blaðið - 04.03.2006, Page 51
blaðið LAUGARDAGUR 4. MARS 2006
KVXKMYNDIR I 51
KaupauKj
vierðmæti
Pringies
ÍPÝFÁ
Tölvuleikjaumfjöllun
Drítið vantar sáríega
Torino Winter Olympics
Leikjavél: PlayStation 2
Spilarar: Allt að fjórir
Gott: Fín keppni í góðra vina hópi
Verst: Verður leiðinlegur á tveimur
tímum
Þegar ég reif plastið utan af þessum
leik og skellti honum í PlayStation
tölvuna var ég rosalega spenntur.
Mér leið eins og barni á aðfangadag
sem beið eftir að pakkarnir væru
opnaðir. t minningunni ganga
ólympíutölvuleikir nefnilega út á
drita eins og maður eigi lífið að
leysa á A og B takkana til skiptis til
að koma íþróttaköppunum áfram.
Svona var þetta í gamla Track & Fi-
eld leiknum á Nintendo, svona er
þetta í nýja Track & Field sem kom út
fyrir rúmu ári fyrir PS2 og meira að
segja var þetta svona í Athens 2004
leiknum. Þetta voru lengi vel einu
leikirnir sem tóku eitthvað á líkam-
lega (ég man að 1.500 metra hlaupið í
Aþenu var algjört helvíti svo maður
sat eftir með sinaskeiðabólgu).
í Torino Winter Olympics 2006
virðist markhópurinn vera spikfeit
og leiðinleg tölvuleikjabörn sem
þola ekki mótlæti og vilja ekki þurfa
að reyna á sig að neinu leyti. Hann er
úr hófi auðveldur, jafnvel í „pro“ still-
ingunni. Hann snýst um einungis
fimm íþróttagreinar og nokkrar
útfærslur á þeim sem gerir ólymp-
íuleikunum engan veginn nógu góð
skil. Spilun er eins einföld - og þar
með leiðinleg - og hægt er. Næstum
því eins og viljandi hafi verið reynt
að gera þetta illa. Sumar iþróttirnar
bjóða nefnilega upp á mjög skemmti-
legar lausnir í stýringu sem eru ekki
nýttar á nokkurn hátt nema e.t.v.
skautahlaupinu þar sem maður þarf
að ná réttum takti til að komast vel
áfram.
Uppþornuð í fjósi
Þótt það geti verið ágætisskemmtun
að spila Torino Winter Olympics
2006 í góðra vina hópi hugsa ég að
aðalástæða þess sé einmitt góður
vinahópur. Leikurinn sjálfur nær
ekki að halda athygli manns, sér-
staklega ekki þar sem um litla fjöl-
breytni er að ræða.
Leikurinn segist bjóða upp á
fimmtán keppnisgreinar. Þar finnst
mér þó verið að teygja lopann úr
hófi fram. Greinarnar eru sem sagt
fjórar alpagreinar (svig, stórsvig,
risasvig og brun), skíðaganga og hin
nátengda skíðaskotfimi (skíðaganga
með byssu - mjög sniðugt), bobsleði
(tveggja og fjögurra manna), skauta-
hlaup, skíðastökk (af tveimur mis-
Hvaðerað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburði
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
FRJÁLST
ÓHAÐ
blaöiö=
háum pöllum)
og svo samsetta
grein skíða-
göngu og skíða-
stökks. Þeir sem
lesa listann sjá
að þarna erverið
að blóðmjólka
kúnna meðan
heilt fjós bíður
átekta. Þarna vantar snjóbretti, list-
dans á skautum, stökkfimina og
hokkí svo fátt eitt sé nefnt. Hvar er
líka krullan? aðalkeppnisgreinin á
vetrarólympiuleikunum.
Það virðist sem Italarnir hafi
áttað sig tveimur vikum fyrir mót
að þeir ættu eftir að reyna að græða
á tölvuleik tengdum vetrarólymp-
íuleikunum. Þá hafi þeir ákveðið
að henda einhverju rusli saman og
setia í fallegar umbúðir.
Ég er ekki að segja að leiknum
hefði verið bjargað með dritmögu-
leikanum. En hann hefði skánað til
mikilla muna.
agnar.burgess@bladid.net
tsS-f • Íullk Jtiffiti&tl
i o\ “ aitfft JLvj
Pringies æO yi^ÉÍBI
; ,