blaðið - 11.03.2006, Page 6
6 I mNLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 blaðið
Réttað um bóta-
kröfu Bubba
Mbl.is | Aðalmeðferð í máli
tónlistarmannsins Bubba Mort-
hens gegn 365 prentmiðlum
og Garðari Erni Úlfarssyni,
fyrrverandi ritstjóra Hér og
nú, hófst í gær í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Málið varðar um-
fjöllun og myndbirtingu í Hér og
nú í júní í fyrrasumar. Birt var
mynd af Bubba þar sem hann
sat inni í bíl og reykti sígarettu
en fyrirsögn á forsíðunni var
„Bubbi fallinn.” Krefst Bubbi
20 milljóna króna miskabóta.
Bæði Bubbi og Garðar Örn
mættu fyrir dóminn og svöruðu
spurningum. Bubbi Morthens
sagði aðspurður að umrædd
umfjöllun og myndbirting hefði
valdið sér ýmiss konar óþæg-
indum. Hann hefði fundið til
vanlíðunar og reiði og væri mjög
á varðbergi gagnvart ljósmynd-
urum effir atburðinn. Trúverð-
ugleiki sinn hefð beðið hnekki
og hann hefði þurft að útskýra
fyrir viðsemjendum sínum að
hann væri ekki farinn að neyta
vímuefna að nýju. Þeir hefðu
ekki tekið forsíðufréttinni öðru-
vísi en svo að hann væri fallinn
í þeim skilningi að hann væri
farinn að nota eiturlyf að nýju.
Garðar Örn sagði fyrir dóm-
inum að ákvörðunin um um-
fjöllunina og myndbirtinguna
hefði verið tekin sameiginlega
af ritstjórn Hér og nú. Ritstjórn
blaðsins hefði ekki dottið í
hug að fólk gæti misskilið
fyrirsögnina„Bubbi falliniT og
álitið að átt væri við neyslu
eiturlyfja. Mynd hefði verið birt
af Bubba að reykja sígarettu.
Berjast gegn einkavæðingu vatnsins
Reynslan af einkavœðingu vatnsveitna er alls staðar slœm, segir Ögmundur Jónasson.
Hann telur ekki tilviljun að olíufélög séu tekin að sýna þessum markaði áhuga.
Breytingar á frumvarpi til vatnalaga
var heitasta umræðuefni alþingis
í gær. Þung orð féllu í umræðunni
þar sem meðal annars stjórnarliðar
sökuðu stjórnarandstöðuna um
ofbeldi. Ennfremur að stjórnarand-
staðan beitti málþófi til að reyna að
koma í veg fyrir að frumvarpið næði
brautargengi.
En um hvað er verið að deila - um
hvað fjalla ný vatnalög? Og hvað ótt-
ast stjórnarandstæðingar svo mjög?
Ögmundur Jónasson, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar Græns fram-
boðs segir að í grunninn sé um að
ræða endurskoðun á gömlum laga-
bálki frá 1923 um vatn. Málið sé hins-
vegar mun flóknara því ekki sé hægt
að horfa á þessa breytingu eina og
sér. Breytingar á öðrum lögum þar
sem fjallað sé um vatnsréttindi und-
anfarin ár séu öll f þá átt að styrkja
eignamyndun á vatni. Dæmi um
slíkt séu breytingar á lögum um
rannsóknir á auðlindum í jörðu og
breytingar á lögum um vatnsveitur.
í síðarnefndu lögunum hafi átt að
gefa leyfi fyrir því að vatnsveitur
væru hlutafélagavæddar, en þar hafi
stjórnarandstöðu tekist að ná inn
ákvæði um að vatnsveiturnar ættu
að vera í almannaeign að meirihluta
til.
Skref í ranga átt
„Við óttumst að nú sé enn verið að
búa í haginn fyrir einkavæðingu á
vatni - það er skýrt í mínum huga.
I lögunum er talað um að hægt sé
að framselja vatnsréttindi án þess
að fasteign sé seld og við óttumst
að verið sé að sauma allt lagaum-
hverfi inn f það
mynstur að unnt
verði að einka-
væða vatnið,“
segir Ögmundur.
Einkavæðing
á vatni þýðir m.a.
að vatnsveitur
á borð við þær
semviðþekkjum
Ögmundur Jónasson hér á landi verði
einkavæddar.
Þrátt fyrir að eignarréttarákvæðin
séu ekki skýrt tiltekin í nýju frum-
varpi óttast stjórnarandstaðan að
þarna sé fyrsta skrefið stigið í ranga
átt.
„Fyrst gerist það að menn festa
eignarréttarákvæði í lög og styrkja
þau. Síðan á eftir að reyna á hvernig
farið verður með þessi réttindi,“
segir Ögmundur.
Slæm reynsla erlendis
Vatnsveitur hafa verið einkavæddar
víða um heim og segir Ögmundur
að það hafi allsstaðar reynst illa.
„Mynstrið er allsstaðar það sama.
Menn segja að ekki eigi að einka-
væða en svo gerist það. Reynslan er
allsstaðar slæm. Framleiðni batnar
ekki þó hún standi sumsstaðar í
stað. Einkafyrirtæki hafa hinsvegar
tekið geyslilegan arð út úr þessum
fyrirtækjum með því að hækka verð
og rýra þjónustu,“ segir Ögmundur.
