blaðið

Ulloq

blaðið - 04.03.2006, Qupperneq 16

blaðið - 04.03.2006, Qupperneq 16
16 I FRÉTTASKÝRING LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaöiö Vatn verður uppspretta átaka John Reid, varnarmálaráðherra Breta, óttast að loftslagsbreytingar kunni að leiða til átaka í heiminum á næstu áratugum. Reid óttast einkum átök um yfirráð yfir vatnslindum. Loftslagsbreytingar geta orðið ein helsta ástæða átaka í heiminum á næstu 30 árum, ekki síst ef átök brjótast út á milli ríkja um yfirráð yfir vatnslindum að mati John Reid, varnarmálaráðherra Breta. Á ráð- stefnu um alþjóðamál sem haldin var í London fyrr í vikunni benti Reid á að á sama tíma og mannfjöldi á jörðinni eykst ganga vatnslindir í auknum mæli til þurrðar. Hann varaði við því að átök milli ríkja af þessum völdum myndi fjölga á næstu árum þar sem hlýnun jarðar leiddi til þess að eyðimerkur þektu stærri hluta yfirborðs jarðar, ís- breiður bráðnuðu og vatnslindir menguðust. Reid sagði jafnframt á ráðstefn- unni að loftslagsbrey tingar væru ein helsta hætta sem steðjaði að öryggi í heiminum ásamt alþjóðahryðju- verkum og orkuskorti. Benti hann jafnframt á að breski herinn yrði að vera í stakk búinn að fást við átök sem kynnu að brjótast út vegna dvínandi vatnslinda. Innan hersins eru menn þegar farnir að íhuga afleiðingar loftslags- brey tinga á næstu þremur áratugum og vara við þvi að hersveitir verði að búa sig undir fleiri neyðaraðgerðir í mannúðarskyni, störf við friðar- gæslu og íhlutanir í átök. Nokkrir embættismenn á vegum Atlantshafs- bandalagsins tóku undir áhyggjur Reid á ráðstefnunni. Fátæk ríki ekki undir hættuna búin Reid sagði að loftslagsbreytingar ættu þegar þátt í átökum í Afríku og benti á að fátæk ríki væru mörg hver ekki í stakk búin til að takast á við vatnsskort, flóðahættu eða uppblástur. „Ef við lítum rúman áratug fram í tímann sjáum við fram á aukna óvissu, óvissu um afleiðingar lofts- lagsbreytinga á stjórnmál og fólk. Flóð, bráðnun íshreiðna og upp- blástur gæti leitt til þess að ræktar- land tapaðist, vatnslindir menguð- ust og efnahagskerfi legðust í rúst,“ sagði Reid. „Meira en 300 milljónir manna í Afríku hafa nú þegar ekki aðgang að hreinu vatni. Loftslagsbreyt- ingar munu gera þetta slæma ástand enn verra,“ sagði Reid og bætti við að þessar breytingar myndu leiða til þess að enn frekar gengi á auðlindir sem nú þegar eru af skornum skammti svo sem hreint vatn og gott ræktarland. „Slíkar breytingar munu auka lík- urnar á því að til átaka komi. Það er helber staðreynd að vatnsskortur á sinn þátt í þeim hræðilegu átökum sem eiga sér stað í Darfur-héraði (í Súdan). Við ættum að líta á það sem viðvörun." Losun koltvíoxíðs eykst Umhverfisverndarsinnar á Bret- landi hafa tekið undir viðvaranir Reid og krefjast þess að stjórnvöld leggi meira á sig í baráttunni við að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda. Tony Juniper, framkvæmda- stjóri samtakanna Vinir jarðarinnar, sagði í viðtali við breska dagblaðið The Independent í vikunni að rann- sóknir staðfestu æ betur umfang þeirra vandamála sem hlýnun jarðar hefði í för með sér og nú væru áhrif þeirra fyrir öryggi og stjórnmál í heiminum að koma í ljós. Spáði hann því jafnframt að vandinn sem vatnsskorturinn hefði í för með sér gæti orðið einna skæðastur í Mið- austurlöndum og í Norður-Afríku. Charlie Kornick, sem stjórnar baráttu Grænfriðunga fyrir því að dregið verði úr losun gróðurhúsa- lofttegunda, sagði að vatnsskortur vegna loftslagshreytinga vofi yfir milljörðum manna í Afríku, Asíu og Suður-Ameríku. „Ef stjórnmála- menn gera sér grein fyrir alvarleika þessa vandamála af hverju eykst þá losun koltvíoxíðs á Bretlandi?" Bókanir erlendis | 461-6010 | 08-17 virka daga | erlendis@holdur.is | holdur.is Bílaleigubíll í Þýskalandi frá 2.285 kr á