blaðið - 11.03.2006, Page 54
541 FÓLK
LAUGARDAGUR 11. MARS 2006 blaðiö
MARKAÐURINN
Á AÐ ÚTHÝSA
DEPURÐINNI
Smáborgarinn er frá litlu sjávarþorpi og
er skapgerð hans og heimspeki mótuð
af upprunanum, enda fær enginn flúið
sinn fæðingahrepp. Eitt af þvi minnistæð-
asta við að alast upp í litlu plássi var sú
hluttekning sem þorpsbúar sýndu hvor
öðrum i gleði og sorg: hvort sem glaðst
var yfir hvalreka í mögru ári eða vottuð
samúð yfir dauðdaga einhvers sem mað-
uraldrei þekkti.
Þessi samkennd er vissulega falleg
en að sama skapi ákaflega gamaldags.
Hún á ekkert erindi við hið framsækna
þekkingarsamfélag sem ísland samtím-
ans óneitanlega er. Samkenndina ætti
að varðveita i Árbæjarsafni, það ætti að
stilla henni upp á meðal klunnalegra og
illa útskorinna aska á Þjóöminjasafninu
og hugsanlega mætti taka til notkunar
„samkenndarkompu" ef eitthvað herbergi
er laust í Þjóðmenningarhúsinu. Sam-
kenndin er nauðsynleg en hún á ekkert er-
indi til samtima sem er drifinn er áfram
af knörrum útrásarvíkinga og hugsun
listamanna sem eru á heimsmælikvarða.
Það vakti athygli Smáborgarans þegar
fréttir bárust ofan úr, einu framsækn-
asta byggðarfélagi landsins, Borgarnesi
að helstu viðskiptaforkólfar og andans
menn bæjarfélagsins telja hið mesta
þjóðþrifamál að takmarka frelsi manna
til þess að flagga tilfinningum sínum.
Þetta er gert til að skapa nútímanum
meira svigrúm í bæjarfélaginu. Þannig er
mál með vexti að í Borgarnesi eru óvenju-
margar flaggstangir og þegar sorgin
vegna andláts ber að garði þá hafa íbúar
bæjarfélagsins haldið þann gamla sið að
flagga í hálfa. Þetta hefur gert það að
verkum að þeir sem aka þjóðveginn með-
fram bænum verða svo ákaflega daprir
þegar þeir sjá hálfflaggaðar stangir unn-
vörpum að þá langar barasta ekkert í
Hyrnuna til að kaupa sér kók og snakk og
snargleyma að bæta við bensíni á bílinn.
Allt það sem minnir á hverfulleika lífsins
er ekki gott fyrir markaðinn og er ekki sá
byr sem þarf til þess að treysta yfirburða-
stöðu (slands í samfélagi þjóðanna.
Forráðamenn í öðrum bæjarfélögum
ættu að taka Borgnesinga til fyrirmyndar.
Smáborgarinn býr nú í Vesturbænum og
verður einatt dapur og svartsýnn þegar
hann sér höggmynd Einars Jónssonar af
íslensku vísitölufjölskyldunni við
hringtorgið við Þjóðminjasafnið. Slík
höggmynd á varla erindi inn í íslenskan
samtima. Það sama gildir um flest þau
listaverk sem minna okkur á eitthvað
annað en hina miklu kátínu og fram-
sæknisamtimans.
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Jón Bjarnason, alþingismaður
Þarf að setja viðskiptaráðherra í
umhverfismat?
„Jú ætli það væri ekki bara rétt. En ég reikna þá með að Halldór snúi því þá
bara við! En ég er þeirrar skoðunar að frumvörp og aðgerðir iðnaðarráð-
herra síðustu árin séu mesta náttúruvá landsins, og stend ég við þau orð.“
Jón líkti aðgerðum Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðarráðherra, við náttúruvá á þinginu í gær
Simpson vill hœtta
að syngja
Söng- og leikkonan Jessica Simpson gaf nýlega í skyn að hún sé jafnvel
að fara að leggja hljóðnemann á hilluna fyrir fullt og allt, þrátt fyrir að
vera bundin samningi um að senda frá sér þrjár plötur í viðbót.
Simpson lék í sinni fyrstu mynd, The Dukes of Hazzard, í fyrra og
er núna æst í að hverfa lengra inn í heim Hollywood og gera leiklist
að sínu aðalstarfi. Fulltrúar Sony útgáfunnar eru ekki sáttir við ráða-
brugg söngkonunnar og krefjast þess að hún að minnsta kosti klári
samning sinn hjá fyrirtækinu.
„Tónlist verður alltaf ástríða mín, en ég þarf ekki að hafa hana að at-
vinnu,“ sagði Jessica Simpson í viðtali um málið. „Ég Iít ekki lengur á tón-
listina sem feril, mér finnst eins og ég ætti að fara hvíla hana og snúa mér
að kvikmyndunum.“
Ford vill Clooney
Indiana Jones sjálfur, Harrison Ford, hefur mikinn áhuga á að vinna undir
leikstjórn George Clooney eftir að hann sá kvikmyndina Good Night, And
Good Luck sem Clooney var tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir að leik-
stýra.
Ford viðurkennir að hann sé ekkert sérstaklega mikið fyrir að fara í bíó en
leikstjórn Clooneys heillaði hann upp úr skónum. „Ég sá Good Night, And
Good Luck nýlega og mér fannst hún frábær, æðisleg saga til að segja á okk:
ar tímum,“ sagði Harrisori Éord í samtali við kvikmyndatímaritið Empire.
