blaðið - 11.03.2006, Page 24
24 I SAGA
LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 blaðiö
Sagan afeinum stœrsta listaverkaþjófnaði sögunnar:
Indiana Jones okkar tíma
hefur uppi á þjófum í Baadad
I bókinni Thieves of Baghdad eftir
Matthew Bogdanos sem kom út á
síðasta ári er sagt frá einum staersta
listaverkaþjófnaði sögunnar, þegar
þúsundir ómetanlegra listumuna
og forngripa var stolið úr söfnum
í Baghdad í Irak í kjölfar innrásar
bandamanna árið 2003.
Fáir þekkja jafnvel til málsins og
Matthvew Bogdanos en hann stjórn-
aði sjálfur rannsókninni á hvarfi
gripanna og vann að því að endur-
heimta hluta þýfisins.
Talið er að nærri 13.900 gripir
hafi horfið úr Þjóðminjasafn-
inu en upphaflega óttuðust
menn að tala stolinna muna
væri mun hærri eða um 170.000.
Bogdanos segist reyndar í bókinni
vera undrandi á því að ekki hafi
fleiri gripir horfið þar sem um hálf
milljón muna hafi verið í safninu og
þjófar hafi haft einn og hálfan sólar-
hring til að athafna sig.
Með aðstoð embættismanna í
írak, Bandaríkjunum og Ítalíu og
tolla- og lögregluyfirvöldum um
allan heim hefur tekist að endur-
heimta að minnsta kosti 5400 muni,
þar af um 700 í Bandaríkjunum og
Bretlandi.
Indiana Jones okkar tíma
Matthew Bogdanos, höfundur bók-
arinnar, er stundum sagður vera
eins konar Indiana Jones okkar
tíma. Hann vann sem lögmaður í
New York en missti heimili sitt í
árásunum á tvíburaturnana 11. sept-
ember 2001. Hann gekk til liðs við
bandaríska herinn í kjölfarið og var
fáeinum vikum síðar orðinn ofursti
í Afganistan. Árið 2003 tók hann
þátt í innrás bandamanna í írak.
Bogdanos var í borginni Basra í
suðurhluta landsins 18. apríl árið
2003 þegar honum barst sú fregn
til eyrna að þjófar hefðu látið
greipar sópa um Þjóðminjasafnið í
Baghdad. Þar sem hann var áhuga-
maður um fornfræði bað hann um
leyfi til að fá að fara til Baghdad
með hópi manna og kanna málið.
Sérsveitir Saddam Husseins, fyrr-
verandi Iraksforseta, lögðu undir
sig Þjóðminjasafnið þegar innrásin
var gerð. Eftir að þær hörfuðu
þaðan 10. apríl réðust þjófar til inn-
göngu. Tveimur dögum síðar komu
nokkrir yfirmanna safnsins til
baka og stökktu síðustu þjófunum á
flótta en talið er að þeir hafi verið á
milli þrjú og fjögur hundruð þegar
mest lét. Mununum var því stolið á
einum og hálfum sólarhring.
Hersveitir stóðu ekki
aðgerðarlausar hjá
Bogdanos er mjög ósáttur við þá út-
breiddu skoðun að hersveitir banda-
lagsherjanna hafi staðið aðgerðar-
lausar hjá á meðan þjófar hefðu látið
greipar sópa um safnið. Það segir
hann að sé beinlínis rangt enda
hafi ekki verið mögulegt að tryggja
öryggi safnsins af hættu við blóðug
átök við sérsveitirnar.
Aftur á móti álasar Bogdanos
bandarískum hersveitum fyrir að
hafa brugðist seint við hjálparbeiðni
safnstjórnarinnar eftir að íraski her-
inn hafi verið á bak og burt. Starfs-
menn þurftu sjálfir að halda aftur
af þjófunum og segir Bogdanos það
vera óafsakanlegt.
Allt var brotið og bramlað í Þjóð-
minjasafninu þegar Bogdanos og
menn hans komu þangað og búið
að tæma flesta sýningarkassana.
Bogdanos komst þó fljótt að því sér
til mikils léttis að starfsmenn höfðu
fjarlægt flesta munina sem í þeim
bóndabýli í september árið 2003
kom Warka-gríman í leitirnar undir
moldarhaug. Warka-gríman er kalk-
steinsgríma frá því um 3100 fyrir
Krist sem talin er vera elsta eftir-
mynd mannsandlits sem varðveist
hefur. Bassetki-styttan, annar ómet-
anlegur dýrgripur kom í leitirnar í
annarri húsleit í nóvember.