dag* Ford Fiesta eða sambærilegur. Innifalfð í leiguverði erlendis: Ótakmarkaður akstur, skattur, tryggingar og afgreiðslugjald á flugvelli - ekkert bókunargjald. ** M.v. 7 daga lágmarksleigu, verð er háð gengi og getur breyst án fyrirvara Bókaðu bílinn heima í síma 461-6010 THE INSTTTUTE OF TRANSPORT MANAGEMENT (ITM) valdi National sem btlaleigu ársins 2006 bæöi f Bretlandi og Evrópu. Petta er annaó árió í röð sem sem þessl hefður hlotnast fyrfrtækfnu í Bretlandf, en þriðja árið í röð sem National er kosin besta bílalelgan í Evrópu. m NainmdCmttmat þínar þarfir - okkar þjónusta. Staðreyndir um vatnsneyslu: 97,5% alls vatns á jörðinni er salt og því óhæft til neyslu. Stærstur hluti ferskvatns er í formi íss. Áætlað er að hver maður þurfi á um 50 lítrum af vatni að halda á degi hverjum en flestir láta 30 lítra sér nægja. Af þeim fara fimm lítrar í mat og drykk og 25 til hreinlætis. í sumum löndum notar hver mann- eskja minna en tíu lítra af vatni á dag. I Gambíu notar hver maður um 4,5 lítra, í Malí 8, Sómalíu 8,9 og í Mósambík 9,3. Á hinn bóginn notar hver maður í Bandaríkjunum að meðaltali 500 lítra á dag og á Bretlandi 200 lítra. Á Vesturlöndum notar hver maður að meðaltali um átta lítra við að (Malí notar hver manneskja að meðaltali 8 lítra af vatni til allra þarfa. A Vesturlönd- um notar hver maður sama magn til þess eins að bursta tennurnar. bursta tennur, 10-35 lítra við að Kartöflur: 1.000 lítrar sturta niður í salerninu og 100- 200 lítra í sturtu. Fjöldi vatnslítra sem þarf til fram- leiðslu á einu kílói af nokkrum al- gengum matvælategundum: Maís: 1.400 lítrar Hveiti: 1.450 lítrar Kjúklingar: 4.600 lítrar Nautakjöt: 42.500 lítrar ** ** Veródæmi Bretland 2.103,- Spánn 2.351,- ýmis lönd: Danmörk ** 2,910,- Frakkland ** 2.009,- BILALEIGA AKUREYRAR Kínverjar taka þátt í saklausu vatnsbyssustríði á árlegri hátíð i borginni Dongwan í Guangdong-héraði 1. mars. Vatn gæti orðið uppspretta skæðari átaka í heiminum á næstu áratugum. Hvar gæti komið til átaka í heiminum? ísrael, Jórdanía og Palestína Fimm prósent heimsbyggðarinnar lifir á einu prósenti af vatnsbirgðum hennar í Miðausturlöndum og það átti sinn þátt í sex daga stríðinu milli araba og Israelsmanna árið 1967. Haldi hlýnun jarðar áfram gæti vatnsskortur leitt til frekari átaka. íbúar í ísrael, heimastjórnar- svæðum Palestínumanna og Jórd- aníu reiða sig á Jórdaná en hún lýtur yfirráðum Israelsmanna og þeir hafa dregið úr vatnsframboði þegar illa hefur árað. Israelsmenn tak- marka mjög vatnsneyslu í Palestínu. Tyrkland og Sýrland Áætlanir Tyrkja um að byggja stíflu í Efrat-fljóti leiddi landið næstum til styrjaldar við Sýrlendinga árið 1998. Vatnsskortur vegna loftslags- breytinga eykur enn spennu á þessu eldfima svæði. Kína og Indland Brahmaputra-áin hefur leitt til spennu milli Indverja og Kínverja. Árið 2000 sökuðu Indverjar Klnverja um að deila ekki upplýsingum um ástand árinnar í kjölfar aurskriðna í Tíbet sem leiddu til flóða í norð- austurhluta Indlands og Banglades. Tillögur Kínverja um að gera breyt- ingar á árfarveginum valda ind- verskum stjórnvöldum enn fremur áhyggjum. Eþíópía og Egyptaland Aukin hætta er á að átök brjótist út í ríkjum við Nílarfljót í kjölfar mann- fjöígunar í Egyptalandi, Súdan og Eþíópíu. Eþíópíubúar vilja nota vatn árinnar í auknum mæli til eigin þarfa sem kynni að koma sér illa fyrir Egypta. Banglades og Indland Flóð í Ganges-fljótinu vegna bráðn- unar jökla í Himalajafjöllum hafa haft tjón í för með sér sem aftur hefur leitt til þess að ólöglegum innflytjendum til Indlands hefur fjölgað. Um 6.000 manns fara yfir landamærin til Indlands á hverjum degi og hafa Indverjar reist vegg með- fram landamærunum til að reyna að stemma stigu við fólksflóttanum.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.