blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 4

blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö www.expressferdir.is FRIEDRICHSHAFEN BODENSEE Sumarfrí í barnvænu og skemmtilegu umhverfi VERÐDÆMI, 4 SAMAN í HÚSI Ráðherra skipi séra Sigf ús Sóknarbörn í Keflavíkurprestakalli afhentu í gær Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, undirskriftalista til stuðnings séra Sigfúsi B. Ingvasyni, presti í Keflavíkurkirkju. Krefjast sóknarbörnin þess að ákvörðun meirihluta valnefndar, að mæla með séra Skúla S. Ólafssyni í embætti sóknarprests, verði sniðgengin og að ráðherra skipi séra Sigfús I embættið. Undirskriftasöfnun lauk í gær og höfðu þá tæplega 4.500 manns skrifað undir. A myndinni sjást forsvarsmenn undirskriftalistans í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu áður en þeir fóru á fund ráðherra. TM vill kaupa í Noregi Tryggingamiðstöðin (TM) hefur gert kauptilboð í norska trygginga- félagið Nemi. Þetta kemur fram í til- kynningu frá norsku kauphöllinni í gær. Tilboðið hljóðar upp á rúma ío milljarða íslenskra króna. Þetta er í annað skiptið sem TM gerir tilraun til að kaupa Nemi en í fyrra skiptið fékkst ekki stuðningur stjórnar fyrir kaupunum. TM hefur nú þegar tryggt sér 68% hlutabréfa í Nemi. FL Group kaupir svaladrykkja- framleiðslu FL Group hefur ásamt fjárfestum undirritað samning um kaup á hol- lenska drykkjarvörurframleiðand- anum Refresco. Heildarkaupverð er um 42 millj- arðar króna en FL Group verður stærsti hluthafi félagsins með 49% eignarhlut. Meðal annarra fjárfesta eru Vífilfell og helstu stjórnendur Refresco. Hjá Refresco starfa um 1.200 manns í fimm löndum en félagið er annar stærsti framleiðandi ávaxta- safa og svaladrykkja undir vöru- merkjum verslana í Evrópu. Helstu markaðssvæði félagsins eru Þýska- land, Frakkland, Spánn, Portúgal, Holland og Finnland. Árið 2005 nam velta félagsins 55 milljörðum og var hagnaður félags- ins fyrir fjármagnsliði og afskriftir 5,8 milljarðar króna. Undrandi á kærunni Jón Gerald kveðst hafa undrast kæru Jóhannesar. „Baugsmenn segjast Fljúgðu til Friedrichshafen og njóttu lífsins við Bodensee. Express Ferðir bjóða sumarhús og íbúðir á mjög hagstæðu verði. Stutt til vinsælla áfangastaða eins og Austurrikis, Sviss, þýskra Alpabæja og svo er ferð um Svartaskóg engu llk. Bodensee býður upp á alls kyns afþreyingu, sjósklði, róður, seglbrettaferðir og ferð um vatnið þar sem fallegir smábæir eru heimsóttir og komið við á blóma- eyjunni Mainau. Frábært umhverfi og allir finna eitthvað við sitt hæfi, golf, skemmtilega garða, hjólaferðir o.fl. o.fl. » Nánar á www.expressferdir.is 39.900 kr. INNIFALIÐ: Rug, skattar og dvöl I sumarhúsi I viku. Verð á mann (Ibúð I þrjá daga miðað við að fjórir séu saman 33.000 kr. Express Ferðir, Grlmsbæ, Efstalandi 26, slmi 5 900 100 Express Ferðir r_A.. ..t. ..I.. 1 n.n. . I . . .. I n „ Cwn.m.n Feróaskrifatofa I eigu lcelartd Exprese Setuverkfalli á öldrunar- heimilum frestað Mbl.is | Fyrirhuguðu setuverk- falli ófaglærðra starfsmanna á öldrunarheimilum, sem átti að