blaðið - 29.07.2006, Qupperneq 26
26
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006 blaöið
tíska
tiska@bladid.net
„Vandamáliö viö fegurð er
að það er eins og að fæð-
ast ríkur og verða fátækari
með tímanum.“
Joan Collíns
Rauður kynþokki
Allar konur ættu aö eiga eitt stykki af eldrauðum varalit i snyrti-
töskunni sinni. Eldrauður varalitur hefur löngum verið tákn kyn-
þokka og fegurðar. Jafnvel þó varaliturinn sé ekki notaður úti
við þá er ótrúlega gaman að setja hann á sig og njóta kvöldsins
sveipuð kynþokka. Auk þess sem hann gerir strákana óða.
Þú skalt
ekki henda
Hversu oft hef ég ekki staðið
sjálfan mig að því að hafa hent ein-
hverrri flík sem ég hef keypt. Þetta
er yfirleitt einhver flík sem er frekar
spes eða sem er ekki hægt að fá
lengur. Ég er ekki þannig mann-
eskja að ég rífi allt út úr skápunum
hjá mér á mánaðarfresti, endur-
skipuleggi og sorteri það sem er
ekki lengur í náðinni hjá mér og þær
flíkur sem ég fer ekkert svo oft í. Of
oft fá flíkur að vera í skápnum hjá
mér án þess að ég sé búinn að fara í
þær í langan tíma því það er eitthvað
við hana sem ég tími ekki að henda.
Svo er hellingur af fötum þar sem
ég hugsa með mér að ég eigi aldrei
eftir að nota þetta og það fer í ruslið
eða Rauða Krossinn. Og það eru
ófá skiptin sem ég hef hugsað: „Oh,
ég vildi óska þess að ég ætti þessar
buxur eða bol enn þá“. Af hverju er
maður að farga þessu ef maður veit
að það verður möguleiki á að maður
noti flíkurnar í framtíðinni. Er það
svo maður komi nýju fötunum inn
í skápinn eða til að geta farið og
keypt meira með góðri samvisku
og sagt að það var ekkert til. Er ekki
spurning um að brjóta fötin saman
og geyma bara aðeins lengur, nota
aðeins oftar og ekki nota afsakanir
til að geta sagt að það sé ekkert til og
ég á ekkert að fara í.
Skjöldur
Fallega brúnt naglalakk
Neglur eru hluti af heildarmyndinni og ættu því ætíð að
líta vel út. Ritual Color naglalakkið frá Helena Rubens-
tein er gott naglalakk sem þornar fljótt. Naglalakkið er
til í mörgum litum og sem dæmi er Casanova lakkið.
Casanova naglalakkið er fallega brúnt með gylltum tón-
um og hentar því afar vel við varalitinn hér að ofan.
Ilmríkt krem frá Chacharel
Flestar konur þrá mjúka húð sem ilmar líkt og rós, enda
er fátt yndislegra en yndismjúk húð. Promesse, perfumed
body lotion frá Chacharel mýkir húðina auk þess sem
kremið ilmar af blómaangan. Lyktin helst á líkamanum út
daginn og líkaminn er endurnærður.
Brúngylltur í sólinni
Helena Rubenstein er þekkt fyrir vandaðar vörur og
það sama á við um varalitina. Emosione varaliturinn
nr. 354 er brúngylltur og hentar því einkar vel í sól-
inni. Varaliturinn hæfir sérstaklega konum sem vilja
Ijósan en fallegan lit. Liturinn minnir um margt á
gloss utan þess að hann er ekki klfstraður og mýkir
varirnar.
Praktísk og
pönkuð hönnun
Breskt og konunglegt
I hönnunarlínu sinni frá árinu 1987 nýtti Vivienne óspart hið
konunglega og annan hefðbundinn breskan kiæðnað.
Flestir kannast við hönnuöinn
Vivienne Westwood enda hefur
hún svo sannarlega verið drif-
kraftur í tísku heimsins. Vivi-
enne fæddist í Englandi árið
1941 og er helsti frumkvöðull
pönktískunnar. Það má segja
að hún sé einn nýstárlegasti og
áhrifamesti hönnuður okkar tíma.
Sjálf segir hún að tískan sé barn
sem hún tók upp og lét aldrei frá
sér aftur.
