blaðið - 04.03.2006, Side 30
30 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaöiö
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Enginn kórdrengur en Ijúfur sem lamb
Gilzenegger í nýju Ijósi
Biblía fallega fólksins kom út á
dögunum en það er sjarmatröllið
Gilzenegger sem á veg og vanda
af þeirri bók. Þar kennir ýmissa
grasa en mest er lagt upp úr því
að kenna hinum almenna manni
að verða alvöru karlmaður með út-
litið á hreinu. Auk þess að leggja
línurnar fyrir hinn myndarlega
mann í bók sinni hefur Gilzeneg-
{;er dyttað að útliti hinna ýmsu
slendinga í þættinum Kallarnir,
en þar umbreytir hann fólki svo
um munar.
Útlitsdýrkandinn Gilzenegger
hefur þó annan mann að geyma
en þann sem hugsar bara um
konur, vöðva og brúnkumeðferðir.
Hann segist frekar venjulegur að
eðlisfari, rómantískur og algjört
ljúflingslamb...
„Gilzenegger er auðvitað ýktari
en Egill. Þetta er kannski ekki alveg
svart og hvitt en þessi karakter er
töluvert ýktari. Það sem gerir þetta
skemmtilegt er að fólk veit ekki hvar
það hefur mann, þetta er umdeilt
og þess vegna verður þetta vinsælt.
Sumir hata okkur og aðrir elska
okkur. Stundum þarf maður að sjok-
kera liðið og að sjálfsögðu er maður
oft bara með létt grín. Það bara
þýðir ekki að vera settlausi, saklausi
kórdrengurinn,11 segir Egill og bætir
við að karakterinn sé ansi oft látinn
lönd og leið.
„Ég fer bara í minn skóla og vinnu
eins og annað fólk án þess að velta
mér endalaust upp úr einhverjum
karakter eða ákveðnu útliti. Maður
er nokkuð settlegur fyrri part dags
og í raun ljúfur sem lamb en þetta
fer svo að tikka inn þegar líða tekur
á kvöld,“ segir hann, en Egill stundar
nám í íþróttafræði við íþróttaaka-
demíu Reykjanesbæjar.
En hvenœr leit þessi karakter dagsins
Ijós?
„Við náttúrulega héldum uppi
bloggsíðunni kallarnir.is, við vin-
irnir, þar sem við töluðum ansi opin-
skátt um konur, útlit og annað slíkt.
Einhvern tímann birti Fókus setn-
ingu frá okkur á forsíðunni, sem ég
vil helst ekki hafa eftir hér, og eftir
það varð bara einhver sprengja. I
kjölfarið fór Gilzenegger að ryðja
sér til rúms, maður var beðinn um
að skrifa pistla i DV og svo vera með
sjónvarpsþátt. Nú svo eru Kallarnir
vinsælli sem aldrei fyrr - þetta hefur
undið mjög mikið upp á sig.“
Leiðinlegur títuprjónn
á sínum yngri árum
Egill var að eigin sögn afar venjulegur
krakki á sínum yngri árum, laus við
alla vöðvadýrkun og hégóma. Hann