blaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 04.03.2006, Blaðsíða 38
38 I MENNING LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaðið Ljósmynd: Eddi Baltasar Kormákur fer ekkl hefðbundnar leiðir I uppfærslu sinni á leikverki Henriks Ibsens, Pétri Gaut, heldur færir hann til nútímans. Meistaraverk Ibsens 1 nýstárlegri uppfærslu Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen verður frumsýnt í Kassanum í dag. Leikstjóri er Baltasar Kormákur en með titilhlutverkið fer Björn Hlynur Haraldsson. Pétur Gautur er vígslu- sýning Kassans, sem er nýtt svið í Þjóðleikhúsinu. Pétur Gautur er eitt af meistara- verkum Henriks Ibsens, snilldar- legur ljóðleikur sem aflaði skáldinu heimsfrægðar. Verkið kom fyrst út á bók árið 1867 en tæpum áratug síðar var það frumflutt og hefur reglulega verið sett upp í frægum uppsetningum í helstu leikhúsum heims frá þeim tíma. Hin margbrotna titilpersóna verks- ins og knýjandi spurningar um það sem skiptir máli í lífinu og kjarna mannsins hafa heltekið jafnt leikhús- listafólk sem áhorfendur í gegnum tíðina. Mannlegt innsæi höfundar- ins nýtur sín hér til fulls og ímyndun- arafl og hugmyndaauðgi hans fara á óviðjafnanlegt flug, í verki sem er leiftrandi af húmor. í sýningu Þjóð- leikhússins nú verður sjónum beint að Pétri Gaut í nútímanum. Leikstjóri sýningar Þjóðleikhúss- ins er Baltasar Kormákur sem er áhorfendum að góðu kunnur sem leikari og leikstjóri, bæði í kvik- myndum og leikhúsi. Frumlegar og myndrænar leiksýningar hans, jafnt á klassískum verkum á borð við Hamlet og Draum á Jónsmessunótt, sem og nýrri verkum, hafa vakið mikla athygli. Nýlegasta uppsetning hans í Þjóðleikhúsinu, Þetta er allt að koma, hlaut Grímuna - íslensku leiklistarverðlaunin 2003 sem besta leiksýning ársins. Gretar Reynisson, sem gerir leikmynd sýningarinnar á Pétri Gaut, hlaut jafnframt Grímuna fyrir Þetta er allt að koma. Ætur skúlptúr i Einholtinu Sýningunni „Munúðarfull“ sem hjónin Birgir Breiðdal, hönnuður, og Ása Heiður Rúnarsdóttir, mynd- listarkona, hafa staðið að í Einholti 6 lýkur á morgun. Af því tilefni hyggj- ast þau endurgera „matarskúlptúr“ sem búinn var til fyrir opnunina 25. febrúar síðastliðinn. í tilkynningu frá hjónunum segir að skúlptúrinn verði með aðeins öðru sniði en við opnunina en þó jafngirnilegur. Nýi skúlptúrinn verður afhjúpaður kl. 15 á morgun. Á sýningunni gefur að líta ýmis at- hyglisverð myndlistarverk og hönn- unargripi úr smiðju þeirra hjóna. Þar er ennfremur til sýnis hálfrar aldar gamall „Kiljanstóll" sem fengið hefur nýstárlega upplyftingu. Búkur stólsins var hannaður af Guð- mundi Breiðdal, húsgagnasmiði, og Sérstakur matarskúlptúr setti svip sinn á opnun sýningar Birgis Breiðdals og Ásu Heiðar Rúnarsdóttur í Einholti 6. Þau ætla að endurtaka leikinn á lokadegi sýningar- innará morgun. afa Birgis en Birgir og Ása hönnuðu sjálf áklæðið og fætur hans. Aðeins tvö eintök voru smíðuð af stólnum, annað fyrir Halldór Laxness, rithöf- und, en hitt fyrir föður Birgis, Birgi E. Breiðdal, arkitekt. Forfeður i Suðsuðvestur Myndlistarkonan Anna Guðjóns- dóttir opnar sýninguna „Forfeður" í sýningarýminu Suðsuðvestur í Reykjanesbæ kl. 16:00 í dag. Þar sýnir hún lítil málverk og eins konar málverkaskápa. 