blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 21
blaðiö LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006
VIÐTAL I 21
Vil fá að vera ég sjálf
orgerður Katrín Gunn-
arsdóttir, menntamála-
ráðherra, er þessa
dagana starfandi forsæt-
isráðherra. Hún er fyrsta
konan sem gegnir því
starfi á íslandi. „Það er gaman að
búið sé að brjóta þennan múr og er
táknrænt fyrir þær breytingar sem
hafa átt sér stað í íslenskum stjórn-
málum,“ segir hún. „Konur eru að
taka enn frekari skref fram á við
og eru í lykilhlutverkum í pólitík.
Það er óskandi að það sama gerist
í viðskiptalífinu. En um leið verða
flokkarnir að vera vakandi og nota
tækifærin þegar þau gefast. Þetta á
ekki bara að vera eitthvert tal. Það
er auðvelt að segja að það eigi alltaf
að velja hæfasta einstaklinginn en
málið er að einstaklingarnir eru af
báðum kynjum. Frasinn um að velja
hæfasta einstaklinginn var aldrei
notaður hér á árum áður þegar valið
stóð eingöngu um karlmenn."
Heldurðu að það sé erfiðara að
vera kona ípólitík en karlmaður?
„Það er örugglega öðruvísi af því
kynin eru ólík og við höfum kannski
ekki sömu aðferðir við að ná okkar
málum fram. Og það er bara fínt.
Við stelpurnar í pólitíkinni höfum
rætt að það virðist á stundum örð-
ugra fyrir okkur að koma stórum
málum í gegn, sérstaklega ef þeim
fylgja miklir kostnaðarliðir. Þau
fara hins vegar í gegn en geta tekið
lengri tíma.
Það eru einnig meiri tilfinningar
í gangi hjá okkur konunum sem er
alveg sjálfsagt mál. Það er ekkert að
því að sýna veðrabrigði í skapi. Við
erum Hka ófeimnari við að draga
það inn í starfið að við þurfum að
sinna fjölskyldunni. Ég held að
það hafi oft háð karlmönnunum í
gegnum tíðina að eiga erfitt með að
segja: „Ég er farinn heim að sinna
börnunum". Núna geta þeir það
miklu frekar, þetta er orðið sjálfsagt
mál ekki síst vegna aukinnar stjórn-
málaþátttöku okkar kvennanna.
Þú ert í annasömu starfi meðþrjú
ung börn. Geturðu verið jafnmikið
með börnunum þínum ogþú vildir?
„Nei, ég get það ekki. En væntan-
lega get ég skipulagt þau mál betur
en ég hef gert. Maðurinn minn
er einnig í annasömu starfi hjá
KB banka og við þurfum mjög að
treysta á fjölskyldur okkar og vini.
Það er flókið að koma heimilislífi
og vinnunni saman en ég vil ekki
gefa konum þau skilaboð að það sé
ekki hægt. Það er hægt en það getur
verið flókið."
Lærði að vinna í liði
Þú talar um tilfinningar. Hefurðu
mikið skap?
„Ég hefði gaman af að sjá framan í
fjölskyldu mína þegar ég svara þess-
ari spurningu. Hún myndi örugg-
lega öll kinka kolli. Ég hef mikið
skap og það er bæði kostur og löstur.
Ég tengi það skapi að hafa skoðun
á hlutunum og móta sér stefnu og
sýn. Ef manni stendur ekki sama
um málin þá er maður komin inn
á tilfnningarnar. Á endanum kann
viðkomandi mál að vera það þýð-
ingarmikið að maður ber í borðið
til að hafa áhrif á framvindu þess.
Stundum fylgir því hávaði.
Þú varsthandboltakona hér á fyrri
tíð. Hvað lærðirðu af íþróttunum?
„Iþróttirnar kenndu mér mikið,
með allri þeirri gleði sem fylgir sigr-
inum og vonbrigðunum sem fylgja
tapinu. Ég lærði að taka sigrum og
ósigrum og lærði að vinna í liði.
Maður fær ekki allt sitt fram einn
og sér, það er liðsheildin sjálf sem
er mikilvæg og það skiptir mestu
að liðið sigri. Þessi lærdómur hefur
nýst mér vel í pólitíkinni.“
Þú ert alin upp í kaþólskri trú.
Skiptir trúin þig máli?
