blaðið - 04.03.2006, Side 32
I
32 I FJÖLMENNING
LAUGARDAGUR 4. MARS 2006 blaöið
Samrœða ólikra menningar-
heima aldrei jafnbrýn og nú
Sjaldan hefur verið jafnbrýnt að stuðla að gagnkvæmum skilningi
og virðingu milli fólks sem tilheyrir ólíkum menningarheimum og
trúarbrögðum en nú á tímum alþjóðavæðingar og fjölmenningarlegs
samfélags. Fullorðinsfræðsla þjóðkirkjunnar heldur í næstu viku
námskeið undir yfirskriftinni „Hin trúuðu og trúarbrögðin" þar sem
fjallað er um samskipti og samræður trúarbragða og menningarheima.
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir,
guðfræðingur og verkefnisstjóri samkirkjumála á biskupsstofu, og sr.
Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi.
Báðar hafa þær lengi haft áhuga á þessum málum og tekið þátt í vinnu
á vegum þjóðkirkjunnar sem miðar að því að skapa samráðsvettvang
ólíkra trúarbragða.
Tilhneiging til að líta á
múslíma sem hryðjuverkamenn
Steinunn Arnþrúður segir að deil-
urnar vegna birtinga Jótlandspósts-
ins á skopmyndum af Múhameð
spámanni hafi verið kveikja að
námskeiðinu. Á sama tíma og deil-
urnar blossuðu upp stóðu þær fyrir
svipuðu námskeiði fyrir starfsfólk í
barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar.
Myndir, ímyndir og fjölmiðlar séu
eitt af umfjöllunarefnum námskeiðs-
ins að sögn Steinunnar. Þar verður
fjallað um hvaða ímynd fréttir vekji í
huga fólks og á hvaða forsendum það
lesi þær.
„Þegar við á íslandi heyrðum að
kristnir Irar hafi sprengt sprengju
í London eins og var ekki óalgengt
þegar ég var yngri þá hugsuðum við
til irska lýðveldishersins. Við hugs-
uðum ekki að allir Irar eða að allir
kaþólikkar væru hryðjuverkamenn,"
segir Steinunn og bætir við að það sé
vegnaþess að við höfum ákveðna sam-
kennd með þeim. „Margir þekkja íra
og við vitum ýmislegt um þá annað
en þessar sprengingar þannig að við
horfum á fréttirnar í gegnum þann
spegil,“ segir Steinunn.
„Þegar við aftur á móti heyrum um
múslíma höfum við ekki endilega
þennan sama spegil til að skoða frétt-
irnar í því að við þekkjum ekki hugs-
anlega ekki marga múslíma. Við
höfum ekki reynslu af þeim fjölda
friðsemdarfólks í þeirra röðum sem
við hefðum annars ef við þekktum
þá betur. Við höfum tilhneigingu
til að líta á þá alla sem hryðjuverka-
Á námskeiðinu fjalla guðfræðingarnir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir meðal annars um hvað ein-
kennir sýn og umfjöllun fjölmiðla á trúarbrögð og minnihlutahópa.
menn,“ segir Steinunn.
I hvaða Ijósi sjá múslímar
skopmyndirnar?
Steinunn bendir einnig á að músl-
ímar líti margir hverjir á teikni-
myndamálið ekki sem einangrað
tilfelli heldur í víðara samhengi. „1
hvaða ljósi horfa þeir á þessar
teiknimyndir? Þeir horfa á þær í
ljósi sögunnar allt frá krossferðum
til nýlendustefnunnar. Þeir eru að
horfa á þetta í ljósi stríðsins í írak
og stríðsins í Afganistan og ástands-
ins á Vesturbakkanum þar sem þeir
sjá greinilega Vesturlönd leika stórt
hlutverk. Þeir horfa á þetta í ljósi nið-
urlægingarinnar i Abu Ghraib fang-
elsinu. Þeir horfa á þetta í gegnum
þann spegil og þá sjá þeir ábyggilega
aðeins það slærna," segir Steinunn.
Deilurnar vegna birtinga Jótlandspósts-
ins á skopmyndum af Múhameð spá-
manni voru helsta kveikjan að námskeiði
á vegum fullorðinsfræðslu þjóðkirkjunn-
ar um samskipti og samræður trúar-
bragða og menningarheima.
