blaðið - 11.03.2006, Side 20
20 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR ll.MARS 2Ö06 blaóið
Pólitíkin skiptir ekki öllu máli
Geir H. Haarde utanríkisráð-
herra er þessa dagana í opinberri
heimsókn í Noregi. Faðir Geirs,
Tomas Haarde var norskur, frá
Sandeid sem er þorp á vestur-
strönd Noregs en Geir hyggst
fara þangað í heimsókn á ferða-
lagi sínu. „Ég hlakka heilmikið
til þess. Ég fór aldrei til Noregs
með föður mínum, eins og
bræður mínir tveir gerðu. Eitt af
því sem ég sakna er að hafa ekki
átt kost á því,“ sagði Geir þegar
blaðamaður hitti hann nokkrum
dögum fyrir Noregsheimsóknina.
Faðir Geirs lést árið 1962, en þá
var Geir ellefu ára. Bernhard,
bróðir Geirs, hafði látist tveimur
mánuðum fyrr.
„Þeir voru báðir með krabbamein
og létust á sjúkrahúsi í Osló,“ segir
Geir. „Ég hafði gert mér grein fyrir
því að bróðir minn væri dauðvona
en andlát föður míns varð óvænt-
ara. Ég vissi ekki hvert stefndi og
var mjög sleginn þegar hann dó.“
Heldurðu að þessi mikli missir á
unga aldri hafi markað þig?
.Áreiðanlega, en ég geri mér ekki ná-
kvæma grein fyrir því. Mér hefur
verið hugsað til feðganna á nánast
hverjum degi síðan og það hefur oft
veitt mér styrk og hvatningu. Allir
upplifa sorgina einhvern tíma á æv-
inni. Ég fékk bara nokkuð stóran
skammt fyrr en margir aðrir.“
Fyrir skömmu misstir þú móður
þína. Voruð þið náin?
„Við vorum mjög náin alla tíð. Það
tók vitanlega á hana að missa eig-
inmann og son með svo skömmu
millibili en hún hafði séð hvert
stefndi og var undir þann missi
búin. Hún var 91 árs gömul þegar
hún lést, var heilsuhraust lengst af
og naut þess að vera til. Hún var fé-
lagslynd manneskja og gaf mikið
af sér til afkomenda sinna og hafði
velferð þeirra að leiðarljósi. Ég get
ekki annað en þakkað fyrir svo
langa samfylgd en missi fylgir samt
alltaf söknuður. Ég held að hún hafi
verið sátt við að kveðja og séð fyrir
sér annars konar samvistir."
Hvaða viðhorf hefurðu til
dauðans. Ertu trúaður eða
jarðbundinn?
„Ég tel mig vera jarðbundinn
mann en þykist ekki kunna skil á
öllum leyndardómum tilverunnar.
Það er fólk í kringum mig sem
trúir á líf eftir dauðann. Eg hef
alltaf verið efasemdarmaður 1 þeim
efnum en tel mig ekki geta útilokað
neitt.“
Pólitískur frá blautu barnsbeini
Ef þú hefðir ekki farið i pólitík
hvað hefðirðu þá gert?
„Ætli ég hefði ekki unnið í mínu
fagi, hagfræðinni. Annar möguleiki
hefði verið að fara í blaðamennsku.
Ég var í blaðamennsku í sex sumur
✓-------------------------------
N V
V.
Blaöiö/Frikki
99..................
Maður þarfað venjasig
afþví að taka allt að
sér og hætta að segja já
við öllu sem maður er
beðinn um. Það ersvo
margt annað en pólitík
sem skiptir máli ílífinu"
á Morgunblaðinu og var þar síðan
viðloðandi í fimm ár og skrifaði
erlendar fréttir einu sinni í viku. Á
Morgunblaðinu eignaðist ég vini
sem ég á enn. Matthías Johannes-
sen er mér ógleymanlegur. Persóna
hans hafði mikil áhrif á blaðið og
þá sem þar unnu. Matthías gerði
gríðarmiklar kröfur, ekki bara til
sjálfs sin heldur einnig til annarra.
Ég hlakkaði alltaf til að mæta í vinn-
una og mér þykir mjög vænt um
þennan tíma í ævi minni.“
Varðstu snemma pólitískur?
„Strax sem barn varð ég áhuga-
samur um pólitík. Það varð til að
efla mjög pólitískan áhuga minn að
strax og ég varð læs las ég öll flokks-
blöðin því þau komu inn á heimilið.
Þannig fékk ég ólík sjónarhorn á at-
burði og gat smám saman lagt eigið
mat á hlutina. í þingkosningunum
1963, var ég tólf ára og vakti eins
lengi og ég gat til að fylgjast með
kosningaúrslitum. f kosningum til
borgarstjórnar 1966 var ég orðinn
það gamall að ég gat hjálpað aðeins
til og gerðist sjálfboðaliði í bílaþjón-
ustu Sjálfstæðisflokksins. Þegar
fólk hringdi og bað um bíl til að
komast á kjörstað sat ég frammí og
liðsinnti því. Kannski má segja að
þá hafi pólitísk afskipti mín hafist.
Þá var ég fimmtán ára.
Þegar ég kom í menntaskólann
kynntist ég áhugamönnum um pól-
itík eins og Kjartani Gunnarssyni
en við urðum góðir vinir strax í
þriðja bekk og höfum átt samleið
æ síðan. Davið kynnist ég tveimur
árum seinna. Hann var þá þegar
orðinn áberandi og umdeildur,
eignaðist mikla og góða stuðnings-
menn, þar á meðal mig, og svo
harða andstæðinga."
Hvernig líkar þér að vera borinn
saman við Davíð, eins og margir
gera óhjákvæmilega þar sem þú
tókst við formennsku afhonum?
„Menn eru bornir saman á alls
konar forsendum og ég kippi mér
ekkert upp við það. Eg verð bara að
vera ég sjálfur og svo kemur í ljós
hvernig mér gengur. ”
Ertu að breikka
Sjálfstæðisflokkinn?
„Ég er ekki alveg dómbær á það,
það getur vel verið og ef svo er þá
er það fínt. Ég vil að flokkurinn
sé stór og hafi mikið fylgi en það
verður að vera á grundvelli þeirrar
stefnu sem flokkkurinn fylgir. Ef
ég hef persónufylgi sem hreikkar
flokkinn þá fagna ég þvi.“
Samfylkingin er ekki að ná fylgi
frá ykkur. Verður hún ekki að
gera það ef hún ætlar að verða
stór jafnaðarmannaflokkur?
„Ég vil sem minnst um hana tala.
Það verður hver að liggja eins og
hann hefur um sig búið.“
Óttast ekki harða lendingu
Sem stjórnmálamaður og ut-
anríkisráðherra hefur þú hitt
marga erlenda stjórnmálmenn.
Hverjir eru eftirminnilegustu
persónuleikarnir?.
„Condoleezza Rice er mögnuð per-
sóna. Lágvaxin kona sem maður
veit að hefur alist upp við erfiðar
aðstæður en hafist upp af sjálfri sér.
Hún er mjög áhrifamikil í nálægð.
Sumir stjórnmálamenn þola ekki
nálægðina. Hún er ekki þannig.
Hariri, forsætisráðhera Líbanon,
sem var myrtur fyrir ári, hafði líka
magnaða nærveru. Það var einnig
Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræðingur með réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
í bláu húsunum við Faxafen Sími: 568 1800