„Já, hún skiptir mig máli. Ég fæ
hins vegar oft skömm í hattinn hjá
pabba fyrir að vera ekki nógu kirkju-
rækin en ég svara því til að ég sé trú-
rækin. Ég fer iðulega í kirkju þegar
ég er erlendis og hér heima fer ég oft
í Karmelklaustrið því þar er kyrrð
og ró og maður öðlast innri frið
eftir að hafa verið þar. Trúin skiptir
mig máli en það þýðir ekki að ég sé
gagnrýnislaus á mína kirkju. Ég er
trúuð og ég fer með bænirnar fyrir
börnin mín og fer líka með mínar
bænir. Ég held að flestir hafi orðið
fyrir einhverju í lífinu, oft sorg sem
leiðir til þess að þeir hugsa dýpra og
meira en þeir hefðu annars gert. Af
hverju gera þeir það? Af hverju eru
menn leitandi? Þegar svona háttar
til er það trúin sem sem oftar en
ekki er drifkrafturinn.“
Hefur þú kynnst mikilli sorg í
lífinu?
„Ástvinamissi fylgir sorg og því
hef ég kynnst. Sorgin tengist fólki.
Sorgin tengist ekki vandamálum í
vinnu, hvort sem er í stjórnmálum
eða annars staðar. Sorgin tengist til-
finningum og sorgin tengist fólki.“
Metnaður er ágæt svipa
Pólitísku starfi fylgir mikið álag
semfer misvel meðfólk. Sumir fara
út úr stjórnmálum og segjast vilja
lifa annars konar lífi. Finnst þér
þetta þess virði?
„Já, þetta er þess virði. Þetta er
ákveðið tímabil í lífi mínu sem
vissulega er spennandi fyrir mig per-
sónulega en leiðir vonandi til þess
að ég eigi þátt í að gera samfélagið
betra. Menn sækjast jú eftir völdum
til að koma ákveðnum hlutum í
framkvæmd til að fleiri geti notið
lífshamingjunnar í dag en í gær.
Það er hins vegar nokkurt áhyggju-
efni að pólitíkin er að verða harðari
og grimmari að því leyti að að fjöl-
miðlar eru aðgangsharðari og áblogg-
síðum eru víg úr launsátri sem erfitt
er fyrir stjórnmálamenn að verjast.
Fólk á besta aldri, með mikla hæfi-
leika, hverfur úr stjórnmálum eftir
ekki mjög langt starf. Ég nefni Árna
Magnússon. Eg nefni Ásdísi Höllu
Bragadóttur sem ég vona að komi
aftur í stjórnmálin. Ég nefni Bryn-
dísi Hlöðversdóttur. Eg get nefnt
Guðmund Árna Stefánsson sem var
búinn að vera lengi í pólitík en mér
fannst hann vera iðandi af lífi. Það
er eftirsjá að þessu fólki úr pólitík.
Stjórnmálin mega ekki vera þannig
að við flæmum frá okkur gott fólk.
Pólitíkin þarf að vera mannúðlegri
og mildari. Hún má ekki vera of
persónuleg.
Ég heyri konur segja að þær gætu
aldrei farið í pólitík vegna þess að
þar sé svo mikið af persónulegum
og óvægnum árásum. Það er algengt
að þær segi: Ég gæti aldrei farið í
pólitík vegna þess að börnin mín
myndu heyra alls kyns sögur um
mig. Þetta er alveg rétt. Ég á þrjú
börn: þriggja, sjö og tíu ára. Þau
eldri eru að átta sig á að það er ýmis-
legt miður fallegt sagt um mömmu
þeirra og þau eru farin að spyrja
mig alls kyns spurninga í sambandi
við það. Það liggur við að þau spyrji:
Ertu einhver fantur, mamma?
Ég er rúmlega fertug. Mér finnst
ég aldrei hafa haft jafnmikla orku
til að takast á við verkefni en
óvægið skítkast gerir mann óneitan-
Framhald á næstu opnu
„Ef ég ætlaði að hafa pólitíkina sem mitt ævistarf
þá þýddi það að minnsta kosti. 27 ár til viðbótar,
miðað við hin hefðbundnu starfslok. Nei, ég ætla
ekki að eyða lífi mínu í pólitík."
FÓTBREMSAN GÓÐA
vinsœlu dönsku götuhjólin
komin aftur
I ELLURxom
.. í einurn areenum
KILDEMOES
G. Tómasson ehf • Súðarvogi 6
• sími: 577 6400 • www.hvellur.com
• hveliur@hveilur.com
_