Warka-gríman er kalksteinsgríma frá því
um 3100 fyrir Krist og er talin vera elsta
eftirmynd mannsandlits sem varðveist
hefur. Hún er meðal þeirra muna sem
stoliö var úr Þjóðminjasafni Iraks.
all, var skilað eftir að samningavið-
ræður höfðu staðið yfir í tvær vikur.
Nær öllum mununum sem stolið var
úr geymslunum ofanjarðar komu í
leitirnar. Enn er þó að minnsta kosti
8500 muna saknað.
Um 2000 munir komu í leitirnar
eftir áhlaup og húsleitir lögreglu. I
stærsta áhlaupinu sem gert var á
leynilegar geymslur í kjallara safns-
ins og þaðan rænt yfir tíu þúsund
munum af ýmsu tagi. I bókinni segir
Bogdanos að ómögulegt hefði verið
fyrir nokkurn að komast þangað
inn án þess að þekkja safnið eins og
innanbúðarmaður.
Bogdanos telur að skipta megi þjóf-
unum í þrjá hópa. I fyrsta hópinn
setur hann þá sem létu einfaldlega
greipar sópa handahófskennt um
hillur safnsins, í öðrum hópnum
voru fagmenn sem vissu hverju þeir
voru að leita að og fylgdu hugsanlega
fyrirskipunum erlendra listaverka-
sala. I þriðja hópnum voru innanbúð-
armenn, þáverandi eða fyrrverandi
starfsmenn safnsins sem vissu hvar
tilteknir dýrgripir voru geymdir og
nýttu sér þá ringulreið sem stríðið
skapaði til að ræna þeim.
Þjófum heitið sakaruppgjöf
Bogdanos og samstarfsmenn hans
buðu mönnum sakaruppgjöf ef þeir
skiluðu þýfi úr safninu. Þeir fóru
um borgina og ræddu við menn sem
þeir töldu að kynnu að hafa einhverja
vitneskju um málið. Viðbrögðin létu
ekki á sér standa og fjölda muna var
skilað í réttar hendur.
Einn af dýrmætustu gripum safns-
ins, hinum heilaga Warka-vasa sem
talinn er vera rúmlega 5000 ára gam-
Dýrgripir í höndum einkasafnara
Tollayfirvöld erlendis fundu enn
fleiri stolna muni á næstu mánuðum.
Árið 2003 voru til dæmis 669 munir
gerðir upptækir af tollayfirvöldum í
Bandaríkjunum en mununum hafði
verið komið fyrir í fjórum hraðpósts-
sendingum. Bogdanos óttast þó að
dýrmætustu gripirnir séu komnir
í hendur einkasafnara í Bandaríkj-
unum og Evrópu.
Bogdanos lætur ágóða af sölu
bókar sinnar renna til Þjóðminja-
safnsins 1 Irak og sjálfur hefur hann
hleypt af stokkunum lögmanna-
skrifstofu í New York sem sérhæfir
sig í málum sem þessum. Honum
hefur ennfremur borist tilboð frá
kvikmyndagerðarmönnum í Holly-
wood sem hafa áhuga á að koma
sögu hans á hvíta tjaldið. Bogdanos
leggur þó áherslu á að ef kvikmynd
verði gerð yrði hún að vinna að fram-
gangi meginmarkmiðs síns sem sé
að endurheimta týnda dýrgripi. „Ef
hún verður aðeins hasarmynd að
hætti Indiana Jones mun hún ekki
stuðla að framgangi málsins. En ef
hún verður gerð af alvöru og viti,
jafnframt því að vera skemmtileg,
þá er ég til,“ sagði hann í viðtali við
breska dagblaðið The Guardian. „Ég
elska kvikmyndir, Ég elskaði Indi-
ana Jones.“
greipar sópa í tæpa tvo sólarhringa. Búiö var aö brjóta og bramla innanstokksmuni og
fjöldi ómetanlegra muna voru horfnir.
Matthew Bogdanos fyrrverandi ofursti í Bandarfkjaher er stundum kallaður Indiana Jones okkar tima. Hann vann aö þvi aö endur-
heimta stóran hluta þeirra muna sem stolið var úr Þjóðminjasafni Iraks f kjölfar innrásar bandamanna áriö 2003.
Bókin Thieves of Baghdad eftir Matthew
Bogdanos sem kom út á sföasta ári fjallar
um eitt mesta listaverkahvarf sögunnar.
voru fyrir innrásina. Engu að síður
var um fjörutíu munum stolið, þar af
nokkrir sem taldir eru ómetanlegir.
Annað var uppi á teningnum í
geymslum safnsins ofanjarðar. Þar
höfðu þjófar látið greipar sópa um
hillur og var á fjórða þúsund dýr-
mætra muna saknað.
Fáeinum dögum síðar uppgötv-
uðu Bogdanos og samstarfsmenn
hans að brotist hafði verið inn í