1 verkum sinum veltir hún fyrir sér áhrifum fortíðar, uppruna og ólíkum menn- ingarheimum og eru kinversk áhrif sérstaklega áberandi. Anna Guðjónsdóttir býr og starfar við myndlist í Hamborg þar sem hún hefur byggt upp sinn myndlist- arferil að mestu. Frá því að Anna lauk námi hefur hún fengist við að mála menningarlitaðar ímyndir og fyrirfram gefnar hugmyndir um náttúru, landslag og ákveðna staði. í Hamborg stofnaði hún og starf- rækti gallerí fyrir landslagslist í samvinnu við listamanninum Till Krause. Suðsuðvestur er til húsa að Hafn- argötu 22, Reykjanesbæ. Þar er opið fimmtudaga og föstudaga kl. 16- 18:00, um helgar kl. 14-17:00 eða eftir samkomulagi. SOLUMENN ÓSKAST Vegna aukinna umsvifa óskar Blaðið eftir sölumönnum í fulla vinnu. Um er að ræða skemmtilegt starf hjá fyrirtæki í örum vexti með skemmtilegu fólki. Góðir tekjumögu- leikar fyrir gott fólk. Blaðiö Bæjarlind 14-16 201 Kópavogur Umsóknir sendist á atvinna@vbl.is íslandsmeistaramótið i ömurlegri Ijóðlist Nú fer hver að verða síðastur að skila inn ljóði í samkeppni jaðarút- gáfunnar Nýhils um ömurleg ljóð en skilafrestur rennur út miðviku- daginn 8. mars. Tilkynnt verður um úrslit viku síðar og er bókagjöf frá út- gáfunni í verðlaun fyrir sigurljóðið. Ljóðum skal skilað á kolbrunars- kald@simnet.is, undir fullu nafni. Á heimasíðu útgáfunnar segir að ljóðið skuli vera þrjú erindi, fjórar línur hvert og um það bil fimmtán atkvæði í hverri línu. „Tekið verður tillit til asnalegra myndlíkinga, klaufalegs orðalags og ósmekklegs umfjöllunarefnis, auk annarra stílbragða ömurðarinnar sem dóm- nefnd þykir rétt að hafa til viðmið- unar,“ segir ennfremur á síðunni. Tildrög samkeppninnar má rekja til draums sem Eirík Örn Norðd- hal, einn af forsprökkum Nýhils- hópsins, dreymdi fyrir skemmstu. Dreymdi Eirík að ljóð sem sigrað hefði í ljóðasamkeppni hefði fengið svo slæmar viðtökur almennings að ástæða þótti til að skella því á for- síðu dagblaða. I kjölfarið tók stjórn Nýhils ákvörðun um að efna til sam- keppni þar sem markmiðið væri að skrifa ljóð sem væri að formi til eins og ljóðið í draumnum. Nánari upplýsingar um sam- keppnina má finna á heimasiðu Ný- hils, www.nyhil.org. NÁMSKEIÐ í MATARGERÐ Viltu verða junk-food að bráö eöa sœkja stutt námskeið í matreiösiu ? 100 % nœring fyrir þig og þína. Einföld matargerð, flókin matargerö, kökugerð, ítölsk, frönsk, dönsk, thai, cajun eða þetta góða íslenska. Eitthvað fyrir alla konur og karla, yngri sem eldri. Námskeiöið fer fram í Lcekjarskóla Hafnarfirði og byrjar 13. mars 2006. Námskeiðið stendur yfir í 2 vikur. Kennt verður á mán ,þri, fim, kl: 17.00 - 21.00 Verð Kr: 17.500.- 500 króna hráefniskostnaður á dag. Kennari er Jónas Ólafsson Matreiðslumeistari Uþþl: í sima 554-5929 eða jonasola@gmail.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.