blaðið - 11.03.2006, Qupperneq 32
32 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 blaðiö
Ástfangin af ástinni...
Jæja, nú er komin timi á smá væmni, enda ekki hægt að tala um
samskipti kynjanna án þess að einhverrar væmni gæti við. En
þannig er nú mál með vexti að manneskja mjög nákomin mér
hefur átt við gríðarlega ástarsorg að etja og virðist hreinlega
ekki eiga sér viðreisnar von. Þessu fylgir þetta venjulega; svefn-
leysi, kvíðahnútur, tíu klósettrúllur fyrir tárin og „I will always
love you“ á fóninum.
Á dögunum sátum við svo nokkrar og ræddum þessa
djöfullegu ástarsorg hennar. En það sem annars hefði orðið
þungt og dramatískt kvöld varð að þessum líka innihalds-
riku samræðum. Ein viðstaddra kom fram með athugasemd
sem á eflaust eftir að vera mér lengi í minni. Hún sagði þeirri
grátandi að steinhætta þessu bulli og hætta að hugsa um hel-
vítið - hún væri bara ástfangin af ástinni! Ég auðvitað innti
eftir nánari upplýsingum um þessa yfirlýsingu og í kjölfarið
komst ég að því að þarna stendur hnífurinn í kúnni! Ástar-
sorg snýst oft bara um söknuð til hinna ýmsu aðstæðna en
ekki endilega manneskjuna sjálfa, með öðrum orðum: við
verðum ástfangin af ástinni. Þið vitið hvernig þetta
er; þú grætur þegar þú hugsar um síðasta skipti
sem þið þrifuð saman æðislega krúttleg, þegar
þið hlóguð saman að aulalega brandaranum
hans, þegar þið sunguð „lagið ykkar“ yfir pott-
unum eða þegar þið voru saman á Spáni eins og
einu mögulegu turtildúfur heimsins. 1 raun er
þetta oft einungis spurning um að sakna ákveð-
inna augnablika og þessi augnablik vega jafnvel
þyngra en sjálf manneskjan sem saknað er. í
þessu umrædda dæmi minu varð þetta til þess
að sú útgrátna lagði kalt mat á prinsinn og upp-
götvaði að hann væri bara prump! Hún hafði
sumsé bara einblínt á allar „góðu stundirnar"
(blablabla) og saknað þeirra.
Ég skal ekki segja, en ég lít á þetta sem
verðugar vangaveltur. Þegar sambandsslit eiga sér
stað verður fólk einmana, lítið í sér og þegar öllu er
á botninn hvolft ástarþurfi og í meiriháttar
fráhvörfum. Þá er ekki skrýtið að viðkom-
andi tortími sjálfum sér í hinum ýmsu
hugsunum og haldi í kjölfarið að þetta
sé eina ástin sem til sé. En þvílíkur end-
emis misskilningur. Þið þarna sem eruð
með grátstafinn í kverkunum af því að
ástin mikla fór á brott: Takið ykkur
saman í andlitinu og hugsið svolítið já-
kvætt. Það er eflaust einstaklingur á
næsta leiti sem á eftir að upplifa með
ykkur sönginn yfir matseldinni eða
krúttlegu parahreingerninguna!
halldora@bladid.net
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ < VWgS? VWv 'iSdéiV ■
Hvaða ráðuneyti hentar þér best?
Margir eiga sér þann draum
heitastan að verða ráðherra enda
ber sá titill með sér ákveðinn
virðuleika. Svo ekki sé minnst
á ágætis laun, mjög góð frí, alls
kyns teiti þar sem veitingarnar
flæða að ógleymdu skemmti-
legum boðsferðum til Tævan
og annarra framandi landa. En
ókosturinn er hins vegar sá að
starfinu fylgir mikið álag og
þetta er ekki mjög fjölskylduvæn
vinna. Til að langþráður draumur
rætist þarf vitanlega að skrá sig
í rétta stjórnmálaflokkinn, næla
sér í einhvers konar menntun og
síðan er bara að vinna sig hægt
og rólega upp þar til ráðherratit-
illinn er kominn í höfn. En það
eru um 14 ráðuneyti að ræða og
ekki eru þau öll áhugaverð. Hvaða
ráðuneyti hentar þér best? Taktu
prófið að neðan og sjáðu hver út-
koman verður!