Mjög erfitt er að skapa samkeppni
á vatnsmarkaði að mati þingmanns-
ins. Hann bendir meðal annars á að
aðeins ein vatnsleiðsla sé inn í hvert
hús og vfða er bara ein leiðsla inn í
heilu borgirnar. Þannig sé nánast
Arðurinn af vatninu hefur víða verið mikill.
ómögulegt að búa til samkeppni um
viðskiptavini.
„Víða erlendis hafa stóru fyrir-
tækin í þessum geira einfaldlega
skipt markaðinum á milli sín. Þau
hafa haft samráð, skipt á milli sín
borgum og búið til samræmdar verð-
BlaÖið/Steinar Hugi
skrár. Það kemur því vart á óvart að
olíufélögin séu farin að sýna þessum
markaði hér á landi áhuga og hvetja
til fjárfestinga, enda kunna þau á
samráðið," segir Ögmundur.
BOÐS
FLÍSSETT
PEYSA &. BUXUR
tilboð: 3.995 kr.
HKWrWlANt)
3
FLÍSWINDSTOPPER
með rermilás undir ermum
S-XL
Verð frá 1.995 kr.
DÖMUFLÍSPEYSA
Verð frá1.995 kr.
DÖMUWINDSTOPPER
Verð frá 3.995 kr.
SKATABUÐIINI
FERÐAVERSLUN
Faxafeni 8 • 108 Re-
www.skata
ykjavík • sími
tabudin.com
534 2727
Dýrar „klukkubúðir"
Verð í svokölluðum klukkubúðum
er að jafnaði 37% hærra en í lágvöru-
verðsverslunum samkvæmt verð-
könnun sem verðlagseftirlit Alþýðu-
sambands Islands gerði í byrjun
vikunnar. Keypt var vörukarfa með
algengum vörum til heimilisins og
var verð í matvöruverslunum víða
um land kannað. I körfunni var m.a.
að finna grænmeti og ávexti, mjólk-
urvörur, brauð, morgunkorn, kaffi,
pakkaðar kjötvörur og álegg, drykkj-
arvörur, hreinlætisvörur ofl.
Oft mikillmunur
Var verslunum í könnuninni skipt
f þrjá flokka, lágvöruverðsverslanir,
stórmarkaði og klukkubúðir.
Ef einstaka vöruflokkar eru skoð-
aðir kemur í ljós að mestur verð-
munur var á grænmeti og ávöxtum
sem voru að meðaltali um 40%
dýrari í stórmörkuðum en í lág-
vöruverðsbúðum og 63% dýrari í
klukkubúðum.
Mjólkurvörur voru hinsvegar
um 34% dýrari í stórmörkuðum
en 1 lágvöruverðsbúðum og
40% dýrari í klukkubúðum en í
lágvörurverðsbúðum.
„ Athyglis vert er hversu lítill munur
er á stórmörkuðum og klukku-
búðum,“ segir verðlagseftirlit ASl
um verðmun í þessum vöruflokki.
Ef hreinsiefni eru skoðuð kemur í
ljós að þau eru að meðaltali 45% dýr-
ari í klukkubúðum en lágvöruversl-
unum og um 24% dýrari í stórmörk-
uðum en lágvöruverðsbúðum.
Nánari upplýsingar um könnun-
ina er hægt að finna á heimasíðu Al-
þýðusambands Islands, www.asi.is.
Mótmæla töfum
Öryrkjabandalag Islands (ÖBÍ) er
afar ósátt við fyrirsjáanlegar tafir í
svörum Tryggingastofnunar ríkis-
ins við fyrirspurn félagsins. Spurt
var um endurreikning örorkubóta
fyrir árið 2004, en bætur fjölmargra
félagsmanna ÖBÍ voru skertar eftir
útreikningana. Er stjórn ÖBÍ mjög
ósátt við svör Tryggingastofnunar
en í bréfi frá henni segir meðal
annars.
„Því miður er fyrirsjáanlegt að
frekari dráttur verði á afgreiðslunni,
einkum vegna manneklu og nauð-
synlegrar forgangsröðunar verkefna.
Ekki er ljóst hvenær mál þitt verður
tekið fyrir en vonandi verður hægt
að ljúka afgreiðslu þess innan 6-8
mánaða og mun þér verða tilkynnt
um niðurstöðu þessa um leið og hún
liggur fyrir. “
lályktun ÖBÍ segir á móti:
,ÖBÍ telur þetta allsendis óviðun-
andi og ganga í berhögg við anda
stjórnsýslulaga. Vandræðagangur-
inn vegna endurreikninga bótanna
leiðir í ljós að óframkvæmanlegt er
fyrir TR að vinna samkvæmt núgild-
andi lögum og reglum um almanna-
tryggingar. Framkvæmdastjórn ÖBÍ
skorar á stjórnvöld að hefja nú þegar
samstarf við heildarhagsmunasam-
tök um endurskoðun laganna með
það að markmiði að einfalda lögin
og gera þau réttlátari".