blaðið - 13.04.2006, Blaðsíða 14
14 I ÁLIT
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö
blaðið
Útgáfufélag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson.
Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber.
ENN SKAL AUKA EFTIRLIT
Nokkurn ugg vekur hversu hallir Islendingar sýnast almennt og yf-
irleitt undir það sjónarmið að auka beri hlut og vægi lögreglunnar
í samfélaginu. Á íslandi þykir sjálfsagt að lögregla stöðvi óbreytta
borgara gjörsamlega án tilefnis enda er það iðulega gert t.a.m. við umferð-
areftirlit. Fáir verða til þess að halda því fram að óbreyttir borgarar eigi
rétt á því að sæta ekki eftirliti öldungis að tilefnislausu. Það markmið að
lögreglan verði „sýnilegri" í samfélaginu er almennt talið háleitt og nánast
gildi í sjálfu sér.
Þetta er stórfurðuleg og dapurleg afstaða; í þróuðu lýðræðisríki getur
það aldrei verið markmið í sjálfu sér að auka hlut og vægi lögreglunnar.
Vinnuhópur á vegum dómsmálaráðuneytis, lögreglu og borgaryfirvalda
hefur nú skilað frá sér tillögum um hvernig bregðast beri við stöðu mála í
miðborginni vegna neikvæðrar hegðunar unglinga, og hvernig auka megi
öryggi í hverfum borgarinnar.
Niðurstaða hópsins er kunnugleg; það þarf aukið eftirlit. Hópurinn
mælir m.a. með eftirliti óeinkennisklæddra lögreglumanna. Síðan eru vit-
anlega uppi hugmyndir um að fjölga eftirlitsmyndavélum.
Margir vísa til fjölgunar ofbeldisverka og aukinnar rustamennsku í
samfélaginu því til stuðnings að auka beri umsvif lögreglu. Nú er það svo
að það er í besta falli umdeilanlegt hvort ofbeldisverk af ýmsu tagi hafi
færst í aukana á undanliðnum árum. Prófessor Helgi Gunnlaugsson hefur
birt niðurstöður sem gefa til kynna að svo sé ekki. Helgi byggir m.a. rann-
sóknir sínar á gögnum lögreglu en samkvæmt þeim hefur dregið úr fjölda
líkamsárása á íslandi um 20% frá árinu 2000.
Vera kann að „andfélagsleg hegðun“ af ýmsum toga hafi á hinn bóginn
aukist.
Hitt er rétt að alvarleg ofbeldisverk setja nokkurn svip á samfélagið nú
um stundir. Líklegt er að í vöxt færist að undirheimafólk geri upp sakir
með ofbeldi. Mannrán, fyrirbrigði sem var með öllu óþekkt í lýðveldinu
þar til nýlega, eru nú framin. Gjörsamlega tilefnislaust ofbeldi kann að
fara vaxandi. Og ofbeldisbrotin sem framin eru sýnast heldur verða alvar-
legri en hitt.
Ógeðfelld viðbrögð sem hafa yfir sér blæ kommúnískrar öryggislögreglu
þar sem allir liggja undir grun eru ekki rétta svarið.
Mun nærtækara er að stjórnmálamenn verði við þeirri kröfu sem uppi er
í samfélaginu og sameinist um að stórherða refsingar við ofbeldisbrotum.
Ýmsir hafa efasemdir um þá nálgun. I því efni gleymast hagsmunir sam-
félagsins og réttur fórnarlambanna. Ofbeldismaður sem er lokaður inni
vinnur ekki öðrum mein á meðan.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Fermingartilboð
Kynnum nýjar gerðir af rúmum með 20% kynningarafslætti.
Rafstillanleg rúm 120x200sm
með svæöiskiptri pokafjaðradýnu
Réttverð kr. 118.000.
Tilbodsverd kr. 94.400.-
u
rúmco
Langholtsvegi 111,104 Rvk
Sími 568 7900
Opið:
virka daga 11-18» laugardaga 11-16.