hefjast 21. apríl að óbreyttu, hefur verið frestað um sex daga, eða til 27. apríl. Þessi ákvörðun var tekin eftir óformlegan fund fulltrúa Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu í gær. Álf- heiður Bjarnadóttir, talsmaður ófaglærðra starfsmanna, sagði að vilji virðist vera fyrir að leysa málið og rétt þætti að gefa samn- ingamönnum vinnufrið til að komast að niðurstöðu. HEFILBEKKIR FYRIR SKÓLA HEFILBEKKIR f BÍLSKÚRINN HEFILBEKKIR Á VERKSTÆÐIÐ Margar gerðir og útfærslur af hefilbekkjum Ásborg Smiðjuvegi 11,sími 5641212 Telur Jóhannes í Bónus vilja þrýsta á Hæstarétt Jón Gerald Sullenberger kveðst ekki hafa áhyggjur afkœru Jóhannesar Jónssonar um rangar sakargiftir, en óttast að Baugsmenn reyni að hafa áhrifá Hæstarétt með henni. Jón Gerald Sullenberger telur að kæra Jóhannesar fónssonar í Bónus á hendur sér vegna rangra sakar- gifta í Baugsmálinu hafi það helst að markmiði, að hafa áhrif á Hæsta- rétt í meðferð málsins og þyrla ryki í augu almennings. „Jóhannes lætur eins og Baugsmálið hafi snúist um innflutning á bílum, en það snerist auðvitað um allt aðra hluti. Bílainn- flutningurinn var nán- ast útúrdúr í því, en honum hentar núna að reyna að halda öðru fram,“ segir Jón Gerald í sam- tali við Blaðið. Sem kunnugt er kærði Jóhannes Jónsson í Bónus á dögunum Jón Ger- ald Sullenberger til ríkissaksóknara fyrir rangar sakargiftir, en Jóhannes var sýknaður í Baugsmálinu hinn 15. mars af ákæru fyrir að koma sér undan greiðslu tolla á innfluttum bíl. Kæra Jóhannesar var send ríkis- saksóknara fyrir síðustu helgi, en ekki var frá henni greint fyrr en í Fréttablaðinu á þriðjudag. „Það er ekki rétt, sem Baugsmenn hafa haldið fram, að ég hafi farið með rangt mál eða fals,“ segir Jón Gerald. „Rætur þessarar kæru er þrjár: hefndarþorsti, þörf til þess að drepa Baugsmálinu á dreif í augum almennings og tilraun til þess að hafa áhrif á Hæstarétt í málinu með því að ráðast frekar á trúverðugleika minn. Af því hef ég áhyggjur, en ekki kæruefninu." í öðru orðinu vera þreyttir á mála- ferlunum og að umræðan skaði fyrirtækið, en í hinu orðinu kemur svo þessi kæra, sem er auðvitað til þess helst fallin að halda málinu lifandi. En það er sjálfsagt að svara þessu - fyrir dómi ef út í það fer - þó ég hefði haldið að Jóhannes og Baugsmenn vildu frekar að aðkoma hans að þessum málum lægi í þagnargildi.“ Aðspurður telur Jón Ger- ald að kæran sé á miklum misskilningi byggð. „1 réttarríkinu ber borg- aranum að gera við- vart ef hann telur að lögbrot hafi átt sér stað. Rétt eins og lögreglunni ber skylda til þess að rannsaka réttmæti slíkra ábendinga.“. Minnir Jón Ger- ald á að upphaf Baugsmálsins hafi snúið að margræddri kreditnótu og rekstri skemmtisnekkjunnar Thee Viking í Flórída. „Það var ekki fyrr en lögregluþjónar komu hingað til Flórída að fara í gegnum bókhaldið hjá mér, sem þeir fengu áhuga á þessum bíla- málum. I mínum huga voru þau al- gert aukaatriði.“ Jón Gerald Sullenberger í Héraðsdómi Reykjavíkur vlð fyrirtöku Baugsmálsins.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.