blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 28

blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 28
28 I VIKAN FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö Vikan í máli og myndum Það bar margt til tíðinda úti í hinum stóra heimi í vikunni. Vík- ingar gerðu strandhögg í London til að vekja athygli á fjáröflunar- átaki sínufyrirgötubörn íBrasilíu. íbúar Peking biðu óþreyjufullir eftir opnun nýrrar Ikea-verslunar á meðan annars staðar í landinu olli sandfok mörgum bóndanum búsifjum. Á Taílandi héldu menn upp á Songkran-hátíðina og hjá kristnum mönnum um allan heim stóð undirbúningur páskahátíðarinnar sem hœst. Livingstone bregður á leik Reulers Ken Livingstone, borgarstjóri London, með lifverði á sýningu um borgina sem sett hefur verið upp i Peking. Sýningunni er ætlað að veita kínverskum gestum innsýn í lífið í höfuðborg Breta. , Sandfok í Kína Heuters Sandfok olli mörgum búsifjum í sumum héruðum Kína i upphafi vikunnar. Hér sést bóndi í Minqin-héraði brjótast í gegnum sandfokið ásamt ösnum sínum tveimur. Mótmæli í Manama Reuters fbúi í Bahrein heldur mynd af fööur sínum á lofti við mótmæli í Manama. Maðurinn krefst þess að faðir hans verði látinn laus úr haldi en hann var handtekinn af yfirvöldum í óeirðum í síðasta mánuði. Um 200 manns héldu friðsamlegan mótmælafund í borginni ámánudag. Síungur bangsi Tuskubangsinn sívinsæli Bangsímon fagn- aði 80 ára afmæli sínu í vikunni og fékk af því tilefni stjörnu á gangstétt fræga fólksins i Hollywood. Reuters Víkingar í London Þessi vígalegi víkingur tók þátt í fjáröflunarsamkomu í miðborg London fyrr í vikunni. Víkingurinn og félagar hans hyggjast í byrjun júní sigla yfir Ermasund á eftirlíkingu af víkingaskipi til að safna fé fyrir götubörn í Brasilíu. Ahmadinejad í ham Mahmoud Ahmadinejad, forseti frans, ávarpar ættingja hermanna sem féllu f strfðinu við fraka sem geisaði frá 1980 til 1988 í borginni Mashad. íranir greindu frá þvi í vikunni að þeim hefði tekist að auðga úran. ' ± -■ i ■' ^ í.l 'X- L . Ur glugganum Reuters Gusugangur Reuters Kona f Srinagar f Kasmír fylgist með skrúðgöngu sem var hluti af Eid-e-Milad hátfðinni á þriðjudag. Hátfðin er haldin f tilefni af fæðingardegi Múhameðs spámanns. Þessi ffll dreifði vatni yfirfólk á hinni árlegu Songkran-hátfð f Ayutthaya-héraði íTailandi en hátiðin markar upphaf nýs árs samkvæmt gömlu tímatali.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.