„Mig langar virkilega að vinna með honum.“
Mamman Aguilera
Söngkonan sykursæta Christina Aguilera upplýsti nýlega að hana dreymir
um að vera ung móðir og kom þannig orðrómi um þungun sína heldur bet-
ur af stað.
Slúðurritin í Los Angeles hafa mikið velt sér upp úr málinu og hafa nán-
ast lýst yfir að hún sé ólétt þar sem hún gifti sig athafnarmanninum Jordan
Bratman á síðasta ári og hefur að miklu leyti dregið sig úr sviðsljósinu síð-
astu mánuði.
„Mig hefur alltaf langað til að vera ung móðir,“ sagði Aguilera í samtali
við breska útgáfu Elle tímaritsins. „Þegar mig langar í eitthvað fer ég og
næ í það.“
Miðvikudaginn 15. mars
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Kolbrún Ragnaisdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
eftir Jim Unger
5-23
O Jim Unger/dist. by Unlted Media. 200t
Ellert Ágúst Pálsson • Sími 510 3746 • Gsm 869 9903 • elli@bladid.net
Bjarni Daníelsson • Sími 510 3725 • Gsm 856 4299 • bjarni@bladid.net
Þeir koma ekki nálægt mér síðan ég
gaf þeim smákökur konunnar.
HEYRST HEFUR...
Framsóknarmenn í Reykja-
vík búa sig nú af kappi und-
ir borgarstjórnar-
kosningarnar i maí.
f , v f Birni Inga Hrafns-
A > syni hefur nú bæst
m ■ liðsauki sem er Pét-
m ™ ur Gunnarsson.
Pétur var um árabil blaðamað-
ur á Morgunblaðinu og síðar
fréttastjóri Fréttablaðsins. Þá
náði framsóknarmaddaman að
klófesta hann og síðast var hann
upplýsingafulltrúi
félagsmálaráð-H
herra. Þegar Árni _ 39
Magnússon fékk I
nóg af því starfi
hætti Pétur enda
ráðning hans tímabundin. Nú
situr hann í herráði Björns Inga
og leggur á ráðin enda þykir Pét-
ur öflugur maður og búa yfir
miklum pólitískum greiningar-
hæfileikum.
Skrítin frétt birtist í Morg-
unblaðinu á fimmtudag en
þar var sagt frá ársskýrslu Stíga-
móta. Nýjum málum fjölgaði á
síðasta ári hjá samtökunum og
leituðu 543 menn þangað eftir
aðstoð. í máli talskonu Stíga-
móta kom fram að „ungur aldur
ofbeldismanna [væri] áhyggju-
efni” og þessi var fyrirsögn frétt-
arinnar. Einhver hefði einhvern
tíma sagt að ofbeldið og áhrif
þess á fórnarlömbin væru frekar
áhyggjuefai en aldur þeirra sem
það fremja.
Ur röðum Vinstri grænna í
Reykjavík heyrum við að
áhyggjur fari vaxandi. Fram-
bjóðendur í borgarstjórnarkosn-
ingunum þykja því sem næst
ósýnilegir og í síðustu könnun
mældist fylgi flokksins aðeins
7%. Einhverjir segja að brott-
hvarf Bjarkar Vil-
helmsdóttur, sem
nú fer fram sem
i óháður fulltrúi
; tengdur Samfylk-
1 ingunni, eða þann-
ig, hafi greinilega verið þungt
högg fyrir róttæklingana. Hins
vegar heyrum við einnig úr röð-
um vinstri grænna að þeirra
fólk hafi vissulega kosið Björk i
jrófkjöri Samfylkingarinnar en
rað geti ekki hugsað sér að kjósa
)ann flokk í vor. Hvar liggur þá
retta fylgi?
Kristján G. Arngrímsson,
blaðamaður á Morgunblað-
inu, hefur skipað sér í hóp bestu
dálkahöfunda dagblaðanna.
Kristján skrifar reglulega í dálk-
inn Viðhorf sem birtist í Morg-
unblaðinu. Skoðanir sínar setur
hann fram af heimspekilegum
þunga og er óvæginn í gagnrýni
sinni ef svo ber
undir. I Viðhorfi
fimtudagsblaðs
gerir Kristján, sem
hefur doktorspróf
í heimspeki, gagn-
rýni Gauta Kristmannssonar,
bókmennta- og þýðingarfræð-
ings að umtalsefni. Gauti ritaði
fyrir skömmu grein í Morgun-
blaðið um tvítyngisumræðuna
á íslandi og fann henni flest til
foráttu. Sagði Gauti hana ein-
kennast af því að sjálfskipaðir en
ekki raunverulegir „sérfræðing-
ar“ hefðu blaðrað um málið í fjöl-
miðlum og hefði „eldhússpekin'
verið yfirþyrmandi. Kristján fer
hörðum orðum um grein fræði-
mannsins og gerir sérstaklega
athugasemd við þá staðhæfingu
Gauta að tungumálið hafi verið
„fundið upp“. Það telur Kristján
að fái alls ekki staðist og legg-
ur fram rök máli sínu til stuðn-
ings. Staðan er í-o Kristjáni í vil
en áhugamenn hljóta að vona
að í uppsiglingu sé áhugaverð
ritdeila tveggja skoðanaglaðra
manna.