Tilbodsverð kr. 88.480.-
Hanson rúm með fjaðrandi rúmbotni,
svæðiskiptri pokafjaðradýnu og lúxus
yfirdýnu með hrosshárum
(án höfðagaflsj.120x200.
Verðkr. 110.600.
SAMFéUG^ M^TdR 5Vo av hæfílegar bætu^
PTúRÆT Sí& 0PÍA/BERLEG7Í, &6luG,raFíuN t
WVrrl/M KJÓL 4 VWteVÆMSKBiPÍ /PY'NNA#,
SBU UzO.000 'iKfc. 1 H^WFé/TMPTQLVAy UTAVULNPSFBW,
I'POP 06 /l~3 OJ&PA&frlCifR ( m4 óí-Epp/í')
Vélað um völd og verkaskiptingu
Það hefur verið athyglisvert að fylgj-
ast með þingmönnum á Alþingi
undanfarna daga og sjá hvernig
kosningaskjálftinn hefur gripið um
sig enda styttist í sveitarstjórnar-
kosningar. Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar hafa átt erfitt með að
halda sig við efnið og í síauknum
mæli beitt málþófi, enda virðast
þeir líta svo á að lýðræðinu sé best
þjónað með því að hindra að vilji
meirihluta Alþingis nái fram að
ganga. Að borgurum landsins sé
best þjónað með endalausu málþófi
þar sem hver maðurinn á fætur
öðrum endurtekur sömu rök.
Þetta er auðvitað ekki málefna-
leg afstaða og hafa ýmsir velt þvi
fyrir sér hvað vaki fyrir stjórnar-
andstöðunni. Ég tel þessa hegðun
helst mega rekja til komandi
sveitarstjórnakosninga.
Samfylkingunni hefur gengið
afleitlega í skoðanakönnunum í
Reykjavík frá formannsskiptunum
og ef marka má þessar kannanir
þurfa vinstri-grænir, Frjálslyndi
flokkurinn og Framsóknarflokkur
að róa lífróður, ætli þeir að eygja
von um að koma að manni. Það er
því kannski ekki skrýtið að stjórn-
arandstaðan beiti öllum tiltækum
ráðum til að ná athygli fjölmiðla í
von um að fjölga kjósendum flokka
þeirra.
Kosningaskjáifti við Tjörnina
Maður verður var við það víðar en
á þinginu að kosningaskjálfti hefur
gripið um sig. Flokkar R-listans eru
allir farnir að auglýsa á fullu. Það
kemur á óvart hversu geyst þeir fara
af stað og ekki síst í ljósi lýðskrums
Samfylkingar og Vinstri-grænna
um að takmarka beri pólitískar.
Vinstri-grænir hafa hafið auglýs-
ingaherferð þar sem leiðtogaefni
þeirra er hampað svo að jaðrar við
persónudýrkun, en Samfylkingin
birtir hverja auglýsinguna á fætur
annarri, sem tekur jafnvel fram
auglýsingaflóðinu fyrir prófkjör
flokksins og auglýsingaherferð
borgarstjóra á síðasta ári á kostnað
Reykjavíkurborgar þar sem Stein-
unn Óskarsdóttir var í aðalhlut-
verki þó árangurinn í prófkjörinu
væri minni en í var lagt.
En niðurstaða kannana.benda til
að alls sé óvíst hvort VG, Frjálslyndi
flokkurinn og Framsóknarflokkur-
inn (eða Exbé eins og hann kallar
sig í auglýsingum þessa dagana) nái
inn manni. Flokkarnir hafa því allt
að vinna og virðist lítið spurt um
hvaða kostnað baráttan muni kosta.
Verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga
Það hefur verið nokkuð rætt í að-
draganda sveitarstjórnarkosning-
anna að í því felist miklir kostir
að færa verkefni úr höndum ríkis-
ins yfir til sveitarfélaga og verður
mönnum tíðrætt um kostnað í því
samhengi. Telja margir það töfra-
lausn á öllu mögulegu.
