blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 32
32 I UNGA FÓLKIÐ FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaðið Skemmtun í háloftunum Adrenalíngarðurinn vinsæll hjáfólki á öllum aldri Karl Ingólfsson, rekstrarstjóri adr- enalin.is, segir Adrenalingarðinn opinn allan ársins hring fyrir fyir- frambókaða hópa en lágmarksstærð hópa eru 6 manns. „Ef það er laust er unnt að bóka með nokkurra klukkustunda fyrir- vara þannig að starfsfólk komist á staðinn en garðurinn er staðsettur á Nesjavöllum um 40 km frá Reykja- vík. Garðurinn var opnaður seinni- part síðasta sumars og hefur þátt- takan verið mjög góð,“ en þess má geta að Adrenalíngarðurinn fékk Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónust- unnar á síðasta ári. „Fólk á öllum aldri kemur í garðinn. Við höfum m.a. fengið hópa úr grunn- og fram- haldsskólum. Adrenalíngarðurinn leggur mikið upp úr öryggi og hefur fengið Evrópuvottað gæðakerfi." Karl segir að í garðinum sé keyrð dagskrá sem tekur 2 klst en hún kostar 4.900 krónur. í þessari dag- skrá er farið í hluta Adrenalíngarðs- ins sem inniheldurþrautaklifur, risa- rólu og staur. Staurinn er 8 metra hár og er takmarkið að standa upp- réttur efst á staurnum og stökkva af honum út í loftið. í adrenalínpakk- anum er það framantalda en við bætist háloftabraut sem er þrauta- braut eftir slám, köðlum og brúm í 10 metra hæð og kostar adraenalín- pakkinn 6.900 krónur en 5.900 fyrir hópa yfir 20 manns. I hluta braut- arinnar er aldurstakmark 14 ára og hæðartakmark 150 cm. Á adrenalin.is er hægt að fá upplýs- ingar um garðinn en einnig er hægt að sækja um hellaferðir þar sem farið er í hella á Bláfjallasvæðinu og Gjábakkahrauni með leiðsögn. „Þá eru í boði ratleikir á Þingvöllum og í Laugardal en það hefur verið vin- sælt hjá fyrirtækjahópum og öðrum sem vilja gera sér glaðan dag.“ hugrun@bladid.net Það getur verið fjör í háloftunum eins og myndin sýnir. Uefðui ðetn uiau nið úti flott saman á nóríflal f engu ser Silikonl Arshatið Simans Fjor 1 frumskoginum! EKKI Búast má við glæsilegum tilþrifum snjóbrettakappa á Bigjump-snjó- brettamótinu á hafnasvæðinu í (safirði að kvöldi föstudagsins langa. Big-jump mót á Isafirði Svokallað Big-jump-snjóbretta- mót verður haldið á hafnarsvæð- inu á ísafirði á morgun, föstu- daginn langa. Gámum verður staflað upp og byggð verður renna niður af þeim þar sem snjó verður mokað yfir. Munu snjóbrettakapparnir geta leikið þar listir sínar. I tilkynningu frá mótshöldurum segir að þetta sé svipað fyrirkomulag og hafi verið notað á snjóbrettahátíð- inni Ak-extreme á Akureyri. Mótið verður haldið að kvöldi til og lofa mótshaldarar miklu fjöri og góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Hljómsveitin Noise mun leika fyrir þátttak- endur og áhorfendur og gam- alreyndir skíðakappar munu jafnvel láta á reyna að stökkva af pallinum. Mótið hefst kl. 20 og er því tilvalið að fólk skelli sér á höfnina til að sjá brettafólkið hoppa og skoppa. Allir hvattir til að taka þátt Allt brettafólk, strákar jafnt sem stelpur, er hvatt til að mæta og taka þátt í mótinu. Hægt er að skrá sig með þvi að senda sms með nafni, kennitölu og síma- númeri (ef það er ekki það sama og sendanda) í síma 866-9638. . Nánari upplýsingar eru að finna á www.skidavikan.is sem og frekari dagskrá skiðavik- unnar á ísafirði, t.d. rokkhátíð- ina Aldrei fór ég suður. blaóió

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.