blaðið - 13.04.2006, Side 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö
Heimilisvænir og gómsætir
Mikill fögnuður braust út á götum Teheran eftir að stjórnvöld lýstu yfir að visindamönnum hefði tekist að auðga úran. íranskur náms-
maður heldur á skilti sem á stendur: Nýting kjarnorku er grundvallarréttur okkar.
Góð með kjúklingi, svlnakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem
salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar.
Frábaer köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem Idýfa.
Varfærin viðbrögó við
yfirlýsingum írana
Stjórnvöld í Teheran neita að láta afauðgun úrans og teflaflókna
pólitíska refskák. íranir telja að ekkertfái nú stöðvað áœtlun þeirra.
Stjórnvöld víðs vegar um heim
brugðust í gaer við fréttum um að
írönskum vísindamönnum hafi tek-
ist að auðga umtalsvert magn af úr-
ani. Viðbrögðin einkenndust af var-
færni en stjórnvöld viðs vegar um
heim hvöttu írani til þess að láta af
áformum sínum um áframhaldandi
auðgun úrans.
Bandarísk stjórnvöld lýstu yfir
áhyggjum sínum vegna fréttanna.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins
sagði það vonbrigði að íranir skuli
ekki hafa notfært sér þann frest sem
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
veitti þeim til þess að láta af auðgun
úrans. Ríki Evrópusambandsins og
Rússar hörmuðu ákvörðun frana
um að fara ekki að kröfum öryggis-
ráðsins og hvatti meðal annarra Ser-
gei Lavrov, utanríkisráðherra Rúss-
lands, stjórnvöld í Teheran að fara að
vilja alþjóðasamfélagsins. Viðbrögð
fsraela við fréttunum einkenndust
af varfærni. Haft var eftir Shimon
Peres, fyrrum forsætisráðherra fsra-
els, að stjórnvöld ættu ekki að skipta
sér af málinu að svo komnu máli en
treysta á stefnu Bandaríkjanna.
Efast um friðsaman
tilgang tiirauna
franir neita að láta af auðgun úrans.
í sjónvarpsávarpi á þriðjudag lýsti
Mahmoud Ahmanidinejad, forseti
frans, því yfir að íranskir vísinda-
menn myndu halda ótrauðir áfram
tilraunum sínum þangað til að þeir
hefðu getu til þess að auðga úran
í nægjanlegu magni til að sinna
orkuþörf landsins. Fátt bendir til
að stefnubreytingu sé að vænta í Te-
Á *
Draugasetrið
STOKKSEYRI
Opið alla Páskahelgina
frá kl. 14-18
Hópapantanir i annan tima.
draugatetrid@draugasetrid.is
www.draugasetrid.is
heran. Reuters-fréttastofan hefur
eftir ónafngreindum háttsettum
embættismanni innan írönsku
stjórnarinnar að nú sé stíflan
brostin og ekkert muni nú stöðva
kjarnorkuáætlun írans. Stjórnvöld
í Teheran hafa itrekað lýst því yfir
að kjarnorkuáætlanir þeirra miðist
eingöngu við orkuöflun. Ræður for-
seta landsins á alþjóðavettvangi um
nauðsyn þess að þurrka út fsraels-
ríki og höfnun stjórnvalda á tilboði
Rússa um að auðgun þess úrans sem
íranir þurfa til orkuframleiðslu fari
fram í Rússlandi hafa dregið úr trú-
verðugleika þeirra yfirlýsinga. Flest
ríki sem nota kjarnorku til raforku-
framleiðslu flytja inn auðgað úran
frá löndum eins og Rússlandi og
þar af leiðandi er ekki knýjandi þörf
fyrir frani að ráða yfir slikri getu
fyrir orkuframleiðslu. franir segja
hins vegar að slik geta innanlands
sé nauðsynleg sökum sjálfbærni.
Sérfræðingar telja að íranir verði
komnir með getu til þess að fram-
leiða kjarnavopn eftir fimm til tíu
ár.
Veðjað á Rússa og Kínverja
Öryggisráðið hefur gefið frönum
frest fram til næstu mánaðamóta
að láta af auðgun úrans. Mohamed
ElBaradei, yfirmaður Alþjóðakjarn-
orkumálastofnunar, er á leið til fr-
ans og mun hann eiga í viðræðum
við ráðamenn um deilurnar um
kjarnorkuáætlun landsins. ElBara-
dei mun síðar gefa öryggisráðinu
skýrslu um samstarfsvilja frana.
Litlar líkur eru á því að sú skýrsla
verði frönum jákvæð en óljóst er
hvort að samstaða náist innan ráðs-
ins um harðari aðgerðir gegn þeim.
Stjórnvöld í Teheran virðast reiðu-
búin til þess að veðja á þann hest
að Rússar og Kínverjar beiti neitun-
arvaldi sínu innan ráðsins gegn til-
lögum um viðskiptabann og skapi
þar með svigrúm til áframhald-
andi þróunar á kjarnorkuáætlun
landsins.
Þrátt fyrir að deilan um kjarnorku-
áætlun f rana virðist vera í sjálfheldu
og allt bendi til þess að á endanum
muni slá í brýnu á milli stjórnvalda í
Teheran og í Washington telja ýmsir
sérfræðingar að lausn málsins geti
falist í þróun undanfarinna daga.
Nú þegar íranir hafi sýnt umheim-
inum að þeir geti auðgað úran þá
séu þeir loksins komnir með það
tromp sem þeir hafa sóst eftir í
samskiptum við Vesturlönd. Þar af
leiðandi geti þeir látið af tilraunum
sínum og fallist á kröfur öryggisráðs-
ins. Slíkt myndi að vísu ekki afstýra
þeirri hættu sem stafar af kjarnorku-
áætlun frana til lengri tíma en gæti
veitt deiluaðilum mikilvægan frest.
Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússalands, gagnrýndi frani fyrir áframhaldandi
tilraunir þeirra við auðgun úrans. Stefna Bandaríkjanna f málefnum frans liggur fyrir og
telja stjórnmálaskýrendur að afstaða Rússa og Kínverja skipti sköpum fyrir þróun mála.
Heuters