En þegar litið er til óráðsíu og
óstjórn R-listans í Reykjavík, þá
vakna upp efasemdir um að lausnin
felist endilega i því. I valdatíð R-list-
ans í Reykjavík hefur þjónusta borg-
arinnar við fyrirtæki og borgarbúa
versnað svo um munar. Skattar sem
borgin innheimtir hafa hækkað
gífurlega og hafa étið upp hluta af
skattalækkunum ríkisins. Reyk-
víkingar hafa fundið áþreifanlega
fyrir þessu. Það sem hins vegar
hefur verið minna áberandi, en er
ekki síður alvarlegt, er að R-listinn
hefur aukið gífurlega á skuldir borg-
arinnar samhliða því að hækka
skatta.
Það er þvi ekki endilega töfra-
lausn að færa verkefni frá ríki til
sveitarfélaga. Lausnin felst þvert á
móti í sumum tilfellum í því að færa
verkefni enn nær borgurunum, frá
hinu opinbera til einkaaðila og al-
mennings.Aðeinsþannigverðavöld
stjórnmálamanna minnkuð og þar
með vald þeirra til skattahækkana.
Höfundur er þingmaður Sjálf-
stœðisflokksins í Reykjavík.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
esendur Morgunblaðsins í gær ráku
upp stór augu þegar komið var á mið-
opnu blaðsins.
í stað þess, að við hlið
leiðarans væru aðsendar
greinar eða fréttaskýr-
ingar, blasti við Ijóða-
bálkur eftir Matthías
Johannessen, fyrrver-
andi ritstjóra blaðsins.
En það má óhikað mæla með því að menn lesi
Ijóðln, því þarna er Matthías á miklu flugi og
fer yfir aldirnar og samtimann af visku hins
aldna skálds. Hann yrkir meðal annars um
fjölmiðlafár:
Það er vegið að þeim sem vitja síns tíma með
dug
eins og vandræðaskáld sem telur sjálfum sir
borglð
En það er vist erfittaðkomastá krassandi flug
í kastljós frétta og venja sig sífellt við orgið
í álitsgjöfum sem hatast við annarra hug
og halda í gislingu þjóð sem ráfar um torgið
þarsem frelsið er iðkað og afskræmt eins og
gengur
og enginn veðjar á frelsisgyðjuna lengur.
Hjálmar Árnason, þingflokksfor-
maður Framsóknarflokksins, kvaddi
sér hljóðs á sfðum Morg- yilW
unblaðsins í gær og fjallaði þar K, m|
um orðræðu þá, sem uppi hefur EjEjl
verið um málefni eldri borgara. 1
Greinin er út af fyrir sig ágæt, en
þó geldur hún talsvert fyrir upphafssetning-
una, sem svo er lagt út af í hörgul: „Fróðlegt
er að heyra hvernig Samfylkingin boðar nú að
málefni eldri borgara skuli vistuð fremur hjá
rfki en sveitarfélögum." Þessu er nefnilega
þveröfugt farið. Ekki er þó um misskilning hjá
Hjálmari að ræða, heldur pennaglöp, þannig
að framhaldið er svo sem rétt, þó ræskingin
hafi verið röng.
Undanfarna daga hefur DV fjallað
af miklum móð um er-^g^
lendar vændlskonur, sem
sagðar eru hafa veriö gerðar út í
Ármúlanum. Ekki verður þó sagt að blaðiö fjalli
um meintar ógæfukonur af virðingu eða nær-
gætni, því þær eru aldrei nefndar annað en
„mellur". Hitt er svo annað mál, að í frétt DVI
gær kemur fram að vændismarkaðurinn hér á
landi sé umfangsmestur á vefnum einkamal.is.
DV getur þess hins vegarekki að sá vefur er ein-
mitt í eigu 365 prentmiðla í Skaftahlið.