blaðið - 13.04.2006, Qupperneq 1
Reykjavík -> Oslo
Kr. 8.000
Reykjavík -> Bergen
" Kr. 9.500 »
www.flysas.is
Aðrir áfangastaöir í Noregi einnig á frábæru veröi!
Skattar og flugvallargjöld innifalin. Flug hefst 27. mars.
Sími fjarsölu: 588 3600.
■ TRÚMÁL
■4 Saklaus eða
sveik hann?
r
b f' LOKSINS Á
4 ► ÍSLENSKU
v betsson.com
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
Hjálmar vonast eftir útspili
ríkisstjórnar í öldrunarmálum
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir Samfylkinguna hafa skipt um skoðun í
öldrunarmálum. Ásta R. Jóhannesdóttir segir ekkert hœft í orðum Hjálmars Árnasonar.
Auðveld
afsökun í
Kanada
Lagt hefur verið til í Bresku Kól-
umbíu, einu af fylkjum Kanada,
að lögum verði breytt í því skyni
að gera fólki og fyrirtækjum
kleift að biðjast afsökunar án
þess að eiga málsókn yfir höfði
sér.
Frumvarp þessa efnis hefur
verið lagt fram og er gert ráð
fyrir að einstaklingum, emb-
ættismönnum og fyrirtækjum
verði tryggð ákveðin vernd gagn-
vart mögulegum málaferlum
biðjist viðkomandi afsökunar
t.a.m. á tilteknum mistökum
eða framkomu.
„Oft er í senn mikilvægt og
við hæfi að biðjast afsökunar en
hinar lagalegu hliðar þess gjörn-
ings eru óljósar,“ segir Wally
Oppal, dómsmálaráðherra
Bresku Kólumbíu.
Umboðsmaður fylkisins átti
frumkvæði að lagabreytingunni.
í skýrslu sem hann birti í febrú-
armánuði segir m.a. að afsökun-
arbeiðni geti í mörgum tilfellum
sefað reiði fólks sem sætt hafi
ranglæti af hálfu stjórnvalda.
BlaWFrikki
Trúarleg
mótmæli á
Filippseyjum
Andstæðingar Gloríu Arrayo,
forseta Filippseyja, líkja eftir
píslargöngu Krists í höfuðborg-
inni Manila, í gær.
Algengt er að menn minnist
krossfestingar og upprisu
Krists með afar leikrænum
hætti á Filippseyjum en að und-
anförnu hefur færst í vöxt að
þessi hefð taki á sig pólitískan
blæ til að krefjast afsagnar
forsetans. Gloria Arrayo er
sökuð um að hafa tryggt sér
sigur í forsetakosningum árið
2004 með því að gangast fyrir
víðtækum svikum.
Hjálmar Árnason, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, kveðst
vænta þess að ríkisstjórnin beiti sér
fyrir því að forræði öldrunarmála
verð fært yfir til sveitarfélaga. Hann
fagnar því að Samfylkingin taki
undir þann málflutning en segir þó
undarlegt að áður hafi þingmenn
flokksins talað þvert á þá stefnu.
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingkona
Samfylkingarinnar, segir ekkert
hæft í orðum Hjálmars og segir að
þetta hafi verið stefna Samfylkingar-
innar allt frá árdögum flokksins.
Hjálmar segir að þegar verkefn-
isstjórn um eflingu sveitarstjórn-
arstigsins, sem hann fór fyrir, hafi
kynnt svipaðar tillögur hafi margir
Samfylkingarmenn andmælt. „I
umræðum á Alþingi, og eins á fjöl-
mörgum fundum sem við héldum
með sveitarstjórnarmönnum, var
það ekki síst Samfylkingarfólkið
sem talaði gegn þessari hugmynd,"
segir Hjálmar. „Ég tel nú reyndar
að það fólk hafi ekki verið að tala
gegn þessu vegna þess að það hafi
verið á móti grundvallarhugmynd-
inni sem slíkri, heldur út frá þessum
gömlu skotgröfum stjórnar og
stjórnarandstöðu.“
Gerðardómur verði kallaður til
„Ég vil aðeins halda því til haga hver
afstaða þeirra var til þessa máls á
sínum tíma.“ Hjálmar segist telja
að það sé einhugur um málið í
Framsóknarflokknum en mestar
áhyggjur hafi hann af þeirri stífni
sem sé á milli sveitarfélaganna og rík-
isins. Hann bendir á eina lausn í því
sambandi sem er að láta gerðardóm
úrskurða um málið. „Ef að fulltrúar
ríkis og sveitarfélaga finna ekki sam-
eiginlega lausn á málinu þá verði því
skotið til gerðardóms sem verði end-
anlegur úrskurður.“ Hjálmar segist
viss um að öldrunarmálin verði færð
yfir á forræði sveitarfélaganna. „Ég
held að það sé einungis tímaspurs-
mál hvenær það gerist og ég er að
vonast eftir því að ríkisstjórnin spili
þessu út áður en langt um líður,“
segir Hjálmar Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins.
Ekkert hæft í orðum Hjálmars
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, segir ekkert
hæft í því að Samfylkingin hafi
lagst gegn því að öldrunarmálin
verði færð alfarið yfir til sveitarfé-
laganna. „Það hefur enginn Sam-
fylkingarmaður mælt gegn þessari
hugmynd,“ segir Ásta. „Þetta er bara
þvæla. Það hefur verið stefna okkar
alla tíð að þessi þjónusta eigi að vera
nærþjónusta, hjá sveitarfélögunum.
En þá verður auðvitað að fylgja fjár-
magn frá ríkinu. Það verður hins
vegar að segjast eins og er, að það
væri verulegt áhyggjuefni ef þessi
þjónusta myndi færast yfir til sveitar-
félaganna á meðan þessi ríkisstjórn
er enn við völd.“ Ásta segir því hug-
myndina góða og boðar að Samfylk-
ingin muni framkvæma hana þegar
hún komist til valda. Hún segir ekki
síður mikilvægt að málaflokknum
verði komið á eina hendi hjá ríkinu
en skiptist ekki á milli ráðuneytanna
eins og staðan er í dag. Ásta bendir á
að Hjálmar hafi verið í aðstöðu til að
bæta ástandið í mörg ár og því skjóti
það skökku við þegar hann hvetji til
úrbóta nú. „Flokkurinn hans er með
forræði á málaflokknum, bæði í heil-
brigðis- og félagsmálaráðuneytinu
þar sem þessi mál hafa verið að hrekj-
ast á milli. Þeir hafa haft ellefu ár til
að breyta þessu og hafa ekkert gert,“
segir Ásta. „Stjórnarflokkunum er
ekki treystandi fyrir þessum mála-
flokki og það hefur margoft sýnt sig.
Verkin tala.“