blaðið - 13.04.2006, Side 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö
blaöiö==
Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
Segir tíðindin vond og verð-
bólguhorfurnar slæmar
Verðbólgan mœlist nú 5,5% og er langtfyrir ofan markmið Seðlabankans. Útlitfyrirfrekari
verðhcekkanir á ncestu mánuðum að mati hagfrceðings Alþýðusambands íslands.
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Lést undir
stýri
Karlmaður á sjötugsaldri fékk
aðsvif og missti stjórn á bifreið
sinni þar sem hann ók eftir
Reykjanesbrautinni til móts við
Kaplakrika í gærmorgun.
Svo virðist sem maðurinn
hafi misst meðvitund þar sem
hann var við akstur og fór hann
út af veginum. Vegfarendur og
sjúkraflutningamenn komu
manninum til aðstoðar en hann
var úrskurðaður látinn fljótlega
eftir að komið var með hann á
sjúkrahús.
Það þykir mildi að bíllinn rás-
aði til vinstri út af veginum, en
ekki til hægri gegn umferð sem
kom á móti.
Áttu erfitt með svefn?
Zhena's Gypsy Tea
kann að hjálpa
Red Lavander blandan..
hljóðlátt kraftaverk
Sölustaðir
Bakarameistarinn, Bernhöfts-bakarí,
Breiðholtsbakarí, Fjarðarkaup, Cjafir
Jarðar, Hjá Jóa Fel, Kaffi Hljomalind,
Kaffi Berg, La Vida, Maður Lifandi,
Melabúðin, Ostabúðin, Yggdrasill,
Kaffi Rós á Akureyri.
Englatár - www.englatar.is - 551 8686
Verðbólgan hefur hækkað um rúmt
eitt prósentustig frá því í mars
samkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar á vísitölu neysluverðs í apríl.
Verðbólgan mælist nú 5,5% sem er
þremur prósentustigum fyrir ofan
verðbólgumarkmið Seðlabankans.
Hagfræðingur Alþýðusambands ís-
lands (ASl) segir útlitið dökkt og að
óbreyttu stefni allt í endurskoðun
kjarasamninga í nóvembermánuði
næstkomandi.
Almennar verðhækkanir
Vísitala neysluverðs hækkaði um
1,07% frá því í mars samkvæmt út-
reikningum Hagstofunnar og er nú
255,2 stig en það jafngildir 5,5% verð-
bólgu á síðastliðnum tólf mánuðum.
Frá áramótum hefur vísitalan
hækkað um 2,2% sem jafngildir um
9,1% verðbólgu á ári.
Samkvæmt vísitölunni hafa inn-
lendar vörur hækkað um 5,1% að
meðaltali frá því í mars og innfluttar
vörur án áfengis og tóbaks um
2,8%. Þá hefur verð á nýjum bílum
hækkað um 4,1% og verð á fötum og
skóm um 3% á einum mánuði.
Verð á bensíni og díselolíu hefur
hækkað um 6,7% frá því í mars og
allt útlit er fyrir frekari hækkanir
miðað við þær verðhækkanir sem
hafa átt sér stað á síðustu dögum.
Þannig hækkaði Olís verð á bensín-
lítra um 3,6 krónur í gær í takt við
hækkun Esso frá því á þriðjudaginn.
Meðalverð á bensíni er nú um 122,5
krónur og þá kostar lítri af díselolíu
um 117,6 krónur.
Verðbólgan hefur nú verið átta
mánuði í röð yfir efri vikmörkum
Seðlabankans og þremur prósent-
ustigum yfir verðbólgumarkmiði
hans. Leita þarf aftur til ársins 2002
til að finna svipaða verðbólgu og nú
mælist.
