blaðið - 04.03.2006, Síða 26
26 I TÍSKA
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaðið
BlaSid/Steinar Hugi
í*s».
1
Nicotineir s^JLYFJA
Hœttum aö reykja í samfélagi á
vefnum þar sem allir fá styrk hver frá
öörum og enginn þarf aö standa
einn í þaráttunni. Með sameiginlegu
átaki drepum við í fyrir fullt og allt
Skráöu þig í átakið á vidbuin.is
Þar er auk þess hœgt aö finna
allar upplýsingar um máliö.
Lánaði Rob
Schneider frakkann
Uppáhaldsflík Ásgeirs Kolbeins
Dagskrárgerðarmaðurinn Ásgeir
Kolbeinsson þykir smekklegur
þegar kemur að klæðaburði og
greinilegt er að hann klæðist ekki
hverju sem er. Þegar Blaðið náði
tali af honum átti hann í nokkrum
erfiðleikum með að velja uppá-
haldsflíkina, enda segir hann allt
slíkt breytilegt dag frá degi.
„Þar sem ég er nú ekki kona
finnst mér hálfeinkennilegt að
kalla eitthvað uppáhaldsflíkina
mína. Það er einhvern veginn ekki
alveg að passa. En ég get þó nefnt
einn Day frakka sem ég á og nota
mikið, en hann keypti ég í GK síð-
astliðið haust. Þetta er mjög klass-
ískur jakki - passar við allt og
við flest tilefni," segir Ásgeir, en
hann segir þó líklegt að eitthvað
annað verði vinsælla þegar fram
líða stundir. „Ég á eflaust eftir að
nota hann eitthvað áfram en það
er nú þannig með mig að ég er
mjög fljótur að endurnýja föt. Þess
vegna er ólíklegt að hann lifi mjög
lengi greyið."
Aðspurður segir hann jakkann
eiga sér smá sögu, en leikarinn
Rob Schneider fékk hann lánaðan
í heimsókn sinni hingað til lands.
„Við vorum á Rex og einhverra
hluta vegna þurfti Rob að stökkva
út af staðnum. Hann gerði sér lítið
fyrir og greip jakkann með enda
fannst mér nú bara hálfgerður
heiður að lána honum jakkann og
gerði því engar athugasemdir við
þetta áhlaup. Svo varð þetta hið
fyndnasta augnablik því að hann
er svo rosalega lítill og ég náttúr-
lega einir 6 metrar eða eitthvað.
Hann var hreinlega eins og eitt-
hvað lítið fyrirbæri, dragandi drag-
síða skykkju eftir gólfinu," segir
Ásgeir að lokum og hlær.
halldora@bladid.net
Hjörtu og hamingja með vorinu...
rómantíkin svífuryfir vötnum
Rómantíkin sveif yfir vötnum á
sýningu Luellu Bartley, Moschino,
Marc Jacobs og fleiri hönnuða á dög-
unum. Sýndir voru tískustraumar
vorsins og fór ekki framhjá neinum
að ást og rómantik réði þar ríkjum.
Hvort að komandi vor sé vor ástar-
innar skal ósagt látið en margir
hönnuðir vilja allavega meina að
turtildúfur verði einkennandi og
hjörtun allsráðandi.
Anna Sheffield, skartgripahönn-
uður hjá Marc Jacob's og einn að-
standenda sýningarinnar, sagði
hjartað vera óaðfinnanlegt mynstur
sem prýða megi hvers manns klæði
og því þótti henni ekki amalegt að
sjá hjörtun dansa á pöllunum. Ekki
skemmir fyrir að hjartað er tákn ást-
arinnar og því er aldrei að vita nema
ástin taki sér sérstaka bólfestu í
hjörtum manna í vor...