Steinunn telur að samskipti fólks
sem tilheyrir ólíkum menningar-
eða trúarhópum hafi gengið vel hér
á landi og þar hafi fjölmiðlar gegnt
mikilvægu hlutverki. „Þeir hafa lagt
sig fram við að sýna menningu inn-
flytjenda hér á landi áhuga og viður-
kenningu. Ég held að við höfum allar
forsendur til að geta vandað okkur
og skapað hérna samfélag þar sem
fólk getur búið saman þó að uppruni
þeirra sé á einhverjum tíma ólíkur,"
segir Steinunn sem lýkur
jafnframt lofsorði á það fræðslu-
og kynningarstarf sem Alþjóðahúsið,
Rauði krossinn og fleiri aðilar hafa
staðið að á undanförnum árum.
Þegar Steinunn er spurð hvort
að neikvæðar myndir af ofbeldis-
fullum mótmælum og fánabrennum
vegna skopmyndamálsins kunni að
styrkja staðalmynd fólks af músl-
ímum enn í sessi svarar hún að þær
geri það áreiðanlega. Hún bendir þó
á að fréttir séu í eðli sínu iðulega nei-
kvæðar og það eigi ekki aðeins við
um fréttir af múslímum. „Þær eiga
að vera stuttar, skýrar og skilmerki-
legar. Þegar fólk horfir á fréttir hefur
það tilhneigingu til að taka eftir því
sem styrkir þeirra eigin hugmyndir,"
segir hún.
Samskipti kristinna og fólks
af öðrum trúarbrögðum
Auk þess að fjalla um þær ímyndir
sem fréttir vekja í huga fólks hyggj-
ast Steinunn og Kristín fjalla um
sjálfsmynd kristins fólks og á hvaða
forsendum það mætir fólki af öðrum
trúarbrögðum.
Steinunn og Kristín telja að eftir
því sem íslendingum með ólíkan
bakgrunn fjölgar aðhyllist fleiri
önnur trúarbrögð en kristni. Af
þeim sökum sé mikilvægt fyrir þá
sem starfa í kirkjunni að hafa vitn-
eskju um önnur trúarbrögð en sín
eigin. Ekki síður er mikilvægt að
þeir geri sér grein fyrir því hvað
einkennir kristna trú og hvað er
líkt og ólíkt með henni og öðrum
trúarbrögðum. Steinunn segir að
ekki verði þó farið í langar lýsingar
á öðrum trúarbrögðum á námskeið-
inu. „Fólk er oft að velta fyrir sér
hvort þetta sé ekki allt sami hlutur-
inn. Nei, það er það náttúrlega ekki.
Þetta eru allt saman trúarbrögð en
þetta er ekki sama trúin og maður
gerir múslímum engan greiða með
því að segja að trú þeirra sé alveg sú
sama og okkar,“ segir hún.
Steinunn er nýkomin af heims-
þingi Alkirkjuráðsins sem haldið var
í Porto Alegre i Brasilíu. Hún segir
að þar hafi samskipti trúarbragða
meðal annars verið til umræðu i
ljósi skopmyndamálsins. „Þar fann
maður mjög sterkt fyrir því að fólk
sem veit hvað trúin skiptir það miklu
máli veit líka að trú skiptir aðra máli
og það er mikilvægt að sýna þeim
líka virðingu og þeirra trú,“ segir
hún.
Námskeiðið fer fram í Grensás-
kirkju og hefst kl. 18.00. Kennt
verður í tvö skipti, tvo tíma í senn.
Skráning fer fram á vef Ieikmanna-
skólans eða í síma 5351500.
Nánari upplýsingar má nálgast
á vefslóðinni: www.kirkjan.
is/leikmannaskoli
RR ehf 1 samstarfi við Solo kynna:
TUBORG
Lettbjor
ps.'ktttttrk
lcelandExpress®
Netsala
WWW.ICELANDEXPRESS.IS
AAiðasala hefst 5. mdpá eftirtöldum sölustöðum:
Mál og meffiíng - Laugavegi 18,
Penninn Glerártoííjl&kureyri, Hljóðhúsið-Selfossi
Hljómval - Keflœfík, Tónspil - Neskaupstað
þriðjudaginn 7.mars á:
ww.netvisir.is
BlaliS/Frikki