blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 40

blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 40
40 I ÞRAUTIR FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö SU DOKU - LEIÐBEININGAR Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóörétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru geínar. VERÐLAUNA SU DOKU HELGARINNAR Við drögum svo út skemmtilegt Su Doku tölvuspil á fimmtudaginn klukkan 16:00 X Su Doku handtölva ■» með 91 mm LCD skjá | Klipptu út og sendu okkur réttu lausnirnar ásamt upplýsingum. Heimilisfangið er: Blaðið / Su Doku Bæjarlind 14-16 201 Kópavogi Klippið hér Nafn ____________________________ Heimilisfang ___________________________ Sími/Gsm ______________________________ Netfang _____________________________ 7 6 4 3 4 9 2 3 5 4 7 4 5 6 9 7 2 5 8 9 1 6 3 4 9 2 6 8 3 7 6 9 4 8 1 4 9 2 8 7 1 1 4 3 7 3 3 8 9 6 4 7 5 4 1 5 1 2 2 6 4 9 9 5 7 3 4 3 4 6 4 8 1 1 7 5 9 4 5 6 7 4 8 2 6 6 7 3 6 9 3 7 1 7 1 2 8 5 6 8 6 3 7 4 5 9 6 8 6 7 1 3 4 3 5 1 6 9 SHDP IS ©6610015 BlaSil/Steinar llugi Viðar Þorsteinsson, útgáfustjóri bókaútgáfunnar Nýhils, segir að hægt sé að selja Ijóðabækur á fslandi. Nýhil-útgáfan stefnir á opnun bókaverslunar sem leggur megináherslu á Ijóðabækur á næstu vikum. Ljóð seljast víst Það er skammt stórra högga á milli hjá Nýhil-útgáfunni. Á dögunum efndi hún til samkeppni um ömur- legasta ljóðið á íslandi sem vakti meiri athygli en aðstandendur þorðu að vona og á næstu vikum hyggst hún opna bókaverslun þar sem megináherslan verður lögð á ljóðabækur. Viðar Þorsteinsson, út- gáfustjóri Nýhils, segir að útgáfunni hafi boðist afnot af rými í húsnæði Smekkleysu á Laugavegi og þar verði bækistöðvar hennar. „Þetta verður staður þar sem hægt verður að nálgast á einum stað allt sem hefur komið út hjá Nýhil en við ætlum líka að reyna að bjóða upp á það sem er nýtt og ferskt í alþjóð- legri ijóðagerð í bland við klassískt efni. Við ætlum að panta titla er- lendis frá og vera einnig með það sem okkur finnst vera góðar ljóða- bækur sem hafa komið út á íslensku," segir Viðar en bætir við að ekki sé þó ætlunin að fara að selja notaðar ljóðabækur. „Við viljum endilega fá lagera sem kunna að vera til ein- hvers staðar af sjálfútgefnu efni og öðru sem er orðið fágætt," segir hann. Þeir sem eru áhugasamir um að selja ljóðabækur sínar eða önnur verk hjá Nýhil geta haft samband við Viðar gegnum netfangið nyhil@ nyhil.org. Upplestrar og aðrar uppákomur Ljóðabækur eru lítt áberandi í hefð- bundnum bókaverslunum hér á landi og oft er talað um að þær seljist illa. Viðar segist engu að síður vera vongóður um að hægt sé að reka verslun þar sem aðaláherslan verður lögð á þennan geira bókmennta. „Okkar reynsla er sú að það sé alveg hægt að selja ljóðabækur. Það er svo- lítið „trikkí“ enda selja þær sig ekki sjálfar. Við viljum halda áfram sókn ljóðsins og þetta er liður í því,“ segir hann. Auk þess að reka verslun mun Ný- hil-útgáfan standa að ýmsum uppá- komum svo sem ljóðaupplestrum í versluninni sem til stendur að opna innan skamms. Um líkt leyti koma út bækur í bókaflokki útgáfunnar sem ber yfirskriftina Norrænar bók- mennt ir og verður haldin vegleg opn- unarhátíð af því tilefni. Galakvöld í Gullhömrum Óperukór Hafnarfjarðar heldur sitt árlega Galakvöld í Gullhömrum í Grafarholti að kvöldi síðasta vetrar- dags 19. apríl. Húsið verður opnað með fordrykk kl. 19 og hefst dagskrá um klukkutíma síðar. Boðið verður upp á þriggja rétta hátíðarkvöldverð og er Órn Árnason leikari, skemmtikraftur og söngvari veislustjór. Elín Ósk Óskarsdóttir stjórnar kórnum að vanda og meðal þeirra sem koma fram má nefna Jó- hann Friðgeir Valdimarsson, Peter Maté, Örn Árnason, Margréti Grét- arsdóttur, Svönu Berglindi Karls- dóttur og Hörn Hrafnsdóttur auk dansara úr Dansíþróttafélagi Hafn- arfjarðar. Salonhljómsveit Sigurðar Snorrasonar leikur undir söng og leiðir veislugesti síðan áfram í ljúfan vínardansleik fram til kl 1.30 eftir að formlegri dagskrá er lokið. Samkvæmisklæðnaður er áskil- inn. Miðaverð er 6000 krónur en 5500 á mann fyrir tíu manna hópa eða stærri. Forsala miða fer fram í Bókasafni Hafnarfjarðar, Bókasafni Kópavogs, Tónastöðinni Skipholti og Listhári í Listhúsinu í Laugardal. Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu óperukórsins: www.op- erukor.is. Starfsafmæli Elínar Óskar Þann 6. maí næstkomandi mun kórinn síðan fagna 20 ára starfsaf- mæli Elínar Óskar Óskarsdóttur óperusöngkonu og stjórnanda síns með óperutónleikum í Langholts- kirkju. Auk Elínar Óskar koma þar fram Þorgeir J. Andrésson tenór, Jó- hann Friðgeir Valdimarsson tenór, Bergþór Pálsson baritón, Kjartan Ól- afsson baritón ásamt einsöngvurum úr röðum kórfélaga í Óperukór Hafnarfjarðar. Karlakórinn Stefnir tekur einnig þátt í dagskránni og stjórnandi verður Kurt Kopecky.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.