eiga greiða leið i önd-
unarfærin og er fólki með við-
kvæm öndunarfæri því ráðlagt
að halda sig fjarri fjölförnum
umferðargötum.
Hiti sjávar áfram
yfir meðallagi
Mbl.is | Hafrannsóknarstofnun
hefur nú skilað frá sér niður-
stöðum vetrarmælinga sem
sýna að almennt er hiti og selta
sjávar yfir meðallagi umhverfis
landið. Hiti og selta í efri lögum
sjávar norðan og austan við
landið mælast svipuð og áður
en hafís lagðist yfir norðurmið
síðla vetrar 2005.
Sjávarhiti og selta úti fyrir
Suður-og Vesturlandi hafði verið
vel yfir meðaltali vetargilda ár-
anna 1970-2006. Hafrannsókn-
arstofnun segir að hlýsjórinn að
sunnan hafi því verið með svip-
uðum styrk og síðustu ár þó hiti
hans hafi lækkað lítið eitt. Hiti
og selta á norðurmiðum lækk-
uðu nokkuð í kjölfar hafíssins
árið 2005 en hafa hækkað aftur
og eru nú yfir meðallagi síðustu
30 ára.
Ferðaþjónustan er
vanmetin auðlind
„Náttúran mun skila okkur mun meiri verðmœtum en álver.tc
„Mér finnst Húsvíkingar fagna fyr-
irhuguðum álversframkvæmdum
hér á svæðinu af full miklum ákafa,“
segirÁsbjörnBjörgvinsson.forstöðu-
maður Hvalasafnsins á Húsavík.
„Menn fóru fram úr sér í fagnað-
arlátunum og mér fannst þau ekki
gefa skemmtilega mynd af Húsvík-
ingum. Þær auðlindir sem ég sé á
norð-austurhorninu er hin frábæra
náttúra sem hér er og sú auðlind er
stórlega vanmetin. Náttúran mun
skila okkur mun meiri verðmætum
en álver þegar litið er til lengri tíma
en mér finnst ráðamenn skorta
framsýni til að horfa svo langt fram
í tímann.“
Álver gæti fækkað ferðamönnum
Ásbjörn segir að á síðasta ári hafi
um 18.500 manns sótt Hvalasafnið á
Húsavík og segir að þessir gestir hafi
margfeldisáhrif. „Allt í tengslum við
hvalaskoðunarferðinar sem gerðar
eru út héðan er gott dæmi um hvað
hægt er að gera og í kringum þær
hafa orðið til tugir starfa. Með til-
komu þjóðgarðs á Vatnajökli opnast
síðan enn fleiri möguleikar. f vor er
að hefjast beint flug frá Akureyri
til Kaupmannahafnar og það gæti
þýtt enn meiri fjölgun ferðamanna
til norðausturlands. Mývatn þykir
mikil náttúruperla og þar er orðið
uppbókað í gistingu stóran hluta
ársins.“
Ásbörn minnir einnig á að þær
skoðanakannanir sem birtar hafa
komiMi i| gei'um veritiM
AiFABORG
Skútuvogi 6 • Sími 568 6755
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðumaöur
Hvalasafnsins á Húsavík.
verið í tengslum við ferðaþjónust-
una bendi til að erlendir ferðamenn
komi hingað til lands vegna náttúr-
unnar. „í ljósi þessa er ég hræddur
um að álver myndi ekki bæta at-
vinnulíf á svæðinu að sama skapi
og ferðaþjónustan þegar hlutirnir
eru skoðaðir í stærra samhengi og
litið lengra fram í tímann. Rísi álver
á svæðinu er það ekki aðeins ferð-
þjónustan sem mun líða fyrir það
heldur einnig sjárvarútvegurinn en
sjómenn hafa orðið fyrir tekjuskerð-
ingu vegna hás gengis sem að hluta er
tilkomið vegna álversframkvæmda.“
Skiptar skoðanir meðal
aðila í ferðaþjónustunni
Ásbjörn segir skiptar skoðanir um
uppbyggingu álvers á norð-austur-
horninu innan ferðaþjónustunnar
og að margir þeirra vilji fá álver á
svæðið. „Það er einhver uggur í
mér um að þetta verði ekki til góðs
ef af verður en ég er eina röddin
í bæjarfélaginu sem ekki fagnar
fyrirfram." Ásgeir rifjar upp bið
eftir nýrri verksmiðju sem átti að
tengjast fullvinnslu á rækjuskel.
