blaðið - 13.04.2006, Side 26
26 I TRÚMÁL
FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 blaöiö
Einn af yður mun svíkja mig... eða ekki
Júdasarguðspjallið, sem kom í leitirnar eftir mörghundruð ár, hefur loksins verið þýtt, eftir œvintýralegt ferðalag
um heiminn. Guðspjallið lá undir skemmdum í ein sextán ár þráttfyrir að menn vissu aftilvist þess. Sitt sýnist
mönnum um innihaldið og ekki eru allir á eitt sáttir um að guðspjallið hreinsi Júdas Ískaríot afáburði um svik.
neisti geti frjáls orðið og horfið til
ríki síns, er Júdas. Til að svo megi
verða verður Júdas að aðstoða Jesú
við að komast úr sínum dauðlega
líkama: „Þú munt fórna mann-
inum sem klæðir mig,“ segir Jesú
og staðfestir, það sem við þekkjum,
að Júdasi muni verða formælt af
kynslóðum.
Hver ritstýrði Nýja testamentinu?
Fáir efast um erindi þeirra tuttugu
og sjö guðspjalla og bréfa Nýja testa-
mentisins sem bera það uppi. Flestir
nálgast hina helgu bók án mikillar
gagnrýni og gera ráð fyrir fullkom-
inni einingu um þá mynd sem
dregin er upp af kristindómnum
í Nýja testamentinu. Nýja testa-
kirkjufeðurnir veittu blessun sína
nefnast apókrýfarbækurnar eða
apókrýfarguðspjöll. Þeim var kerf-
isbundið eytt á upphafsárum krist-
indómsins og hafnað sem trúvillu.
Þegar Nag Hammadi bókasafnið
var grafið úr jörðu í Egyptalandi
árið 1945 gátu fræðimenn fyrst
farið að gera sér líklegri mynd af
trúarhópum þeim sem aðhylltust
dulspekina, upphafi kristindómsins
og inntaki hinnar kristnu dulspeki.
Nag Hammadi safnið tekur til ríf-
lega fimmtíu apókrýfurita sem end-
urrituð voru á 4. öld úr grísku yfir
á koptísku. Tómasarguðspjall er
líklega frægast þessara guðspjalla
en í safninu er einnig að finna Mar-
iuguðspjall, Pétursguðspjall og Fi-
lipusarguðspjall. Sívaxandi fjöldi
fræðimanna hefur gert sér ljóst að
trúararfi kristindómsins verða ekki
gerð almennileg skil nema að teknu
tilliti til apókrýfarguðspjallanna.
National Geographic Society birti
í síðustu viku þýðingu sína á hinu
forna Júdasarguðspjalli sem fjallar
um þann mann sem hingað til hefur
verið þekktur sem þorpari þorpar-
anna. Samkvæmt þýðingunni er sú
túlkun hins vegar alröng. Júdas var
einungis að gera það sem meistari
hans bauð honum. Svikin voru að
undirlagi Jesú Krists.
Talið er að guðspjallið hafi fundist
í kringum 1970 en það hvarf í und-
irheima svarta fornmunamarkað-
arins án þess að menn hafi gert sér
grein fyrir því hvað þeir voru með
í höndunum. Einum úr National
Geographic hópnum var boðið
það til kaups árið 1983 en hann gat
ekki safnað umbeðinni upphæð og
guðspjallið endaði í bankahólfi í
Bandaríkjunum í 16 ár þar sem það
lá undir skemmdum. National Geo-
graphic rannsóknarhópurinn safn-
aði að lokum fyrir kaupum á því
og hóf rannsóknir sínar árið 2004.
Guðspjallið hefur þegar orðið upp-
spretta tveggja bóka, heimildaþáttar
og sýningar á Netinu en fræðimenn
eru ekki á eitt sáttir um hvernig beri
að túlka innihald þess.
Frelsari eða svikari?
í Júdasarguðspjalli birtist mynd af
Jesú Kristi sem er ólík þeirri mynd
sem kristindómurinn, eins og hann
hefur birst okkur í gegnum aldirnar,
hefur dregið upp. Jesú virðist hafa
hlutverk þess sem opnar augu hinna
,blindu“ gagnvart umhverfi sínu,
þeirri blekkimynd sem hinn verald-
legi heimur dregur upp. Hann varar
lærisveina sína við að gangast hinu
veraldlega valdi á hendur, varar þá
við því að dýrka hjáguð, og hvetur
þá til að taka ábyrgð á sjálfum sér.
Aðeins einn þeirra virðist standa
undir þeirri ábyrgð og honum gefur
Jesú hlutdeild í hinum eilífa guðlega
leyndardómi. Sá eini sem er þess
umkominn að fórna hinni verald-
legu birtingamynd svo hinn guðlegi
Nataiie Portman ieikur Evey fV for Vendetta. Þó myndinfari ekki beint á hin djúpu miö
kristindómsins fjallar hún engu að sfður um mikilvægi þess að vera gagnrýninn á heim-
inn og leita sannleikans hið innra.
