blaðið - 29.07.2006, Blaðsíða 29
blaðið LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2006
29
Dregið í forkeppni meistaradeildar Evrópu:
Uggur í stuðnings-
mönnum Liverpool
Liverpool dróst gegn Maccabi
Haifa í þriðju umferð forkeppni
Meistaradeildar Evrópu en dregið
var í gær. Hafnarborgin Haifa er í
norðurhluta ísraels, ekki víðsfjarri
landamærunum að Líbanon. Hefur
því sett ugg að ýmsum sem styðja
Liverpool.
Leikurinn fer hins vegar fram
í Tel Aviv, höfuðborg ísraels, öllu
fjær átakasvæðunum og segjast
forsvarsmenn UEFA ekki stefna
leikmönnum Liverpool og öðru
fararliði í hættu.
Rafael Benitez, stjóri Liverpool,
er æfur yfir drætt-inum og vill alls
ekki fara til Israels.
AC Milano sem þarf að fara í
forkeppni vegna hneykslisins á
Italíu mæta annað hvort írska
liðinu Cork eða Rauðu Stjörnunni
frá Serbíu. Arsenal dróst gegn
sigurvegaranum úr viðureignum
Ekranas frá Litháen og Dinamo
Zagreb frá Króatíu. Þá mætast
Galatasaray frá Tyrklandi og
Valerenga frá Noregi annars vegar
og Hearts og AEK hins vegar.
Takist FH-ingum að leggja pólska
liðið Legia Varsjá að velli þrátt
fyrir t-o tap á heimavelli mæta þeir
úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk
í næstu umferð.
Leikmenn Liverpool fagna Evrópumeistararnir frá því fyrír ári þurfa að fara til
Israels í forkeppni meistaradeildarinnar.
Skeytin inn
Manchester United hafa
keypt miðvallarleik-
manninn Michael
Carrick frá Tottenham. Fyrr í
sumar höfn-
uðu þeir
tilboði Un-
ited en 2,5
milljarða
króna til-
boðið núna
var of gott
til að hafna.
Leikmaður-
inn hefur því fært félaginu smá
aukafé því hann var keyptur til
Tottenham fyrir tveimur árum
á tæpar 400 milljónir króna.
Forvitnilegt verður að sjá hvort
núna sé fundinn arftaki írska
hörkutólsins Roy Keane en
skarð hefur verið inni á miðju-
svæðinu eífir brottför hans.
Igær komust Real Madrid að
samkomulagi um kaup á hol-
lenska framherjanum Ruud
van Nistelrooy. Fram til þessa
hafði hann um skeið verið
orðaður bæði við spænsku
risana og Bayern Munchen en
nú hefur endi verið bundinn
á sögusagnirnar. Leikmaður-
inn gerir þriggja ára samning
við félagið en kaupverðið
er talið 1,4 milljarðar króna.
Hann hefur verið einn af aðal-
markaskorurum Manchester
United og skoraði 150 mörk á
meðan hann lék með liðinu.
David Dein, varaformaður
stjórnar Arsenal,
viðurkenndi í gær
að félagið ætti í viðræðum
við Chelsea um að selja
bakvörðinn Ashley Cole
til Englandsmeistaranna.
Hann tók fram að ekkert
samkomulag hefði náðst en að
viðræðurnar voru vinsamlegar.
Það er ólíkt því sem var síðast
þegar Chelsea reyndi að krækja
í Cole. Þá voru bæði hann og
stjóri Chelsea sektaðir fyrir
brot á félagaskiptareglum.
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar
Morgunblaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð
víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 30.915 kr. á mánuði fyrir
klukkustundar langan hressandi göngutúr* Til viðbótar kemur
þungaálag og greiðslur fyrir aldreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 5691440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
*Miðað við að 65 eintökum af Morgunblaðinu sé dreift í 30 skipti.