IHvað lýsir þér best?
a) Ég er hæglát/ur, ekkert
mikið fyrir það að brosa og
finnst fjölmiðlaathygli óþægileg. Ég
er einræn/n fjölskyldumanneskja og
nýt mín best í fámennum hópi.
b) Ég er vingjarnleg/ur án þess að
gefa of mikið af mér og þar af leið-
andi kann enginn illa við mig. Ég
kem eins fram við alla.
c) Ég er hlý/r en svolítið inni í mér
og lokuð/aður. Ég á því erfitt með
að tala um tilfinningar mínar. Hins
vegar er ég mjög hæf/ur í starfi og
algjör vinnuþjarkur.
d) Ég er yfirleitt mjög kát/ur og
glöð/glaður. Hins vegar er ég skap-
mikil/11 og þver og veit alveg hvað ég
vil.
2Hvaða málefnum hefurðu
helst áhuga á?
a) Umhverfið er móðirin og
því eigum við allt undir umhverfinu.
Eg hef alltaf trúað því að manni beri
að virða umhverfið og á móti mun
umhverfið þjóna okkur. Þrátt fyrir
að menntun og margt annað skipti
máli þá er umhverfið alltaf það sem
huga bera að fyrst.
b) Mannauðurinn í samfélagi
skiptir höfuðmáli og þar hefur
menntun mikið að segja. Eins og
staðan er í dag erum við á ágætis
róli en betur má ef duga skal. Því
tel ég að leggja beri mikla áherslu á
menntun á næstu árum.
c) Island er fámenn eyja og þótt að
í fámenninu búi styrkur þá er líka
nauðsynlegt að styðja við utanrík-
issamskipti. Önnur lönd geta veitt
okkur stuðning sem og atvinnu
eins og sjá má af Bandaríkjunum og
Bretum. Samskipti vð önnur lönd
eru því mikilvæg og ber að efla.
d) Ég á í rauninni mjög erfitt með
að velja eitthvað eitt málefni sem
mér finnst mikilvægara en annað.
Öll málefni eru álíka mikilvæg en
hins vegar legg ég áherslu á að ég
hafi eitthvað að segja um þau öll.
Svo lengi sem ég hef yfirsýn og ein-
hvers konar ákvarðanavald þá er ég
sátt/ur.
3Hvaða stjórnmálaskoðanir
aðhyllist þú?
a) Ég styð frelsi einstaklingsins
framar öllu enda þarf einstakling-
urinn frelsi til að þroskast og njóta
hæfileika sinna.
b) Ég hallast að frjálslyndri hug-
myndafræði og tel farsælast að ná
fram niðurstöðu með samvinnu
ólíkra afla.
c) Frelsi einstaklingsins er mikil-
vægt málefni en þó má aldrei gleyma
sjálfstæði og öryggi þjóðarinnar.
Það er álíka mikilvægt og frelsið.
d) Öryggi þjóðar sem og frelsi ein-
staklingsins er mikilvægt. Afskipti
hins opinbera eiga því ekki að vera
mikil og sterkt öryggisnet verndar
þá sem þurfa stuðning.
4Ef vinir þínir myndu gagn-
rýna þig hvað myndu þeir
helst segja?
a) Sennilega helst að ég sé lítt sýni-
leg/ur og ekki nógu afgerandi. Svo
gætu þeir líka sagt að ég væri ekki
nægilega sjálfstæð/ur.
b) Þessa dagana myndu þeir helst
segja að ég flýði af hólmi þegar ég
þyrfti að verja ákvarðanir mínar og
stæði kannski ekki nægilega með
sjálfri/sjálfum mér.
c) Þeir hafa löngum kvartað yfir
því að ég sé ekki nægilega skemmti-
leg/ur og haldi persónutöfrum
mínum leyndum, nema kannski í
fámennum hópi. Auk þess mætti ég
brosa meira, þótt ég sé öll/allur að
koma til.
d) Þeir segja oft að ég sé of var-
færin/nn og ekki nægilega sýnileg/
ur. Þannig virka ég fjarlæg/ur og
ekki til staðar á ögurstundum.
