blaðið - 13.04.2006, Qupperneq 24
24 i ÍSK.A
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöið
Hátískufatnaður í stórum stœrðum
Versiunin Evans opnaði í Smára-
lind síðastiiðinn föstudag og
að sögn Sigrúnar Andersen,
framkvæmdastjóra Arcadia á
íslandi, hafa margir lagt leið sína
í verslunina.
„Það er greinileg þörf fyrir verslun
á borð við þessa en í henni er hægt
að fá fatnað í stærðum 16-30. Margir
íslendingar kannast við Evans
verslanakeðjuna sem er bresk en
verslunin hefur einnig til sölu skó,
náttföt, undirföt og ýmiss konar
skrautmuni.“
Sigrún segir verðin í Evans mjög
samkeppnishæf við það sem gengur
og gerist á Islandi og séu jafnvel í
ódýrari kantinum. „Evans opnaði
með fulla verslun af fallegum vor-
og sumarvörum en fatnaður i stíl
sjötta áratugarins er áberandi núna
með doppum, perlum og blúndum.
Þeir litir sem eru í tísku eru drapp-
litur, svartur, hvítur og rauður og
einnig er mikið úrval af ljósum
litum í versluninni. Þá er i verslun-
inni mikið úrval af buxum bæði úr
kaki- og gallaefnum og þær verða til
í öllum siddum."
hugrun@bladid.net
svanhvit@bladid.net
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HEIMILIÐ
.
Sjötti áratugurinn kemur sterkt
inn í sumar meö doppum og
litríkum klæðnaði. Þessi fallega
skyrta kostar 4.499 krónur.
! 'vr
Skemmtileg græn skyrta á
3.999 krónur.
Skórnir hjá Evans eru í víðari kantinum
og ættu því allir að geta fengið sér skó
við sitt hæfi.
2.999 krónur.
Gyllt belti sem má
nota með nánast
hverju sem er og
kostareinungis999
krónur.
Flott græn taska til að nota við öll tækifæri. Taskan kostar
2.499 krónur.
■
Töff gallabuxur á 3.499 krónur
Kemur í veg fyrir og eyðir: Bólgum, þreytuverkjum og harðsperrum
á ferðalögum og við álagsvinnu. Cilyfja vt
Styrkir varnir húðarinnar gegn skaðsemi sólar. Húðin veröur fyrr fallega brún a .
í sól og Ijósabekkjum, með reglulegri inntöku helst húðin lengur brún.
\t\ku4n
Uppáhaldið er hand-
heklaður kjóll frá Kúbu
Sigríður Arnardóttir (Sirrý) sem er
þekkt fyrir smekklegan klæðaburð
og skemmtilegt fas féllst á að svara
nokkrum spurningum um tísku.
Enda segist hún hafa mjög gaman af
fötum og eins að sjá aðra í flottum
fötum.
Hvað er tíska íþínum augum?
„Tíska er birtingarmynd
tiðarandans."
Klœðistþú samkvœmt nýjustu tísku?
„Það skemmtilega við nútímann er
að tískan er margs konar. Allir geta
skapað sér sína eigin tísku, fyrirmynd-
irnar eru endalausar og valfrelsið er
takmarkalaust. Ég klæðist samkvæmt
einhverri tísku, ég veit ekki alveg hvaða
tískaþaðer.“
Áttu þér uppáhaldshönnuð?
„Ég er mikil áhugamanneskja um föt,
finnst gaman að fötum og hef ánægju
af fólki sem tjáir sig með fötum. Ég á
því erfitt með að nefna einhverja hönn-
uði en sem dæmi finnst mér Karen
Millen og Mahn Berger skemmtilegir
hönnuðir. Fötin þeirra eru kvenleg
og persónuleg og ekki framleidd í of
mörgum eintökum. I hönnuninni er
hugsað um að kvenlegar línur njóti
sín.“
Er eitthvað tískutímabil sem þú heldur
uppá?
„Ég held mig mest í nútímanum en
fyrir nokkrum árum var boðið upp á
aðsniðnar, kvenlegar og flottar buxna-
dragtir. Þá var ég í essinu mínu. Mér
finnst tískan í
dag og í sumar
ótrúlegaskemmti-
leg, fylltir hælar,
hvítir blúndu-
kjólar og kjólar
teknir saman í
mittið. Ég held að
kvenleikinn fái
svo sannarlega
að njóta sín í tísk-
unni í dag. Svo
finnst mér tíska
stríðsáranna æð-
islega flott. Ég sé þessar dömur alltaf
fyrir mér í rómantískum hillingum, í
kjólum, á háum hælum, með hatta og
hanska.“
Hvaðaflík er í uppáhaldi hjá þér?
„Ætli það sé ekki handheklaður
hvítur kjóll sem ég keypti á Kúbu ný-
lega. Það voru gamlar konur sem hekl-
uðu hann og hann kostaði einungis 30
dollara sem eru mánaðarlaun læknis
sem vinnur fyrir ríkið á Kúbu. Þegar ég
sá þennan kjól á útimarkaði í Havana
þá skellti ég mér strax í hann og keypti
hann í hvelli. Ég fékk mikla athygli í
kjólnum því Kúbverjunum fannst svo
gaman að sjá túrista í handverki inn-
fæddra. Þetta er glæsilegur kjóll sem ég
ætla að nota mikið í sumar.“
svanhvit@bladid.net
Sirrý:„Égheld að
kvenleikinn fái svo
sannarlega að njóta
sfn í tískunni í dag."