Útlitið dökkt
Ólafur Darri Andrason, hagfræð-
ingur ASÍ, segir stöðuna ekki vera
Verðbólgan hefur ekki mælst hærri síðan
í maímánuði árið 2002.
góða og allt útlit fyrir enn verri mæl-
ingum á næstu mánuðum. „Þetta
eru vond tíðindi. Verðbólgan er
komin þremur prósentustigum yfir
verðbólgumarkmiðið og horfurnar
eru slæmar. Við búumst við enn
verri mælingum í maí.“
Ólafur segir ljóst að þær kjara-
samningsbundnu launahækkanir
sem launþegar fengu um síðustu
áramót séu horfnar. „Þeir sem ein-
göngu hafa fengið almennar launa-
hækkanir eru að búa við verulega
rýrnandi kaupmátt kjarasamninga.
Miðað við núverandi verðbólgumæl-
ingar og spár eru allar líkur á því
að kjarasamningar verði í uppnámi
þegar kemur að endurskoðun þeirra
í haust."
Að sögn Ólafs hefur veiking krón-
unnar átt sér stað mun hraðar en
menn gerðu upphaflega ráð fyrir.
Þetta mun að hans mati valda því
að vöruverð mun halda áfram að
hækka á næstu mánuðum og stuðla
þannig að enn frekari verðbólgu.
Þá dregur Ólafur það í efa að hægt
verði að stöðva núverandi verðbólgu-
þróun án meiriháttar aðgerða af
hálfu stjórnvalda. „Það sem skiptir
mestu máli núna er trúverðug efna-
hagsstjórn. Hingað til hefur ríkis-
stjórnin ekki lagt neitt af mörkum
til að stuðla að stöðugleika. Ef eitt-
hvað þá hefur hún ýtt undir óstöð-
ugleika með m.a. illa tímasettum
breytingum á íbúðalánamarkaði og
skattalækkunum. Það er mikilvægt
að ríkisstjórnin komi með trúverðug
viðbrögð við þessari stöðu.“
■ «!
BMiðMki
Allir sem vettlingi gátu valdið hjálpuðu við flutninga Blaðsins í gær, þar á meðal Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri.
Blaðið flytur í Hádegismóa
Starfsmenn Blaðsins hafa síðustu
daga unnið hörðum höndum að
því að undirbúa flutning á starf-
semi þess. Frá því að fyrsta tölu-
blað Blaðsins leit dagsins ljós 6.
maí á síðasta ári hefur starfsemin
verið til húsa að Bæjarlind 14 til 16
í Kópavogi. Það húsnæði var hins
vegar kvatt í gær og hafurtask starfs-
manna flutt í nýjar höfuðstöðvar
að Hádegismóum, nánar tiltekið í
prenthús Morgunblaðsins.
Milli fimmtíu og sextíu starfs-
menn vinna nú hjá Blaðinu og 400
fermetra húsnæði þess í Bæjarlind-
inni var löngu orðið of lítið. Nýjar
skrifstofur eru mun rúmbetri eða
alls rúmlega 600 fermetrar.
Páskafrí
I kjölfar flutninga og að tilefni
páska munu starfsmenn Blaðsins
halda í nokkurra daga páskafrí.
Næsta tölublað mun vegna þessa
koma út miðvikudaginn 19. apríl
næstkomandi, eða miðvikudag
eftir páska.
(^) Heiöskfrt 0 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað
Rignlng, lítllsháttar /// Rigning Súld
íjí Snjókoma
*
*
Sjj Slydda Sjj Snjóél yjj
Skúr
Algarve 19
Amsterdam 11
Barcelona 17
Berlín 10
Chicago 08
Dublin 11
Frankfurt 10
Glasgow 07
Hamborg 08
Helsinki 02
Kaupmannahöfn 06
London 15
Madrid 17
Mallorka 19
Montreal 11
New York 13
Orlando 17
Osló 04
París 12
Stokkhólmur 05
Vín 12
Þórshöfn 04
i •*-
v ^
Á morgun
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsíngum frá Veðurstofu íslands
-4° 0