5Hvaða menntun heldurðu
að hæfi þér best?
a) Hagfræðin og stjórnmála-
fræðin hafa alltaf heillað mig. Eins
væri eflaust gaman að starfa við
blaðamennsku í nokkur ár.
b) Ég hef mikinn áhuga á tungu-
málum og myndi vilja verða fulln-
uma í íslensku. Mér þykir grískan
líka skemmtilegt tungumál og þá
væri sagnfræði fullkomin með.
c) Ég er heilluð/aður af tölum og
því held ég að endurskoðun myndi
henta mér best. Ég myndi líka
vilja kenna í háskóla til að fá meiri
reynslu.
d) Lögfræðin er það sem á best við
mig, á því er enginn vafi.
6Hvert er áhugamál þitt?
a) Tónlist heillar mig alltaf
og margir segja að ég syngi
mikið.
b) Einna helst er ég áhugamann-
eskja um íþróttir og það má segja að
handboltinn eigi sérstök ítök í mér.
c) Ég hef áhuga á alls kyns útiveru
og eins má sjá mig í Hreyfingu reglu-
lega enda hugsa ég um heilsuna.
d) Ég læt ekki mikið fyrir mér fara
og held áhugamálum mínum fyrir
mig.
Teldu stigin:
1. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig d) 3 stig
2. a) 1 stig b) 3 stig c) 2 stig d) 4 stig
3. a) 3 stig b) 4 stig c) 2 stig d) 1 stig
4. a) 1 stig b) 3 stig c) 4 stig d) 2 stig
5. a) 2 stig b) 1 stig c) 4 stig d) 3 stíg
6. a) 2 stig b) 3 stig c) 4 stig d) 1 stig
0-8 stig; Þú átt helst heima í
umhverfis-
ráðuneytinu.
Þér er annt
um umhverfið
og finnst það
skipta miklu
máli. Þú heillast
aftungumálum
en finnst best að
láta Iftiðfyrirþér
fara. Þú hentar
þvi prýðilega i um-
hverfisráðuneytið þar sem lítið er fjallað
um það ráðuneyti og ráðherrann þarf
sjaldan að koma fram i fréttum vegna
alls kyns mála. Þinn helsti galli er að þú
ert Iftt sýnileg/ur og ósjálfstæð/ur en þú
ert án efa dugleg/ur til vinnu.
9-12 stig: Þú átt helst heima
í utanríkisráðuneytinu.
Þú telur samskipti Islands við erlendar
þjóðir skipta mikiu máli þrátt fyrir að
fámenni íslands sé jafnvel styrkur þess.
Þú ert söngelsk/ur
en lltið fyrir að
flíkatilfinningum
þfnum. Þú hentar
því prýðilega I
utanríkisráðuneyt-
ið þar sem söngur
geturfleyttþérí
gegnum erfið mál
en harkan heldur
þér hlutiægum.
13-17 stíg: Þú átt heist heima
í menntamálaráðuneytinu.
Þú vilt upphefja menntun á fslandi og
trúir þvf statt
og stöðugt að
mannauðurinn
liggi í menntun-
inni. Akvarðanir
þinareru ekki
alltaf vinsælar
og þinn helsti
galli er sá aðþú
flýrðstundum af
hólmi í stað þess
að svara fyrir
ákvarðanir þfnar. En þar sem þú ert yfir-
leitt kát/ur og glöð/glaður er þér fljótt
fyrirgefið þrátt fyrir þrjósku.
18-25 stig: Þú átt helst heima
í forsætisráðuneytinu.
Þú ert hrifin af valdi og vilt fá að stjórna.
Svo lengi sem þú færð að taka helstu
ákvarðanirnar, hvort sem er ein/nn eða
f samvinnu við aðra, þá geturðu fjallað
um hvaða málefni sem er. Þú ert fróð/ur
um allt möguleg, hugsar um heilsuna
og ert dugleg/ur til vinnu. Þú sýnir
þínar bestu hliðar f fámennum hópi en
ert heldur varfærnari i stærri hópum.
Þess vega áttu oft á hættu á að vera
misskilin/nn.