Öryggisnælur og rakvélablöð
Vivienne lærði tísku og silfur-
smíði í skóla en hætti eftir einungis
eina önn vegna þess að „ég vissi
ekki hvernig verkastéttarstúlka
eins og ég gæti mögulega séð fyrir
mér í tískuheiminum.“ Næstu árin
vann Vivienne í verksmiðju og lærði
leikskólakennslu. Vivienne hitti
mann að nafni Malcolm McLaren
árið 1965 og hann varð annar eigin-
maður hennar og samstarfsfélagi.
Farsælt samstarf þeirra, sem stóð
frá árunum 1970 til 1983, var upphaf
pönktískunnar. Pönkstíllinn vakti
fyrst athygli þegar hljómsveitin
Sex Pistols klæddist fötum frá Vivi-
enne og Malcolm á tónleikum. I
pönkstílnum mátti sjá flíkur sem
voru innblásnar af BDSM og á flík-
unum mátti sjá bindingar, örygg-
isnælur, rakvélablöð og eins voru
gaddahundakeðjur notaðar eins
og skartgripir. Hönnun Vivienne
er þekkt fyrir að sameina óttalaust
ósamræmi við hefðina. Eins er hún
þekkt fyrir að nota breskan vefnað
ásamt því að endurnýta sögulegan
klæðnað eins og korsilettu og krín-
ólínu, sem er nokkurs konar milli-
pils. Samt sem áður hefur nálgun
hennar að hönnun ætíð verið prak-
tísk en þó keyrð áfram af forvitni.
Ekki hryðjuverkamaður
Fyrsta tískusýning Vivienne var
sjóræningjatískusýning í London
árið 1981. Hönnunarstíll hennar
hafði þróast og áhugi hennar sneri
ekki einungis að ungu fólki og
götuhönnun heldur lika að hefð og
tækni. 1 augum Vivienne er tíska
persónulegur áróður. Það er jafn-
mikilvægt að gott sé að vera í föt-
unum og það er að þau líti vel út.
Vivienne afskræmir, ýkir og snyrtir
náttúrulegar útlínur líkamans til að
ná þessu takmarki sínu. Vivienna
er líka óhrædd við að blanda stjórn-
málum við tísku sína. 1 september
Fylgihlutir Vivienne
hannar ekki einungis
fiíkur heldur líka
fylgihluti eins og
veski og
belti.
Góð förðunarráð:
/ktar varir og áberandi kinnbein
IKonur með ljósa húð óttast
oft að „smoky“ sé of dökkt
■ fyrir þeirra litarhaft. Þetta
er alrangt þar sem konur með ljósa
húð geta notað gylltan augnskugga
og gráan blýant til að ná fram þessu
flotta útliti.
2Allar konur geta notað ljós-
fjólubláan augnskugga vilji
■ þær ýkja og vekja athygli á
augnlit sínum. Það skiptir ekki máli
hvort augun séu brún, græn, grá eða
blá á litinn.
3Önnur leið til að ýkja augnl-
innin er að setja þunna
■ línu af bronslituðum augn-
skugga undir neðri augnhárin.
4Til að móta augabrúnir er til-
valið að bera vaselín eða lax-
■ erolíu á þær með hreinum
maskarabursta. Með þessu glansa
brúnirnar án þess að þær verði
klístraðar. í neyð er hægt að nota
varasalva.
5Setjið aðeins púður á nef og
höku nema húðin sé mjög
■ feit. Þannig virkar húðin
fersk, líkt og þegar sólarpúður er
notað en náttúrulegra.
6Þær konur sem eru með
kringlótt andlit geta sett
r. kinnalit fremst á kinnarnar
á meðan þær brosa. Þannig virkar
andlitið grennra.
7Hægt er að draga athygli
að augunum með því að tóna
■ niður aðra hluta andlitsins.
Það er gert með því að nota sama
daufa litinn á varir og kinnar.
8Dragið fram útlínur kinn-
beinanna með því að bera
■ fölbrúnan lit á holrúmið
sem myndast þegar andlitið er gert
kinnfiskasogið.
9Áður en varalitur eða gloss
er borinn á varirnar er til-
■ valið að fjarlægja dauðar
húðfrumur með því að nudda var-
irnar með mjúkum þvottapoka. Það
ýtir undir blóðrás og gerir varirnar
glæsilegri.
*J Hægt er að ýkja varirnar
I | | með því að setja vara-
X ■ salva á þær og nota fing-
urnar til að setja örlítinn kinnalit á
varirnar.