„Skóflustungan var alltaf handan við
hornið og menn biðu árum saman
eftir þessari verksmiðju sem aldrei
leit dagsins ljós. Nú er rækjan dottin
upp fyrir og þessi draumur úti. Það
er spurning hvort að eitthvað svipað
verði upp á teningnum með álverið.
Það er mikilvægt að við lítum okkur
nær og horfum á þau verðmæti sem
við höfum í kringum okkur sem er
náttúran."
Listi Framsóknarflokks ákveðinn
Óskar Bergsson, húsasmíðameistari (annar frá vinstri) verður í 2. sæti á lista
Framsóknarflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna í vor. Röð efstu
manna var ákveðin á fundi í gær. Asrún Kristjánsdóttir hönnuður (lengst t.v.) verður
í 4. sæti, Marsibil Sæmundardóttir (lengst t.h.) verður f því þriðja en fyrir listanum
fer Björn Ingi Hrafnsson aðstoðarmaður forsætisráðherra.
Impregilo greið-
ir skaðabætur
ítalska verktakafyrirtækið Impregilo
var í gær dæmt til að greiða portú-
gölskum trésmið rúmlega 900.000
krónur vegna leiðréttingar á launum
að því fram kemur á fréttavef ruv.is.
Portúgalinn var við vinnu við
byggingu Kárahnjúkavirkjunar
í gegnum starfsmannaleiguna
Sélect. Hann fékk greidd laun sem
verkamaður frá febrúar og fram
í júní 2004. Portúgalinn krafði
Impregilo um mismun á þeim
launum sem hann fékk greidd
og þeim sem hann taldi sig eiga
rétt á samkvæmt kjarasamningi.
Fiskiskipum
fækkar
Alls voru 72 færri fiskiskip skráð
á landinu í fyrra miðað við árið á
undan samkvæmt riti Hagstofunnar
um fiskiskipatól í árslok 2005.
I fyrra voru alls 1.752 fiskiskip á
skrá en árið 2004 voru þau 1.824.
Þar af voru vélskip 862, togarar 65
og opnir fiskibátar 825. Skipum
fækkaði í öllum flokkum milli ára.
Flest fiskiskip voru með skráða
heimahöfn á Vestfjörðum eða um
313 en næst flest á Vesturlandi. Fæst
skip voru með skráða heimahöfn
á Norðurlandi vestra eða 101 skip.
240 milljón-
ir í árslaun
Forstjórar og forstöðumenn
Straums Burðaráss voru saman-
lagt með tæpar 240 milljónir í
laun og hlunnindi á síðasta ári.
Þetta kemur fram í ársskýrslu
félagsins fyrir árið 2005. Samkvæmt
henni var Þórður Már Jóhannes-
son, forstjóri, með 64 milljónir í
laun og hlunnindi á síðasta ári og
Benedikt Gíslason, forstöðumaður
eigin viðskipta, með 16 milljónir.
Þá fengu níu aðrir forstöðu-
menn alls um 159 milljónir í laun
og hlunnindi á síðasta ári eða að
meðaltali um 18 milljónir hver.
Reykjavík->Oslo
Kr. 8.000
Reykjavík -> Þrándheimur
“Kr. 12.500 —
Reykjavík -> Stavanger
Kr. 9.500 a
www.flysas.is
Reykjavík ■> Bergen
Kr. 9.500
Tími til
kominn!
S4S
Scandinavian Airlines
Skattar og flugvallargjöld innifalin. Flug hefst 27. mars. Sími fjarsölu: 588 3600.
A STAR ALLIANCE MEMBER '/>