Dulspekin
Það er ekki hlaupið að því að ætla að
útskýra hina kristnu dulspeki. Með
afar mikilli einföldun má segja að
samkvæmt dulspekinni búi Guð í
hinum margskiptu lögum eilífðar-
innar og til einföldunar má segja að
lögin séu skipt i karlkyns og kven-
kyns pör. í eilífðarlagi ljóssins, sem
er það lægsta af lögum eilífðarinnar
og næst myrkrinu, hinum efnislega
heimi, er parið kallað Kristur og
Soffía. Þegar Soffía streymir um
eilifðina, án félaga sins, verður til
vera sem hefði aldrei átt að verða
til. Sú ófullkomna vera skapar hina
ófullkomnu veröld, falsmynd. Þess
vegna sendir Guð Krist og hinn heil-
aga anda til að bjarga mannkyninu.
Björg þeirra felst í að þekkja hinn
innri guðlega neista sem er það eina
sem hægt er að leggja traust sitt á
en neistarnir skulu sameinast í riki
Guðs.
Upphaf kaþólskunnar
Gagnstætt grunni dulspekimanna
var guðspeki íraneusar grundvölluð
á einingu hins fullkomna guðs sem
skapaði heiminn eins og þrauta-
braut svo maðurinn mætti þrosk-
ast í lífi sínu. Mannkynssagan er,
samkvæmt þessari hugmynd, hluti
af ráðabruggi Guðs fyrir mennina
og án sársaukans og hins illa eiga
mennirnir ekki möguleika á að læra
að þekkja Guð. Þessi hugmynd er
grunnurinn í hinu kaþólska kerfi.
Margvíslegar ástæður eru taldar
liggja að baki því að íreneus skar
svo harkalega niður þegar hann mat
hvort tiltekinn texti væri áreiðan-
legur eða ekki og sneið hugmynda-
fræði kristindómsins. Ein þeirra
er sú að eftir fjögurra ára stríðið
milli Rómverja og gyðinga, sem
Rómverjar sigruðu, voru gyðingar
og kristnir ofsóttir af Rómverjum.
íreneus gæti hafa viljað skilja á milli
þessara hópa, kristinna og gyðinga,
til að tryggja hinum kristnu aukna
vernd gegn ofsóknum. Hvort sem
þessi varnarskýring á rétt á sér eða
ekki er ljóst að með því að hafna Júd-
asi, en nafn hans hefur sömu merk-
ingu og gyðingur, og skilja á milli
Hópur fræðimanna hefur unnið að aldursgreiningu og þýðingu guðspjallsins frá árinu 2004.
Júdasarkossinn:„Sá sem drekkur úr mínum munni mun verða eins og ég er. Og ég sjálfur mun verða eins og hann, og hinir huldu hlutir
skulu opinberst honum." ÚrTómasarguðspjalii sem telst til apókrýfarbókanna sem hafnað var af smiðum Nýja testamentisins.
mentið var þó ekki skrifað á einum
degi. Það tók nokkurra alda deilur
á milli manna að ákveða hvaða
guðspjöll væru verðug. Blóð, sviti
og tár runnu áður en samkomulag
náðist um endanlega framsetningu
og klofningur varð á milli kristinna
trúarhópa. Þeir sem lutu í lægra
haldi hafa í gegnum aldirnar átt fáa
málsvara enda voru lengi litlar heim-
ildir um þau guðspjöll sem hafnað
var fyrir hundruðum ára.
Höfuðrit gegn trúvillu
Guðspjöllin eru menn sammála um
að hægt sé að rekja allt til 60 e.kr.
Þau eru þó misgömul og menn voru
lengi sammála um að þessi helstu,
kanónurnar sem finna má í Nýja
testamentinu, væru eldri en önnur,
þó engin handrit í heilu lagi hafi
fundist eldri en síðan frá annarri
öld. íreneus, Biskup af Lyon, sem
kaþólska kirkjan kallar einn af
kirkjufeðrunum, var uppi á árunum
130-202 e.kr. Ireneus þessi skrifaði
höfuðrit gegn trúvillu þar sem hann
beindi spjótum sínum m.a. gegn Júd-
asarguðspjalli. Það var íreneus sem
ákvað að aðeins fjögur guðspjöll
skyldu teljast til hinnar helgu ritn-
ingar, fjögur eins og höfuðáttirnar
og vindarnir. Ástæða þess að hann
valdi Guðspjöll Mattíasar, Lúkasar,
Jóhannesar og Markúsar er að lík-
indum sú, samkvæmt hópnum sem
vann að þýðingu Júdasarguðspjalls,
að þau voru einföld og sögðu í meg-
inatriðum frá æviferli Jesú.
Fjársjóður Egyptalands
Þau guðspjöll sem ekki þóttu eins
gagnmerk og þau sem Ireníus og
Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum
SYNINGIN
HÆTTIR
SOLUSYNING A HAGÆÐA HANDGERÐU KINVERSKU POSTULINI
Uti- eða
inniblómapottar
myndir - lampar
vasar - skálar
og fleira
White like jade
Bright as mirror
Thin as paper
Sound like a chime
LÚXUS GJAFIR OG SÖFNUNAR VÖRUR - GÓÐ FJÁRFESTING
Hlíðasmári 15
Kópavogi
Sími 895 8966
Opið yfir páska
frá 11:00-21:00